Fréttablaðið - 31.03.2016, Side 86
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Ég hef skrifað og teiknað nær allt mitt líf. Árið 2014 byrjaði ég að þróa söguna um Gombra
út frá karakter sem ég hef verið að
teikna í gegnum tíðina,“ segir Elín
Edda, tvítug námskona í grafískri
hönnun við Listaháskólann, en
hún er um þessar mundir að gefa
út myndasöguna Gombra sem
spannar heilar 200 síður.
Sagan fjallar um náttúruvernd,
sannleikann og hvernig það er að
takast á við lygar. Gombri ákveður
að yfirgefa heimili sitt, vegna þess
að hann er orðinn leiður á drung-
anum sem umkringir hann. Á leið
sinni lendir hann í ýmsum ævintýr-
um og hittir meðal annars Móður
Jörð sem hefur flúið vegna ágengni
íbúa sinna.
„Ég vissi alltaf um hvað sagan
átti að vera, ég er nú þegar búin
að fá frábær viðbrögð við sögunni.
Fólk fær að sjá bókina í heild sinni
á morgun í hátíðlegu útgáfuhófi
sem haldið verður í Galleríi Ekki-
sens en þar mun tónlistarkonan
Kaðlín skemmta gestum og kemur
hún meðal annars til með að flytja
nýtt tónlistarverk á opnuninni,“
segir Elín Edda spennt fyrir útgáfu
bókarinnar
Myndirnar málar Elín með bleki
og vatnslitum en þær verða til
sýnis og sölu á sama tíma og bókin,
sem einungis er gefin út í 200 ein-
tökum. Elínu Eddu finnst einlægni
mikilvægust fyrir flæði textans og
teikningarinnar en í flæðinu verða
oft óvæntar uppákomur.
„Mistök eru leyfileg og teikning-
arnar eru fyrst og fremst frjálsar.
Helst vil ég gera aðlaðandi myndir
og texta sem gefur lesendum nýja
sýn á einhvern hátt,“ segir Elín Edda.
Þrátt fyrir ungan aldur er nóg að
gera hjá þessari ungu listakonu og
óhætt er að segja að hún hafi mörg
járn í eldinum og framtíðin sé björt
og spennandi.
„Í dag er ég að taka alls konar
hönnunarverkefni að mér, svo
stefni ég á að byrja að skrifa nýja
sögu í sumar. Eftir sumarið kemur út
ljóðabók eftir mig sem heitir Ham-
ingjan leit við og beit mig í dag. Svo
er það líka skólinn en ég er í graf-
ískri hönnun í Listaháskólanum og
finnst það mjög skemmtilegt,“ segir
Elín Edda, og bætir við að öllum sé
velkomið að líta inn á sýninguna
sem stendur yfir alla helgina í Gall-
eríi Ekkisens.
gudrunjona @frettabladid.is
Frjálsar teikningar og
mistök eru leyfileg
Elín Edda, tvítug námskona í grafískri hönnun við Listaháskólann,
gefur út sína aðra bók. Bókin heitir Gombri og um er að ræða 200
blaðsíðna myndabók sem er skrifuð og myndskreytt af Elínu Eddu.
Elín Edda gefur út grafíska myndasögu um Gombra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Hér má sjá Gombra ásamt vinkonu
sinni Nönnu sem hann kynnist á ferða-
laginu, en allar 200 blaðsíðurnar í
bókinni eru með máluðum myndum.
MyND/ ELÍN EDDA
Í dag er ég að taka
alls konar hönn-
unarverkeFni að mér, svo
steFni ég á að byrja að
skriFa nýja sögu Í sumar.
3 1 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r50 L í F I ð ∙ F r É T T a B L a ð I ð
3
1
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:2
2
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
E
9
-3
E
8
0
1
8
E
9
-3
D
4
4
1
8
E
9
-3
C
0
8
1
8
E
9
-3
A
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K