Fréttablaðið - 31.03.2016, Síða 30
Hanna Margrét Arnardóttir, nemi
í fatahönnun í Listaháskóla Ís-
lands, segir fatahönnunarnema
vera orðna meðvitaðri um um-
hverfisvernd og sjálfbærni en
áður. „Það hefur mikið verið talað
um endurnýtingu og sjálfbærni í
skólanum og það sem er að gerast
í heiminum í þeim málum. Á tísku-
sýningu annars árs nema í faginu
sem fram fór um miðjan mánuðinn
endurnýttum við flíkur úr Rauða
krossinum og gáfum þeim nýtt líf.
Sýningin heppnaðist vel og var
ótrúlega skemmtileg,“ segir Hanna
Margrét.
Erfitt að vinna mEð plastið
Hún gerði þrjú lúkk sem sýnd voru
á sýningunni eins og aðrir nem-
endur og byrjuðu þau á því að fara
saman í Rauðakrossbúð til að fá
hugmyndir. „Við fundum þar eitt-
hvað sem okkur fannst áhugavert
og unnum út frá því. Ég fann þar
eitthvert plasttengt efni sem mig
langaði að vinna með þannig að ég
fór þaðan í Seglagerðina og fékk
alls kyns afganga frá þeim þann-
ig að línan mín var úr dúkaplasti
eins og er notað í tjaldvagna,“
lýsir Hanna Margrét og bætir við
að það hafi alls ekki verið auðvelt
að sauma úr plastinu. „Ég saumaði
til dæmis einn jakkann held ég sex
sinnum þar til hann varð flottur.“
Í fötin notaði Hanna Margrét
einnig prjónaföt úr Rauða kross-
inum. „Hugmyndin var að vinna
bæði með prjón og plast, mjúk efni
með hörðum. Ég klippti meðal ann-
ars gamla afaprjónapeysu niður í
strimla, saumaði prjónið svo við
gúmmíið og gerði jakka úr þessu.
Svo gerði ég annan jakka úr fern-
um buxum þannig að þetta var svo-
lítð púsl.“
rEynsla í útlöndum
Stíll Hönnu Margrétar sjálfrar
skín í gegn í hönnun hennar upp að
vissu marki en henni þykir gaman
að sjá aðra í einhverju sem hún
hefur hannað. „Og þá sérstaklega
í einhverju sem mér finnst töff
og hipp og kúl en ég myndi ekki
endilega púlla. Sjálfri finnst mér
gaman að klæða mig í flott föt en
mér verður að líða vel í þeim. Stíll-
inn minn fer yfirleitt eftir skapinu
og dagsforminu,“ lýsir hún.
Hanna Margrét hefur haft
áhuga á hönnun frá því hún tók
þátt í Stíl, árlegri hönnunarkeppni
plast ásamt ull
í aðalhlutvErki
Draumur Hönnu Margrétar Arnardóttur nema í fatahönnun er að
vinna við fagið í framtíðinni og vera með eigin merki. Á nýlegri
tískusýningu gerði hún línu þar sem prjón og plast runnu saman í eitt.
Stíll Hönnu Margrétar sjálfrar skín í gegn í hönnun hennar upp að vissu marki.
„Sjálfri finnst mér gaman að klæða mig í flott föt en mér verður að líða vel í þeim.
Stíllinn minn fer yfirleitt eftir skapinu og dagsforminu,“ lýsir hún.
MYND/HANNA ANDRÉSDÓTTIR
Fötin í línu Hönnu Margrétar voru
mestmegnis úr plasti. MYND/ERNIR
Hanna Margrét gerði þrjú lúkk sem sýnd voru á tískusýningu annars árs nema við
LHÍ í samstarfi við Rauða krossinn á dögunum.
félagsmiðstöðva, þegar hún var
í grunnskóla. Eftir það lærði hún
grunn í fatahönnun í FG og átti
sér þann draum að komast inn í
Listaháskólann. Sem hún svo gerði.
„Ég komst líka inn í Margrethe-
skólann í Danmörku en ákvað að
vera hér og sé ekki eftir því.“
Eftir átta vikna starfsnám á
vegum skólans í París í fyrra varð
Hönnu Margréti ljóst að hana
langar í frekara nám í faginu eða
í meira starfsnám. „Í París upp-
lifði ég hvernig þessi heimur er.
Ég var í átta vikna starfsnámi
hjá fatahönnuði þar sem ég hjálp-
aði við að undirbúa tískusýningu,
skar út efni, fór í sendiferðir og
fékk svo að upplifa þetta af alvöru
á sýningunni við að klæða módel-
in baksviðs. Það er mikið stress
sem fylgir þessu og mikil vinna
en ótrúlega skemmtileg. Mig lang-
ar að fara út og fá reynslu og sjá
hvernig þetta virkar allt. Það er
hundrað prósent öruggt að ég vil
vinna við fatahönnun í framtíðinni
og draumurinn er að vera með eitt-
hvað eigið.“
Það var ekki
auðvelt að sauma
úr plastinu. Ég saumaði
einn jakkann sex sinnum
þar til hann varð flottur.
Hanna Margrét Arnardóttir
Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook
Opið virka daga kl
. 11–18
Opið laugardaga k
l. 11-15
Alltaf jafn
vinsælar
Slim fit
leggingsþröngar
Háar í mittið og
mikið stretch
Verð 12.900 kr.
3 síddir í svörtu:
75 + 80 + 85 cm.
2 síddir í hvítu,
gráu og sandbrúnu:
75 + 80 cm.
1 sídd í galladökk-
bláu: 82 cm.
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Síðar peysur
Str. 42-56
kr. 9.800.-
litir: svart,
dökkblátt
kr. 10.900.-
einn litur
Endalaust
ENDALAUS
GSM
1817 365.is
3 1 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r4 F ó l k ∙ k y n n I n G a r b l a ð ∙ T í s k a
3
1
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:2
2
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
E
9
-4
8
6
0
1
8
E
9
-4
7
2
4
1
8
E
9
-4
5
E
8
1
8
E
9
-4
4
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K