Fréttablaðið - 31.03.2016, Síða 56

Fréttablaðið - 31.03.2016, Síða 56
Í gullsmíðinni er alltaf verið að pússa silfrið svo það verði slétt og hreint og í raun reynt að stjórna efninu. Við látum stjórnleysið ráða,“ segir Ágústa Sveinsdótt- ir vöruhönnuður en hún skipar glænýtt hönnunarstúdíó, Alvöru, ásamt Elísabetu Karlsdóttur fata- hönnuði. Ágústa og Elísabet sýndu sína fyrstu línu á HönnunarMars, skartgripalínuna Silfru sem bygg- ir á óvenjulegum framleiðsluað- ferðum. „Silfra er fyrsta línan okkar og sprett- ur út frá þeirri grunnhugmynd að fara óhefðbundn- ar leiðir í skart- gripagerð. Í stað þess að steypa silfr- ið í mót, steypum við það í vatni. Úr verða alls konar náttúruleg og hrá form í lífrænum litbrigð- um. Enginn skartgripur í línunni er eins,“ útskýrir Ágústa. „Lit- brigði sem myndast í hita í silfr- inu eru einnig venjulega pússuð af eða hreinsuð með sýru en við leyf- um þeim að vera. Með tímanum dökknar silfur og litirnir breyt- ast og við viljum sjá fegurðina í því. Það er ekki galli heldur eykur á fegurð hlutarins.“ Línan er væntanleg á mark- að eftir góðar viðtökur á Hönn- unarMarsinum. Ágústa segir hvern grip verða einstakan og þannig öðlist þeir meira vægi og tilfinningalegt gildi hjá tilvonandi eigend- um gripanna. Það verði eins konar fjársjóðsleit að velja grip úr Silfru-línunni. „Silfur er dýrt efni sem keypt er eftir vigt. Okkur finnst spennandi að með þeirri aðferð að steypa í vatni verða til alls konar molar sem við svo búum til skartgrip úr. Molarnir verða auðvitað allir mis- þungir og því þarf að verðleggja hvern skartgrip fyrir sig. Sá sem kaupir getur í raun valið sér mola og ráðið hvort hann verður hringur, hálsmen, eyrnalokkur eða annað. Þetta yrði ný leið til að kaupa sér skartgripi beint út frá hráefninu, svolítið eins og fjár- sjóðsleit.“ Fleira er á döfinni hjá Alvöru og segir Ágústa þær Elísabetu munu leggja áherslu á fatnað og fylgihluti. Vörur Alvöru verði allar unnar út frá eiginleikum hráefnisins og þær muni leita uppi nýjar leiðir til að vinna hráefnið. StjórnlauS SilfurSmíði alvöru Hönnuðirnir Ágústa Sveinsdóttir og Elísabet Karlsdóttir sýndu sína fyrstu skartgripalínu á nýliðnum HönnunarMars undir merkjum Alvöru. Þær beita óhefðbundnum aðferðum við smíðina og steypa silfrið í vatni. Ágústa Sveinsdóttir stofnaði hönn- unarstúdíóið Alvöru ásamt Elísabetu Karlsdóttur og frumsýndu þær sína fyrstu skartgripalínu á HönnunarMars, Silfru. Mynd/StEfÁn „Í gullsmíðinni er alltaf verið að pússa silfrið svo það verði slétt og hreint og í raun reynt að stjórna efninu. Við látum stjórnleysið ráða.“ Mynd/AlVArA Silfrið er steypt í vatni svo enginn moli verður eins. „litbrigði sem myndast í hita í silfrinu eru einnig venjulega pússuð af eða hreinsuð með sýru en við leyfum þeim að vera.“ „Þetta verða allt ólík verkefni og við ætlum ekki að takmarka okkur við neitt ákveðið. Okkur finnst spennandi að horfa á efni á nýjan hátt og nota til dæmis efni sem eru vannýtt og fara jafnvel til spillis.“ nánar má forvitnast um hönnunar- stúdóið Alvöru á alvarareykjavik.is commaIceland EINN, TVEIR OG KAUPHLAUPIÐ ER HAFIÐ Þvottur getur haft áhrif á stærð fata og því þarf að taka tillit til þess þegar þau eru keypt. Í sumum til- fellum er því snjallt að kaupa fötin aðeins of stór. Föt sem gott er að séu í stærri kantinum þegar þau eru keypt eru þessi: Stuttermabolir. Flestir bolir eru úr bómull og hlaupa því stund- um í þvotti. Ef bolirnir eru keypt- ir aðeins of stórir þarf ekki að hafa áhyggjur af því að þeir verði of litlir þótt þeir fari í þvott. Skyrtur. Það sama á við hér og um bolina. Skyrturnar minnka þó yfirleitt minna en bolir en gall- inn er að erfitt er að vita hvar þær minnka, það gætu verið ermarn- ar, kraginn eða um axlirnar og því betra að skyrtan sé í stærra númeri. Peysur úr ull. Ullarþræðirnir í flíkinni þéttast oft í þvotti þannig að gott er að hún sé vel við vöxt. Það er líka meira kósí. Sokkar. Sama hér, þeir eru líka yfirleitt úr bómull sem þýðir að þeir minnka aðeins í þvotti. Og þar sem enginn vill vera í of litlum sokkum og hætta á að eðli- legt blóðflæði til tánna minnki er betra að kaupa þá í stærra númeri en minna. Sumarkjólar. Það er frekar svekkjandi þegar sæti, víði sum- arkjóllinn sem einu sinni passaði fullkomlega skreppur saman um nokkra sentimetra í þvotti. Kaup- ið hann því aðeins of stóran svo ekki þurfi að handþvo kjólinn um alla tíð. Of stórt er betra yfirleitt er betra að kaupa stuttermaboli aðeins of stóra og víða. 3 1 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r10 F ó l k ∙ k y n n I n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G a r b l a ð ∙ T í s k a 3 1 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :2 2 F B 0 8 8 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 E 9 -7 9 C 0 1 8 E 9 -7 8 8 4 1 8 E 9 -7 7 4 8 1 8 E 9 -7 6 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 8 8 s _ 3 0 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.