Fréttablaðið - 31.03.2016, Side 52

Fréttablaðið - 31.03.2016, Side 52
malbik kynningarblað 31. mars 201610 Hættulegustu vegir í heimi Stelvio Pass í Ölpunum og vegur- inn um Yungas í Bólivíu eru sagðir hættulegustu vegir í heimi. Stelvio Pass var gerður 1820 og á honum eru 48 krappar beygjur sem hafa reynst ökumönnum erfiðar. Á snarbröttum fjallveginum um Yungas í Bólivíu lætur fjöldi ferða- manna lífið á hverju ári, en veg- urinn var gerður á fjórða áratug síðustu aldar og voru paragvæskir stríðsfangar látnir leggja veginn. Vegurinn er varla þriggja metra breiður og einungis um 80 kíló- metra langur. Hann hefur fengið það vafasama heiti „Dauðaleiðin“. Frægir vegir og þjóðleiðir Flókið vegakerfi þræðir sig um allan heiminn og spennandi að ferðast um leiðir sem hlotið hafa þann vafasama heiður að teljast hættulegustu leiðir í heimi eða liggja hæst yfir sjávarmáli. katy Freeway er breiðasta hraðbraut í heimi. Dauðavegurinn í bólivíu. Stelvio Pass, einn hættulegasti vegur í heimi. karakoram er hæsti malbikaði vegur í heimi. Route 66 er haldið við í nokkrum fylkjum en vegurinn var tekinn út úr þjóðleiðakerfi bandaríkjanna árið 1985. Hæsti vegur í heimi Karakoram-leiðin um Himalaja- fjöll er talin liggja hæst vega í heimi eða 4.876 metra yfir sjávar- máli. Pakistan og Kína gerðu með sér samkomulag árið 1963 um að leggja malbikaðan veg í félagi. Kara koram Highway teygir sig 805 kílómetra. Vegurinn var opn- aður almennri umferð árið 1986 og tengir Xinjiang-hérað í Kína við Islamabad, höfuðborg Pakistans. Breiðasta gata í heimi Katy Freeway í suðurhluta Banda- ríkjanna er talin breiðasta hrað- braut í heimi en á köflum eru 18 akreinar. Hraðbrautin teygir sig 1.420 kílómetra, og liggur meira en einn þriðji hluti hennar um Texas. Hún var lögð árið 1959. Frægasta þjóðleið í heimi Þjóðvegur 66 í Bandaríkjunum er ein af frægustu hraðbrautum í heimi og ein af fyrstu aðalleið- um um Bandaríkin, frá Chicago til Kaliforníu. Vegurinn var 3.945 kílómetra langur og var almenn umferð um hann frá 1926 til árs- ins 1985 en þá var þjóðvegur 66 tekinn út úr aðalþjóðleiðakerfi Bandaríkjanna. Um þessa leið hafa verið samin dægurlög og á sjöunda áratugnum voru í gangi sjónvarpsþættir í Bandaríkjunum sem kölluðust Route 66. Áratug- um saman blómstraði þjónusta við veginn og var lengi barist gegn því að hann færi út úr aðalleiðakerf- inu. Nokkur fylki hafa haldið upp á kafla leiðarinnar undir merkinu „Historic Route 66“. GSG EHF. BÝÐUR UPP Á SAMSKEYTALAUSAR VIÐGERÐIR Á ÖLLUM HOLUM, SPRUNGUM OG RÖNGUM VATNSHALLA SEM MYNDAST Í MALBIKI. Til viðgerðanna notum við svokallaðan gashlemm en hann gerir okkur kleift að hita upp malbik í kringum skemmdir. Með þessu móti mætir heitt malbik heitu malbiki og náum við þannig að koma í veg fyrir að samskeyti verði sjáanleg. Samskeyti eiga það til að brotna upp mjög fljótt eftir viðgerð ef þessi aðferð er ekki notuð. Stærð skemmdana skiptir ekki máli þar sem hægt er að hólfa hlemminn niður í hinar ýmsu stærðir. Heildarstærð hlemmsins er 4,5 m² en hægt er að gera hitun við hitun án þess að samskeyti sjáist og er þess vegna hægt að gera við tugi fermetra í einu án þess að gæði viðgerðanna rýrni. Á meðan hitunin á sér stað kveiknar og slökknar til skiptis á hituninni til að malbikið brenni ekki. Það er mjög mikilvægt að gamla malbikið brenni ekki því þá er ekki hægt að endurnýta það með nýju. Þegar nýju malbiki hefur verið bætt í er viðgerðin jöfnuð út í rétta hæð og að lokum er svo valtað yfir. Útkoman er samskeytalaus malbiksviðgerð sem stenst allar kröfur og hefur góðan líftíma.   NÚ ER RÉTTI TÍMINN FYRIR MALBIKSVIÐGERÐIR! GSG BÝÐUR EINNIG UPP Á ANNARSKONAR MALBIKUN. MÁ ÞAR M.A. NEFNA:  Malbikun á vegum, heimreiðum og plönum  Malbikun á göngu- og hjólastígum  Malbikun á hraðahindrunum og römpum  Bráðabirgðaviðgerðir þar sem aðstæður leyfa ekki annað Ekki hika við að hafa samband við mig til að fá tilboð eða nánari upplýsingar um okkur! Þorvarður Kristjánsson framkvæmdastjóri thorvardur@gsg.is ✆ 823 3446 www.gsg.is ✆ 588 4800 3 1 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :2 2 F B 0 8 8 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 E 9 -9 2 7 0 1 8 E 9 -9 1 3 4 1 8 E 9 -8 F F 8 1 8 E 9 -8 E B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 8 8 s _ 3 0 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.