Fréttablaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 2
Veður
Vaxandi austanátt með skúrum eða
éljum sunnan til á landinu, hvasst og
rigning eða slydda um kvöldið. Tals-
vert hægari vindur og víða léttskýjað
fyrir norðan, en þykknar upp í kvöld
og bætir í vind. Hlýnandi veður, hiti 1
til 6 stig síðdegis en 0 til 5 stiga frost
norðaustanlands. sjá síðu 34
félagsmál „Í gær upplifði ég einn
versta dag lífs míns,“ skrifaði for-
stöðumaðurinn Anna Þóra Baldurs-
dóttir á Facebook-síðu barnaheimilis-
ins Villekulla á skírdag.
Stöð 2 greindi frá því fyrir ári að
Anna Þóra Baldursdóttir og sænsk
vinkona hennar hygðust opna
heimili fyrir munaðarlaus börn í
Naíróbí í Kenía. Anna Þóra hafði þá
verið sjálfboðaliði á slíku heimili eftir
að hún fór fyrst út árið 2013. Í Frétta-
blaðinu 10. febrúar síðastliðinn sagði
Aníta G. Axelsdóttir, sem þá var á leið
út til að starfa á nýja heimilinu, að
starfsleyfi væri loks í höfn. Nýfædd
stúlka væri komin á heimilið.
Snurða er nú hlaupin á þráðinn.
„Ég frétti að barnaverndarfulltrúi
lögreglunnar væri ósáttur við að litla
daman væri hjá okkur,“ skrifar Anna
á síðu Villekulla. Hún kveður barna-
verndarfulltrúann hafa talið pappírs-
vinnuna ófullnægjandi og að heim-
ilið hefði ekki rétt á að hafa barnið.
„Ég varð því að fara og sækja hana og
koma með hana innan klukkutíma.“
Anna Þóra segir skrítið að sá sem bað
hana um aðstoð með því að taka við
stúlkunni, sem heitir Arusha, sé með
nákvæmlega sömu pappíra og hún til
þess að hefja rekstur heimilisins.
„Heimilið sem hún færði barnið
á er líka með nákvæmlega sömu
pappíra og ég en samt var í lagi að
setja hana þangað. Þessi heimili og
svo mörg fleiri eru því með allt sama
og ég,“ lýsir Anna Þóra sem kveður
því nú borið við að verið sé að breyta
reglum og að hún þurfi að ljúka öðru
ferli áður en hún taki við börnum. „Ég
gæti bilast hvað ég er reið yfir spill-
ingunni í þessu landi. Ég er svo reið
og sár að ég á ekki til orð yfir þessu
Óvænt bakslag á nýju
munaðarleysingjahæli
Illa gengur að koma rekstri íslensks munaðarleysingjaheimilis af stað í Kenía.
Fyrirstaða er í leyfismálum. Þurftu að afhenda sex vikna stúlku sem tekið hafði
verið við af fátækri ekkju. Stofnandi Villekulla kveðst „reið yfir spillingunni“.
Mynd/AnítA G. Axelsdóttir
Arusha litla.
…eru betri en aðrar
Fjölskyldudagar
Sumarferða
Almeria | Mallorca | Tenerife | Albir | Benidorm | Kanarí
FÁÐU 10.000 KR. AFSLÁTT Í DAG
MEÐ KÓÐANUM SUMAR2016
Fjölskyldudagar byrja í dag 31. mars - 4. apríl.
Sláið inn afsláttarkóðann sumar2016 á
sumarfedir.is og afslátturinn er þinn.
samgöngur Ferðamálasamtök
Vestmannaeyja telja umræðu um
Landeyjahöfn gjarnan byggða á get-
gátum og litlum eða jafnvel röngum
upplýsingum.
Ofangreint kemur fram í erindi
ferðamálasamtakanna til bæjarráðs
Vestmannaeyja þar sem óskað er
eftir styrk til að halda borgarafund
um Landeyjahöfn.
Markmið fundarins er „að upp-
lýsa Eyjamenn um stöðu hafnar-
innar, smíðina á nýrri ferju og hvað
hægt sé að gera þar til að höfn og
ferja eru farin að nýtast sem heils-
árs samgöngumannvirki“, að því er
segir í fundargerð bæjarráðs.
Fyrir sitt leyti fagnaði bæjarráðið
framtaki ferðamálasamtakanna og
hvatti eindregið til að borgarfund-
urinn yrði sem fyrst. „Ráðið lýsir sig
viljugt til að styðja við ferðamála-
samtökin með öllum ráðum og þar
með að veita samtökunum fjárhags-
legan stuðning vegna þessa verk-
efnis,“ segir í fundargerðinni. – gar
Styrkja fund
um höfnina
Milljarðaframkvæmdir við dýpkun
Heildarkostnaður við dýpkun, mælingar, útboð og fleira við Landeyjahöfn árið 2015 var 625 milljónir króna. Þar af kostaði viðhaldsdýpkun um 400 millj-
ónir en frá því að höfnin var opnuð um mitt ár 2010 fram til loka árs 2014 hafði 1,1 milljarði króna verið varið til dýpkunarframkvæmda. FréttAblAðið/Pjetur
Anna Þóra
baldursdóttir
með fyrsta barnið
á Villekulla, hana
Arushu, þegar
hún var tíu daga
gömul í febrúar.
Arusha fékk þó
ekki að búa lengi
á Ville kulla.
öllu saman. Sem betur fer veit ég að
elsku litla stelpan mín er í góðum
höndum,“ skrifar Anna Þóra Baldurs-
dóttir á styrktarsíðu barnaheimilisins
Villekulla. gar@frettabladid.is
Sem betur fer veit ég
að elsku litla stelpan
mín er í góðum höndum.
Anna Þóra Baldursdóttir
Evrópa Bandaríski herinn ætlar
að fjölga hermönnum í Austur-
Evrópu á næsta ári. Með því vill
hann bregðast við „ágengu Rúss-
landi“, eins og Philip Breedlove,
æðsti yfirmaður Bandaríkjahers í
Evrópu, orðar það.
Bæði Evrópusambandið og
Bandaríkin hafa gagnrýnt Rússa
fyrir átök við Úkraínu og að hafa
innlimað Krímskaga. Viðskipta-
bann á Rússa er í gildi vegna þess-
ara átaka.
Byrjað verður að fjölga her-
mönnum í febrúar. Hermenn
verða sendir til Eistlands, Lettlands,
Litháens, Póllands, Rúmeníu, Búlg-
aríu og Ungverjalands, eftir því sem
Ritzau-fréttastofan fullyrðir.
Eftir fjölgunina mun herinn hafa
sem samsvarar þremur heilum her-
deildum í Evrópu. Að jafnaði eru
3.200 til 5.500 hermenn í einni her-
deild. – jhh
Hermönnum
fjölgað í Evrópu
atvinnulíf Stjórnendur HB Granda
hafa ákveðið að falla frá áformum
um að senda 27 starfsmenn félags-
ins á árlega alþjóðlega sjávarútvegs-
sýningu sem haldin verður í Brussel í
lok næsta mánaðar. Ekki er talið for-
svaranlegt að senda starfsmenn fyrir-
tækisins á sýninguna þar sem „óvíst
er hvort hægt verði að tryggja öryggi
þeirra með viðunandi hætti eftir
nýlegar hryðjuverkaárásir í borg-
inni“, eins og segir í frétt á heimasíðu
fyrirtækisins.
Helsti tilgangur með þátttöku í
sýningunni var að kynna kaupend-
um þær afurðir sem félagið hefur að
bjóða og efla samskipti við afurða-
kaupendur frá öllum heimshornum,
en sýningin í Brussel er ein sú stærsta
sinnar tegundar sem haldin er í
heiminum á hverju ári. – shá
Fara ekki til
Brussel
3 1 . m a r s 2 0 1 6 f i m m t u D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
3
1
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:2
2
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
E
9
-2
F
B
0
1
8
E
9
-2
E
7
4
1
8
E
9
-2
D
3
8
1
8
E
9
-2
B
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K