Fréttablaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 86
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Ég hef skrifað og teiknað nær allt mitt líf. Árið 2014 byrjaði ég að þróa söguna um Gombra út frá karakter sem ég hef verið að teikna í gegnum tíðina,“ segir Elín Edda, tvítug námskona í grafískri hönnun við Listaháskólann, en hún er um þessar mundir að gefa út myndasöguna Gombra sem spannar heilar 200 síður. Sagan fjallar um náttúruvernd, sannleikann og hvernig það er að takast á við lygar. Gombri ákveður að yfirgefa heimili sitt, vegna þess að hann er orðinn leiður á drung- anum sem umkringir hann. Á leið sinni lendir hann í ýmsum ævintýr- um og hittir meðal annars Móður Jörð sem hefur flúið vegna ágengni íbúa sinna. „Ég vissi alltaf um hvað sagan átti að vera, ég er nú þegar búin að fá frábær viðbrögð við sögunni. Fólk fær að sjá bókina í heild sinni á morgun í hátíðlegu útgáfuhófi sem haldið verður í Galleríi Ekki- sens en þar mun tónlistarkonan Kaðlín skemmta gestum og kemur hún meðal annars til með að flytja nýtt tónlistarverk á opnuninni,“ segir Elín Edda spennt fyrir útgáfu bókarinnar Myndirnar málar Elín með bleki og vatnslitum en þær verða til sýnis og sölu á sama tíma og bókin, sem einungis er gefin út í 200 ein- tökum. Elínu Eddu finnst einlægni mikilvægust fyrir flæði textans og teikningarinnar en í flæðinu verða oft óvæntar uppákomur. „Mistök eru leyfileg og teikning- arnar eru fyrst og fremst frjálsar. Helst vil ég gera aðlaðandi myndir og texta sem gefur lesendum nýja sýn á einhvern hátt,“ segir Elín Edda. Þrátt fyrir ungan aldur er nóg að gera hjá þessari ungu listakonu og óhætt er að segja að hún hafi mörg járn í eldinum og framtíðin sé björt og spennandi. „Í dag er ég að taka alls konar hönnunarverkefni að mér, svo stefni ég á að byrja að skrifa nýja sögu í sumar. Eftir sumarið kemur út ljóðabók eftir mig sem heitir Ham- ingjan leit við og beit mig í dag. Svo er það líka skólinn en ég er í graf- ískri hönnun í Listaháskólanum og finnst það mjög skemmtilegt,“ segir Elín Edda, og bætir við að öllum sé velkomið að líta inn á sýninguna sem stendur yfir alla helgina í Gall- eríi Ekkisens. gudrunjona @frettabladid.is Frjálsar teikningar og mistök eru leyfileg Elín Edda, tvítug námskona í grafískri hönnun við Listaháskólann, gefur út sína aðra bók. Bókin heitir Gombri og um er að ræða 200 blaðsíðna myndabók sem er skrifuð og myndskreytt af Elínu Eddu. Elín Edda gefur út grafíska myndasögu um Gombra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Hér má sjá Gombra ásamt vinkonu sinni Nönnu sem hann kynnist á ferða- laginu, en allar 200 blaðsíðurnar í bókinni eru með máluðum myndum. MyND/ ELÍN EDDA Í dag er ég að taka alls konar hönn- unarverkeFni að mér, svo steFni ég á að byrja að skriFa nýja sögu Í sumar. 3 1 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r50 L í F I ð ∙ F r É T T a B L a ð I ð 3 1 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :2 2 F B 0 8 8 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 E 9 -3 E 8 0 1 8 E 9 -3 D 4 4 1 8 E 9 -3 C 0 8 1 8 E 9 -3 A C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 8 8 s _ 3 0 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.