Fréttablaðið - 31.03.2016, Side 39

Fréttablaðið - 31.03.2016, Side 39
 Starfsmenn Volvo atvinnutækjasviðs verða á Bauma vinnuvélasýningunni dagana 11. til 13. apríl eða mánudag til miðvikudags, en Volvo CE er með stóran bás í höll C4 merktan Stand 327 og jafnframt með stórt útisvæði fyrir utan sýningarhöllina. Volvo CE vinnuvélar. Sterkar þegar kemur að malbikunar- vélum og völturum Þegar kemur að malbikunarvél­ um og völturum þá er Volvo CE með breiða framleiðslulínu. Í dag eru framleiddar margar stærðir malbikunarvéla og með mismun­ andi undirvögnum frá Volvo CE. Bæði stórar vélar eins og ABG 9820 sem eru hugsuð í stærri verk þar sem hámarks malbikunar­ breidd getur verið allt að 16 metr­ ar og einnig minni vélar sem henta í smærri verk. Eins og áður sagði þá eru malbikunarvélarnar frá Volvo fáan legar með tvenns konar undir vögnum, annars vegar á belt­ um og hins vegar á hjólum. Hægt er að fá þessar vélar með mis­ munandi breiddum á útleggjurum en „DuoT amp High Density“ út­ leggjararnir frá Volvo CE þjappa malbikið mjög vel þegar það er lagt sem gerir það að verkum að minna þarf að valta yfirborð mal­ biks þegar malbikunarvélin hefur unnið sína vinnu. Brimborg afhendir Volvo P6820C malbikunarvél á næstu dögum til Loftorku Reykjavík ehf. Loftorka Reykjavík ehf. mun fá af­ henta nýja Volvo P6820C malbik­ unarvél á næstu dögum en vélin er nýlega komin til landsins. Er hér um að ræða fyrstu Volvo malbikunarvélina sem Volvo atvinnutækjasvið hefur afhent til þessa. Hér er á ferðinni Volvo mal­ bikunar vél í millistærð sem hentar mjög vel við krefjandi aðstæður. Afkastamiklir valtarar frá Volvo CE Töluvert framboð er af völturum í framleiðslulínu Volvo CE en hún skiptist í jarðvegsvaltara og mal­ biksvaltara. Eru valtararnir frá Volvo CE fáanlegir frá 2,5 tonn­ um upp í allt að 15 tonn að þyngd. Er þeim sem vilja kynna sér fram­ leiðslu Volvo CE betur bent á nýja heimasíðu Volvo vinnuvéla á Ís­ landi eða www.volvoce.is. Volvo atvinnutækjasvið á Bauma 2016 í München í apríl Kristinn vill geta þess að starfs­ menn Volvo atvinnutækjasviðs verða á Bauma vinnuvélasýning­ unni daganna 11.­13. apríl eða mánudag til miðvikudags, en Volvo CE er með stóran bás í höll C4 merktan Stand 327 og jafn­ framt með stórt útisvæði fyrir utan sýningarhöllina. Mun Volvo CE kynna nýjar stórar og öflug­ ar Volvo vinnuvélar til sögunnar á sýningunni að þessu sinni, sem verður án efa áhugavert að sjá. Allir eru að sjálfsögðu velkomnir á sýningarbás Volvo CE þar sem starfsmenn Volvo atvinnutækja­ sviðs verða sýningargestum til halds og trausts. Hádegismóar 7, lóð undir starf- semi Volvo atvinnutækja Volvo atvinnutækjasvið Brim­ borgar hefur stækkað talsvert í umfangi undanfarið auk þess sem aðrar rekstrareiningar innan Brimborgar hafa gert það líka. Hönnunarvinna í sambandi við nýtt húsnæði undir starfsemi Volvo atvinnutækja er vel á veg komin, en að mörgu þarf að hyggja þegar byggja þarf utan um starf­ semi sem þjónusta þarf margvís­ leg atvinnutæki stór og smá. Eru því án efa spennandi tímar fram undan hjá Volvo atvinnutækjasviði Brimborgar. Heimasíður Volvo atvinnutækja og samfélagsmiðlar Heimasíður Volvo atvinnutækja hjá Brimborg hafa verið uppfærð­ ar töluvert upp á síðkastið og eru þær í dag samtals fjórar. Fyrir Volvo vinnuvélar www.volvoce. is, Volvo vörubifreiðarnar www. volvo trucks.is, fyrir Volvo stræt­ isvagna og rútur www.volvobus. is og fyrir Volvo Penta bátavélar www.volvopenta.is. Jafnframt er haldið úti Facebook­síðu hjá Volvo atvinnutækjum þar sem reynt er að koma á framfæri fréttum og öðru efni er tengist því sem atvinnutækjasviðið er að gera hverju sinni og þeim vörumerkj­ um sem Volvo atvinnutækjasvið hefur með að gera. Að lokum vill Kristinn minnast á það að vegna aukinna umsvifa er þörf fyrir góða liðsmenn í hóp fag­ manna á Volvo atvinnutækjaverk­ stæðunum. Nýtt símanúmer Volvo atvinnutækja er 515 7070. Malbikunarvélar og valtarar frá Volvo CE hjá Volvo atvinnutækjum Brimborg fer með umboð Volvo atvinnutækja sem eru í eigu Volvo AB í Svíþjóð. Þar ber að nefna Volvo CE vinnuvélar, Volvo Trucks vörubifreiðar, Volvo Bus hópferðabifreiðar, Volvo Penta bátavélar og Renault Trucks vörubifreiðar. Kristinn Már Emilsson, framkvæmdastjóri atvinnutækjasviðs hjá Brimborg, segir að öll framleiðsla Volvo atvinnutækja sé undir ströngum gæðakröfum þar sem megingildin í hönnun og framleiðslu séu: Quality, safety and environmental care eða: Gæði, öryggi og umhyggja fyrir umhverfinu. Volvo SD135B jarðvegsvaltari. Volvo P6820C malbikunarvél að leggja út malbik. Þjónustubifreið Volvo atvinnutækja og Volvo L180H hjólaskófla í Vatnsskarðsnámu. Volvo P6820C malbikunarvél sem Loftorka Reykjavík fær afhenta á næstu dögum. Kynningarblað MaLBiK 31. mars 2016 5 3 1 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :2 2 F B 0 8 8 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 E 9 -8 3 A 0 1 8 E 9 -8 2 6 4 1 8 E 9 -8 1 2 8 1 8 E 9 -7 F E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 8 8 s _ 3 0 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.