Fréttablaðið - 31.03.2016, Síða 44
„Við keyptum Markholt í nóvem-
ber vitandi að það þyrfti að gera
heilmikið. Við skiptum um þak,
rifum niður veggi og innrétting-
ar og lögðum hita í gólfin. Þetta
hefur verið stanslaus vinna en við
sjáum fyrir endann á þessu,“ segir
Guðfinna Birta Valgeirsdóttir en
hún og kærastinn, Stefán Pálsson,
standa á haus þessar vikurnar í
framkvæmdum.
Raunhæf markmið
„Við erum langt komin með eldhús-
ið og baðherbergið er að verða til-
búið en við bæði stækkuðum bað-
herbergið og opnuðum eldhús-
ið meira. Núna er verið að vinna í
þakinu að innan og leggja lokahönd
á forstofuna. Stefán er smiður og
pabbar okkar beggja eru þaulvan-
ir og hjálpa okkur mikið. Ég er lítið
í þessu sjálf, komin 32 vikur á leið.
Það er ómetanlegt að geta fengið
svona mikla aðstoð. Við vonumst
til að geta flutt inn áður en barn-
ið fæðist,“ segir Guðfinna hress og
bætir við að nauðsynlegt sé að setja
sér raunhæf markmið þegar ráðist
er í framkvæmdir sem þessar.
„Mitt helsta ráð til fólks í sömu
sporum er að gera sér strax grein
fyrir því að áætlaður innflutnings-
dagur á aldrei eftir að standast. Við
þurftum til dæmis að bíða eftir
þurri helgi til að skipta um þakið
og það er nánast ómögulegt á þess-
um tíma árs,“ segir hún hlæjandi.
„Annað ráð er svo að hafa augun
opin fyrir tilboðum og kaupa ekki
allt í einum rykk.“
Bloggar um framkvæmdirnar
Guðfinna heldur úti blogginu Guð-
finnabirtablogspot.is um fram-
kvæmdirnar og segir bæjarbúa
fylgjast með framkvæmdunum í
Markholti.
„Með blogginu langaði mig bæði
til að halda utan um framfarirnar
og eins er húsið þekkt í Mosfellsbæ.
Það mun taka miklum breytingum
og okkur finnst því gaman að Mos-
fellingar geti fylgst með hvað við
erum að gera. Það fylgjast marg-
ir með og tala um þetta í bænum
sem mér finnst skemmtilegt. Það
hafa líka margir sagt mér sögur
sem þeir eiga um húsið og lýst því
hvernig þar var innanstokks áður.
Það finnst mér dýrmætt.“
Standsetja gamalt hús í Mosó
Guðfinna Birta Valgeirsdóttir og Stefán Pálsson festu kaup á gömlu húsi í Mosfellsbæ sem þau eru að breyta og bæta. Þau vonast til þess
að geta flutt inn áður en þeirra fyrsta barn fæðist, eftir átta vikur og segja nauðsynlegt að setja sér rauhæf markmið.
Baðherbergið fyrir breytingar.
Mynd/Guðfinna Birta
Guðfinna Birta Valgeirsdóttir stendur
í framkvæmdum með kærastanum,
Stefáni Pálssyni, en þau festu kaup
á gömlu húsi í Mosfellsbæ sem taka
þurfti í gegn. Mynd/VilhelM
Baðherbergið var stækkað örlítið og lagt nýjum flísum. Mynd/VilhelM
Staðan á eldhúsinu í dag. eldavélin komin á annan stað, nýir skápar og borðplata.
Mynd/VilhelM
Veggir brotnir niður inn í eldhúsið.
Mynd/Guðfinna Birta
flísar fyrir vandláta
PORCELANOSA
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
húSnæði oG Viðhald
31. mars 20164
3
1
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:2
2
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
E
9
-9
7
6
0
1
8
E
9
-9
6
2
4
1
8
E
9
-9
4
E
8
1
8
E
9
-9
3
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K