Fréttablaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 54
Seljum öll tæki
til malbiksframkvæmda
og malbiksviðgerða.
Tangarhöfða 1
110 Reykjavík
Sími 551 5464
Fax: 551 4531
wendel@wendel.is
www.wendel.is
Vegalengdir styttast á Vestfjörðum
Lengi hefur verið kvartað yfir hroðalegum vegum á Vest-
fjörðum. Nú virðast bjartari tímar fram undan. Tillaga
að nýrri samgönguáætlun á Vestfjörðum var lögð fram á
Alþingi 18. mars sl.
Í tillögunni er gert ráð fyrir 2,7 milljörðum fram til árs-
ins 2018 til vegagerðar í Gufudalssveit, síðan verður hafist
handa við Dýrafjarðargöng. Áformað er að framkvæmd-
ir hefjist við göngin eftir mitt næsta ár og að þeim ljúki árið
2020. Dýrafjarðargöng stytta Vestfjarðavegi um 27 kíló-
metra. Þá eru fyrirhugaðar lagfæringar á Djúpvegi sem að
hluta er mjór og með blindhæðum. Þegar eru hafnar endur-
bætur á Strandavegi á Ströndum um Bjarnarfjarðarháls, sem
mun bæta leiðina þar til muna fyrir heimamenn og gesti.
Vegagerðin áætlar að verja
5.850 milljónum króna í við-
hald vega á
landinu í ár en
það er sú upp-
hæð sem til-
tekin er í sam-
gönguáætl-
un. Þetta er
minni fjár-
veiting en á
síðasta ári.
Í ár verð-
ur lögð meiri
áhersla á viðhald bundinna slit-
laga en áður.
Í samgönguáætlun sem lögð
er fyrir Alþingi í ár er gert ráð
fyrir eftirfarandi fjármunum í
viðhald vega:
2015 - 6.350 mkr.
2016 - 5.850 mkr.
2017 - 7.000 mkr.
2018 - 7.000 mkr.
Skipting fjárveitinga í bundnu
slitlagi á svæði er áætluð eftir-
farandi:
Suðursvæði 1.200 mkr, þar af
450 á höfuðborgarsvæði
Vestursvæði 650 mkr
Norðursvæði 520 mkr
Austursvæði 340 mkr.
Helstu verkefni á sviði styrking-
ar og endurbóta á slitlagi eru:
Suðursvæði: Biskupstungna-
braut
Vestursvæði: Súðavíkurvegur
Norðursvæði: Hringvegur í
Reykjadal
Austursvæði: Hringvegur um
Heiðar enda
Vegagerðin
malbikar fyrir
5.850 milljónir kr.
Áhugamenn um frjálsar íþrótt-
ir kannast flestir við grúfustíl-
inn í hástökki og Fosbury-stílinn
sem nær allir hástökkvarar hafa
notast við frá 1970. Við frum-
stæðar aðstæður frjálsíþrótta-
manna hérlendis á sjöunda ára-
tug síðustu aldar þurfti íslenskir
hástökkvarar stundum að nota
hugmyndaflugið.
Í Í.R. blaðinu sem kom út árið
1998 lýsir frjálsíþróttamaðurinn
Jón Þ. Ólafsson m.a. „malbiks-
stílnum“ í hástökki en Jón átti
Íslandsmetið frá 1962 (2,11 m)
sem stóð til 1984.
Fyrsta útiæfing vorsins 1963
fór fram á Melavelli en völlur-
inn var eitt drullusvað. Hann
fékk þá hugmynd að æfa stökk-
ið á malbikuðum tennisvellin-
um en þar voru engar sandgryfj-
ur eða dýnur. Þar kom hann fyrir
stökksúlum og bambusrá og hóf
að stökkva. Jón notaði grúfustíl-
inn þar sem lent er á bakinu en
það gekk eðlilega ekki á hörðu
malbikinu. Því notaðist hann
við nýja aðferð; að hlaupa beint
að ránni og lenda á malbikinu
á sama fæti og hann stökk upp
af. Áður hafði hann reynt stílinn
innanhúss með dýnu og sand-
gryfju en hér var kominn nýr stíll
til að nota utanhúss við vissar
aðstæður.
Malbiksstíllinn
Jón Þ. Ólafsson íþróttamaður
þekkir „malbiksstílinn“ í hástökki.
MYND/VÍSIR
MAlbIk kynningarblað
31. mars 201612
3
1
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:2
2
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
E
9
-8
D
8
0
1
8
E
9
-8
C
4
4
1
8
E
9
-8
B
0
8
1
8
E
9
-8
9
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K