Glóðafeykir - 01.12.1969, Síða 57
GLOÐAFEYKIR
57
Aðalfundur 1920 var haldinn 20. marz að Skálá í Fellshreppi. Þá
var lagt fram og samþykkt nýtt lagafrumvarp, þar sem félagssvæðið
nær yfir Fells- og Hofshreppa óskipta (Hofsós tilheyrði þá Hofs-
hrepp), með heimili og varnarþingi að Hofsósi. Þá var og samþykkt
að ganga í S. í. S.
1922 kaupir félagið verzlunar- og íbúðarhús Ólafs Jenssonar og
Jóns Björnssonar, en þeir hættu þá verzlunarrekstri á Hofsósi. Stend-
ur það liús enn og er í fjörunni utan Hofsár. Var það í daglegu tali
nefnt á Sandi.
\ ar þá opnuð þar sölubúð, en frarn að þeim tíma var aðstaða mjög
erfið með vörudreifingu vegna húsleysis. Þó mun félagið hafa haft
afnot af skúr, sem K. S. átti innan Hofsár til vörugeymslu.
Árið 1922 var Tómas Jónasson ráðinn fyrsti framkvæmdastjóri
félagsins, fram að þeim tíma hafði hann stjórnað félaginu sem stjórn-
arformaður.
\rar Tómas framkvæmdastjóri þess til 1939 er hann fórst á leið til
Siglufjarðar með m.s. Þengli. Var sú ferð farin vegna Kjötbúðar
Siglufjarðar, en félagið hafði stofnað það fyrirtæki 1928 ásamt Sam-
vinnufélagi Fljótamanna.
Kjötbúð Siglufjarðar var rekin af þessum aðilum ásamt sláturliúsi
og kjötvinnslu til ársins 1966, en var þá seld Kaupfélagi Siglfirðinga.
A þessum árum hafði félagið rekið sláturhús á Hofsósi, svo og
síldarsöltun. Árið 1938 var hafin bygging frysti- og sláturhúss, og
var það fyrsti vísir að því, er síðar varð hraðfrystihús K. A. S. H.
1929 bættist ný deild við félagið úr Hólahreppi. Varð þá félags-
svæðið Fells-, Hofs- og Hólahreppur.
1939 var ráðinn nýr framkvæmdastjóri, Kristján Hallsson. Sama
ár var nafni félagsins breytt og það nefnt Kaupfélag Austur-Skag-
firðinga, skammstafað K. A. S. H.
Kristján var framkvæmdastjóri félagsins til ársins 1955.
1946 var hafin bygging hraðfrystihúss, sem síðan hefur starfað.
1947 voru keyptar húseignir verzlunar Vilhelms Erlendssonar á
Hofsósi. Sölubúðin var notuð fyrir vefnaðarvöruverzlun, en íbúðar-
húsið til gistihúsreksturs, sem félagið hóf þá.
Á þessum árum var einnig byggð fiskimjölsverksmiðja í félagi við
K. S. Var hún rekin sem hlutaféla?. Þá var o? stofnað til bifreiða-
reksturs vegna aðdrátta félagsins og til flutninga um félagssvæðið.
I apríl 1955 tók við framkvæmdastjóm félagsins Geirmundur Jóns-
son, og starfaði hann hjá félaginu þar til í maí 1966 er liann lét af
störfum.