Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2014, Síða 17
Fréttir Erlent 17Vikublað 7.–9. október 2014
milljarðamæringar sem byrjuðu á núlli
n Fólkið sem byrjaði með tvær hendur tómar en syndir í seðlum í dag n Einn ólst upp á munaðarleysingjaheimili og annar vann við uppvask
Hrökklaðist
úr námi
Nafn: Larry Ellison
Þekktur fyrir: Að stofna Oracle.
Eignir: 48 milljarðar dollara
Larry fæddist í Brooklyn í New
York og var sonur einstæðrar
móður. Hann var alinn upp
af frænku sinni og frænda í
Chicago. Þegar frænkan lést var
Ellison í framhaldsskóla. Hann
hrökklaðist úr námi og flutti til
Kaliforníu, þar sem hann vann,
við hin og þessi störf, í einhver
átta ár. Í Kaliforníu stofnaði
hann hugbúnaðarfyrirtækið
Oracle, árið 1977, sem í dag er
eitt öflugasta fyrirtæki heims
á því sviði. Hann hefur stigið til
hliðar sem framkvæmdastjóri
fyrirtækisins en lifir lúxuslífi.
Fékk ekki vinnu á KFC
Nafn: Jack Ma
Þekktur fyrir: Alibaba
Eignir: 20,2 milljarðar dala
Jack Ma hefur verið talsvert í umræðunni
að undanförnu og það ekki að ástæðu-
lausu. Hann er maðurinn á bak við stærsta
hlutafjárútboð sögunnar. Það gerðist þegar
vefverslunarfyrirtæki hans, Alibaba, fór á
hlutabréfamarkað á dögunum. Ma er fæddur
í Hangzhou í Kína og ólst upp í sárri fátækt.
Hann reyndi að fá starf á skyndibitastað
KFC í borginni en án árangurs. Ma, sem er
fimmtugur, er lærður enskukennari og árið
1995 kynntist hann internetinu í fyrsta skipti
þegar hann heimsótti Bandaríkin. Ma virðist
hafa séð tækifærin sem internetið bauð upp á
og fjórum árum síðar, árið 1999, stofnaði hann
Alibaba.com – vefverslunarfyrirtæki sem
svipar til Amazon.com. Uppgangur vefjarins
hefur verið ótrúlegur á undanförnum árum. Til
marks um það er Ma nú ríkasti maður Kína og
um leið einn ríkasti maður heims.
Seldi eldspýtur
Nafn: Ingvar Kamprad
Þekktur fyrir: IKEA
Eignir: 3,9 milljarðar dala
Það þekkja allir Íslendingar IKEA og ef
til vill manninn sem stofnaði fyrirtækið,
Ingvar Kamprad. Kamprad, sem er 88 ára,
þykir hafa haldið einkar vel á spilunum á
sínum ferli í viðskiptum. Hann er fæddur í
Svíþjóð og ólst að mestu upp á sveitabæ
í Svíþjóð. Þegar hann var sjö ára seldi
hann nágrönnum sínum á bóndabýlinu
eldspýtur, liti og afmæliskort. Ingvar var
ekki nema 17 ára þegar hann stofnaði lítið
fyrirtæki, IKEA. Fyrirtækið óx hægt og
rólega en hjólin fóru að snúast af alvöru
þegar Ingvar ákvað að hefja sölu á hús-
gögnum þegar hann var 21 árs. Fyrirtækið
hélt áfram að vaxa og dafna og í dag eru
verslanir IKEA á heimsvísu allavega 340 í
42 löndum. Fyrirtækið veltir stjarnfræði-
legum upphæðum á hverju ári.
Vann fegurðar-
samkeppni
Nafn: Oprah Winfrey
Þekkt fyrir: Sjónvarpsþætti
Eignir: 3 milljarðar Bandaríkjadala
Oprah Winfrey hefur verið fastagestur á
sjónvarpsskjáum ófárra jarðarbúa undanfarin
ár, eða áratugi jafnvel. Oprah ólst upp í fátækt
í Mississippi en afrekaði það að komast á
skólastyrk í Tennessee State-háskólann eftir
að hafa unnið ræðukeppni í miðskóla. Þegar
hún var sautján ára tók hún þátt í fegurðar-
samkeppni, Miss Black Tennessee, og stóð
uppi sem sigurvegari. Sjónvarpsferill hennar
hófst á áttunda áratugnum, þegar Oprah var
rúmlega tvítug, og las hún til að mynda fréttir
fyrir WLAC-TV -sjónvarpsstöðina í Nashville.
Árið 1983 flutti hún til Chicago þar sem ferill
hennar í sjónvarpi fór á flug fyrir alvöru þegar
hún var ráðin sem umsjónarmaður spjallþátt-
ar á WLS-sjónvarpstöðinni í Chicago. Óhætt
er að segja að móttökurnar hafi verið góðar og
árið 1986 fékk þátturinn nýtt nafn, The Oprah
Winfrey Show. Vinsældir þáttarins jukust
jafnt og þétt og varð hann loks vinsælasti
spjallþáttur Bandaríkjanna.
Föðurlaus fjögurra ára
Nafn: Roman Abramovich Þekktur fyrir: Að eiga Chelsea Eignir: 9,5 milljarðar dollara
Abramovich fæddist árið 1966 í Saratov í Rússlandi. Faðir hans lést þegar hann var fjögurra
ára en móðir hans þegar hann var 18 ára. Frændi hans tók unglinginn í fóstur í Moskvu auk þess
sem hann var reglulega á heimili ömmu sinnar og afa í Komi, norðarlega í landinu. Hann gekk í
skóla, Russia‘s Industrial Institue, og hóf í kjölfarið að stunda viðskipti með olíuafurðir, í vestur-
hluta Síberíu. The Guardian hefur greint frá því að Abramovich hafi auðgast þegar hann hlaut
náð fyrir augum auðjöfursins Boris Berezovsky. Þetta var árið 1992, þegar innreið kapítalism-
ans var hafin í landinu. Berezovsky flúði Rússland eftir ákæru vegna fjársvika. Abramovich tók
við veldi hans, þar á meðal Sibneft, fimmta stærsta olíufélagi í landinu, Rusal, einum stærsta
álframleiðanda í heimi, og Aeroflot, ráðandi rússnesku flugfélagi. Í kjölfarið fór hann að fjár-
festa sjálfur. Hann er í dag einn auðugasti maður Rússlands og á allt sem hugurinn girnist; eitt
stærsta knattspyrnufélag í Evrópu, Boeing 767 og risastóra snekkju, svo eitthvað sé nefnt.
Vaskaði upp
Nafn: Shahid Khan
Þekktur fyrir: Að eiga íþróttafélög
Eignir: 4,4 milljarðar dala
Shahid Khan er fæddur í Lahore í Pakistan
árið 1950. Þegar hann var á sautjánda
aldursári, árið 1967, flutti hann til Banda-
ríkjanna til að leggja stund á verkfræði-
nám í háskólanum í Illinois. Hann kom til
Bandaríkjanna með tvær hendur tómar
og sá sér farborða með því að vaska upp á
skyndibitastað. Launin fyrir uppvaskið voru
ekki há, rúmar 200 krónur á núverandi gengi
á tímann. Hann entist ekki lengi í uppvaskinu
því honum bauðst annað starf samhliða
verkfræðinámi sínu hjá fyrirtæki sem kallast
Flex-N-Gate. Fyrirtækið framleiddi meðal
annars varahluti í bíla. Það var svo árið 1980
að hann keypti fyrirtækið og þá fóru hjólin að
snúast fyrir alvöru. Khan hefur alla tíð verið
mikill íþróttaunnandi og árið 2011 keypti hann
bandaríska NFL-liðið Jacksonville Jaguars.
Þá keypti hann enska úrvalsdeildarfélagið
Fulham í júlí 2013. Talið er að kaupverðið á fé-
laginu hafi numið 150–200 milljónum punda.
Vildi afreka
eitthvað
Nafn: Howard Schultz
Þekktur fyrir: Starbucks
Eignir: 2,1 milljarður dala
Schultz er þekktastur fyrir að vera
eigandi stærstu kaffihúsakeðju heims,
Starbucks. Þó að Schultz syndi í seðlum
í dag þurfti hann að hafa fyrir hlutunum
í æsku. Schultz er frá Brooklyn í New
York og bjó hann með fjölskyldu sinni í
lítilli blokkaríbúð sem ætluð var fólki
sem hafði lítið á milli handanna. Í viðtali
við breska blaðið Mirror ekki alls fyrir
löngu sagði Schultz að hann hefði viljað
afsanna að fólk sem býr í fátækt geti
ekki brotist út úr henni. Fyrsta skrefið
hjá Schultz var að standa sig í skólanum
og svo fór að hann komst í háskóla í
Michigan á fótboltastyrk á unglingsár-
unum. Eftir útskrift fékk hann vinnu hjá
fyrirtæki að nafni Xerox, eða allt þar til
honum bauðst að kaupa kaffihúsakeðj-
una Starbucks. Á þeim tíma var
fyrirtækið meðalstórt, eða með 60
útibú í Bandaríkjunum. Hann varð
stjórnarformaður Starbucks árið 1987
og síðan þá hefur fyrirtækið vaxið og
dafnað. Í dag eru kaffihús Starbucks á
heimsvísu rúmlega 16 þúsund.
Vann þrjú störf
Nafn: Do Won Chang og Jin Sook
Þekktur fyrir: Að stofna Forever 21
Eignir: 5,2 milljarðar dollara
Hjónin Do Won Chang og Jin Sook stofn-
uðu vörumerkið heimsþekkta, Forever 21,
og auðguðust gríðarlega á því að fram-
leiða og selja föt. Þau hafa ekki alltaf haft
það eins gott. Eftir að Do Won flutti til
Ameríku, frá Kóreu, árið 1981, framfleytti
hann sér með því að vera í þremur störfum
á sama tíma. Hann vann sem húsvörður,
bensínafgreiðslumaður auk þess að vinna
sem þjónn á kaffihúsi. Þau hjónin opnuðu
svo, þremur árum síðar, sína fyrstu
fataverslun. Síðan þá hefur mikið vatn
runnið til sjávar. Þau reka 480 verslanir
víðs vegar um heiminn og selja föt fyrir 3
milljarða dollara á ársgrundvelli.
Bjó í bílnum
Nafn: John Paul DeJoria Þekktur fyrir: Hárvöru-
merkið Paul Mitchell Eignir: 3,2 milljarðar dollara
John Paul DeJoria byrjaði ungur að vinna. Tíu ára
gamall hjálpaði hann til heima fyrir með því að selja
jólakort og dagblöð. Fjölskyldan bjó við þröngan kost
í Bandaríkjunum, enda innflytjendur; móðir hans var
frá Grikklandi og faðirinn frá Ítalíu. DeJoria var send-
ur á fósturheimili eftir að foreldrar hans skildu. Hann
gekk í herinn eftir nokkur misjöfn ár í hverfisgengi en
þegar stærðfræðikennarinn sagði honum að það yrði
ekkert úr honum með sama áframhaldi ákvað hann
að breyta til. Hann gekk í skóla og sinnti svo her-
skyldu í um tvö ár, í sjóhernum. Að þeirri vist lokinni
vann hann meðal annars hjá hárvöruframleiðandan-
um Redken. Hann var rekinn úr starfi eftir ágreining
um markaðssetningu. Hann tók í kjölfarið 700
dollara lán, um 85 þúsund krónur, og stofnaði John
Paul Mitchell Systems, með samnefndum manni.
Hann hafði lítið á milli handanna og hóf reksturinn
með því að ganga hús úr húsi til að selja hárvörur.
Á þeim tíma bjó hann í bílnum sínum. Hann er í dag
vellauðugur fjárfestir og á meðal annars 70 prósenta
hlut í The Patron Spirits Company, sem framleiðir til
að mynda vinsæla gerð tekíla.
5 mánuði
í haldi
Breska kennaranum David
Bolam hefur verið sleppt úr haldi
en hann var handtekinn af víga
mönnum í Líbíu í maí síðastliðn
um. Bolam, sem er 63 ára, starf
aði sem kennari í Bengazi í Líbíu
þegar honum var rænt. Breska
utanríkisráðuneytið segir að
Bolam sé við góða heilsu og kom
inn aftur í faðm fjölskyldu sinnar.
Að sögn breska ríkisútvarpsins,
BBC, er talið að lausnargjald hafi
verið greitt fyrir Bolam en óvíst
um hve háa upphæð var að ræða.
Bolam hafði starfað í Líbíu í sjö ár
áður en honum var rænt.
Ætlar á alla
Starbucks-staði
í heiminum
Bandaríkjamaðurinn Winter,
áður Rafael Lozano, hefur sett sér
það háleita markmið að heim
sækja öll útibú kaffihúsakeðjunn
ar Starbucks – hvar sem þau eru.
Winter hefur raunar þegar heim
sótt 11.733 útibú þegar þetta er
skrifað og varið rúmum hundrað
þúsund Bandaríkjadölum í verk
efnið. Winter fékk hugmyndina
þegar hann sat við kaffidrykkju
á kaffihúsi Starbucks í Texas í
Bandaríkjunum árið 1997. Vanda
málið er að á þeim tíma voru
útibú Starbucks aðeins 1.400
en í dag eru þau orðin rúmlega
17.000. „Á þeim tíma virtist þetta
ekki vera svo mikið mál. Ef ég
hefði vitað að stöðunum myndi
fjölga svona gríðarlega hefði ég að
líkindum ekki lagt af stað,“ segir
hann við Telegraph. Engan bilbug
er á Winter að finna og hann ætl
ar að halda áfram og ná markmiði
sínu. „Starbucks er ekki að fara
neitt. Það gæti vel farið svo að ég
verði orðinn gamall maður þegar
verkefninu lýkur.“
Loftárásirnar
skila of litlu
Loftárásirnar á vígamenn Ís
lamska ríkisins, sem leiddar
hafa verið af Bandaríkjamönn
um, skila of litlum árangri. Þetta
er mat Kúrda sem barist hafa
við liðsmenn Íslamska ríkisins í
norðurhluta Sýrlands að undan
förnu. Þetta sjáist meðal annars
á því að árásirnar hafi ekki dregið
tennurnar úr liðsmönnum sam
takanna og ekkert hafi dregið úr
sókn þeirra að bænum Kobani
sem er skammt frá landamærum
Tyrklands. Þeir hafi nálgast bæ
inn óðfluga undanfarna daga og
virðist loftárásirnar ekki breyta
neinu um þær fyrirætlanir Ís
lamska ríkisins að ná bænum á
sitt vald.