Glóðafeykir - 01.12.1969, Blaðsíða 33

Glóðafeykir - 01.12.1969, Blaðsíða 33
GLÓÐAFEYKIR 33 og hengdi svo einhverja druslu fyrir dymar. En kofinn minn gerði sitt gagn, þótt ekki væri hann háreistur né íburðarmikill. En þessir dagar tóku enda og brátt kom að því, að ég þótti of stór til að stunda hjásetuna og Rögnvaldur bróðir tók við. — Hvernig jörð var Hnjúkur? — Hnjúkur taldist góð jörð á þeirra tíma mælikvarða a. m. k. Túnið gaf af sér 300 hesta og var talið eitthvert stærsta tún í sveit- inni. Auðvitað var það allt þýft, eins og tún voru yfirleitt þá. í gegn- um það runnu tveir lækir, sitt hvoru megin við bæinn. Þegar ég þótti of öflugur orðinn til þess að stunda hjásetuna, var ég látinn fara að slá. LTndantekningarlítið byrjaði túnasláttur á Hnjúki laug- ardaginn í 12. viku sumars. Fyrir túnaslátt var venjulega heyjað úti í Hlíðinni. Þar voru beitarhús með hlöðu við og var heyjað í hana, en heyskapnum þar þannig hagað, að helmingur slægjulandsins var sleginn í ár en hinn helmingurinn næsta ár. Allt var slegið í spild- um. Ef frostnætur komu, þá var vaknað með skímu til að slá, það beit svo vel í hélunni. Kvenfólkið sló oft, t. d. mamma, en þá var hún alltaf út af fyrir sig. Og við strákarnir vorum látnir fara að slá strax og við gátum borið orfið. Jón bróðir fór raunar til Akureyrar strax eftir fermingu til þess að læra smíðar hjá Snorra móðurbróð- ur mínum. Hann kom ekki heim upp frá því nema sem gestur. Akveðinn vinnutími var auðvitað enginn, en staðið meðan skrokk- urinn þoldi. Já, lífsbaráttan þá þætti sjálfsagt hörð nú. Ég man nú varla eftir mjög vondum sumrum á þessum árum. Tíð þótti ekki góð að vorinu nema búið væri að vinna á og stinga út um krossmessu. Ekið var á völlinn á vetuma og til þess notaðir sleðar, sem kallaðir voru bjóð. Teknir voru ákv eðnir dagar til þess að ganga að því verki og þá stundum t'engnir menn að til hjálpar. Fyrst þeg- ar ég man eftir var áburðurinn barinn sundur með klárum. En fljótlega komu taðvélarnar til sögunnar og var það mikil umbót. Síðan var hlössunum ausið úr trogum. — Yar stundaður sjór frá Hnjúki? — Það var ævinlega einn maður við sjó frá flestum heimilum í dalnum. Hefði bóndinn ekki mann, þá fór hann sjálfur. Það var sjónum öðru fremur að þakka, að yfirleitt var ekki sultur í búi hjá Svarfdælingum á þessum árum. Ég man þó eftir einum bónda, sem aldrei vildi fara á sjó, enda var hann oft tæpur með lífsbjörg. Þó held ég að hann hafi aldrei þegið af sveit, en var stundum hjálpað á annan hátt. Bóndi þessi var oft í vinnu á Hnjúki. Atti það til að stríða okkur krökkunum, og var mér því heldur í nöp við hann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.