Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2014, Qupperneq 24
Vikublað 7.–9. október 201424 Neytendur
Þ
að sýnir sárgrætilega
hvað vantar samkeppni
á þennan markað. Það er
mjög erfitt fyrir neytendur
að sniðganga nema þá að
hætta alveg að kaupa mjólkurvörur,“
segir Jóhannes Gunnarsson, for
maður Neytendasamtakanna, um
stöðu Mjólkursamsölunnar (MS)
en samtökin telja ekki ólíklegt að
neytendur grípi til þess ráðs að
sniðganga vörur fyrirtækisins í ljósi
umræðunnar í kjölfar úrskurðar
Samkeppniseftirlitsins á dögunum.
Þó það sé ekki ómögulegt, þá gæti
það reynst þrautin þyngri, ætli fólk
að neyta mjólkurvöru yfirhöfuð.
Aðför að neytendum
Samkeppniseftirlitið sektaði sem
kunnugt er MS um 370 milljónir
króna fyrir brot á samkeppnislögum
með því að hafa misnotað markaðs
ráðandi stöðu sína á markaði. Komst
eftirlitið að þeirri niðurstöðu að MS
hafi beitt smærri keppinauta mis
munun með því að selja þeim hrá
mjólk á 17% hærra verði en fyrir
tæki sem tengd eru MS greiddu
og þar með haft hamlandi áhrif á
samkeppni á markaði. Á þingi Neyt
endasamtakanna um síðustu helgi
var samþykkt ályktun þar sem brot
MS voru fordæmd sem „aðför að
neytendum“ auk þess sem líkur voru
leiddar að því að neytendur myndu
sniðganga vörur fyrirtækisins í fram
haldinu. Jóhannes leggur þó áherslu
á að það sé hvers og eins neytanda að
ákveða slíkar aðgerðir. Hann segir að
það geti þó reynst afar erfitt, enda MS
með 95% markaðarins og markaðs
ráðandi staða fyrirtækisins á flestum
sviðum mjólkurvöru líkust einokun.
Neytendur greiða tvöfalt
Þeir sem talað hafa fyrir sniðgöngu
aðgerðum, meðal annars á netinu,
benda á að þeir hafi ekki áhuga á að
eiga viðskipti við MS og þar með í
raun greiða 370 milljóna króna sekt
ina úr eigin vasa. Jóhannes bendir á
að neytendur geti endað með því að
greiða tvöfalt fyrir brot MS.
„Við höldum því fram að fyrir
tæki reyni alltaf að koma öllum
kostnaðarauka út í verðlagið. Þau
eiga að sjálfsögðu misauðvelt með
það, sum eru í harðri samkeppni
en önnur, eins og Mjólkursamsalan
sem er með nánast einokun, eiga
auðveldara með að koma þessu út í
verðlagið. Það má segja sem megin
reglu að fyrirtæki leitast alltaf við að
koma kostnaðarauka, jafnvel sekt
um vegna samkeppnislagabrota, út
í verðlagið og þá má segja að neyt
endur séu búnir að borga tvöfalt.
Fyrst fyrir tjónið sem brot viðkom
andi fyrirtækis veldur neytendum
og síðan þegar þeir eru farnir að
borga líka sektina. Þá eru það neyt
endur en ekki þeir sem frömdu
brotið sem eru farnir að borga sekt
ina og er eitthvað réttlæti í þessu?“
spyr Jóhannes.
Fólkið á bak við brotin
Komin er heimild í samkeppnis
lögum sem til þess er fallin að láta
þá aðila sem taka ákvörðunina um
lögbrotið sæta ábyrgð. „Það er ekki
fyrirtækið sjálft sem tekur ákvörðun
um að brjóta lög, það eru einstak
lingar innan fyrirtækisins. Við köll
um eftir því vegna þess að við erum
sannfærð um að það hafi miklu
meiri fælingarmátt en að leggja
sektir á fyrirtæki sem geta síðan velt
fylgjandi kostnaði út í verðlagið,“
segir Jóhannes.
En eru líkur á því núverandi
kerfi verði breytt í kjölfar úrskurðar
Samkeppniseftirlitsins? Jóhannes
kveðst ekki eiga von á öðru en að
hann verði til þess að felld verði út
úr búvörulögum þau undanþágu
ákvæði sem mjólkuriðnaðurinn
býr við samkvæmt samkeppnislög
um. Neytendasamtökin gera síðan
þá kröfu að samkeppni á þessum
markaði verði aukin og nefnir Jó
hannes tvær leiðir til þess.
„Að brjóta upp fyrirtæki eða eins
og í þessu tilviki þar sem markaður
er verndaður fyrir innflutningi með
háum tollum og kvótum, að heim
ila innflutning á lágum tollum eða
jafnvel engum. Það er beint hags
munamál neytenda að það sé virk
samkeppni á helst öllum mörkuð
um. Og við líðum svo mikið fyrir
smæð markaðarins hérna að það
væri veruleg búbót fyrir neytendur
að fá aukinn innflutning. Síðan er
það neytandans að velja.“ Þess ber
að geta að Einar Sigurðsson, for
Erfitt að sniðganga mjólkurrisann
n Hvað annað er í boði? n MS teiknar upp kælana í verslunum n Keppinautar segjast mæta afgangi n Neytendasamtökin búast við að vörur MS verði sniðgengnar
Biobú Lífrænu mjólkurvörurnar fá mesta plássið í hillunni í þessu tiltekna
dæmi þar sem hægt er að fá jógúrtvörurnar og skyrið frá Biobú. En ef neytandi vill skipta
úr MS í Biobú þá mun það kosta aðeins meira. DV bar saman verð á jarðarberjajógúrt,
Biobú-dósin kostaði 114 krónur en Léttjógúrt MS 103 krónur. Lífrænar sérvörur kosta
vanalega aðeins meira svo þessi verðmunur er kannski ekki mjög íþyngjandi.
Algjörir yfirburðir Hér gefur að líta mjólkurkælinn í
verslun Krónunnar á Granda. Eins og sjá má hefur MS tögl og hagldir í hillunum, vöruúrval
fyrirtækisins mikið og flestar vörur þeirra að finna í hillum verslana. Hins vegar fá litlu keppinautarn-
ir úthlutað ansi litlu plássi til samanburðar og ekki allar vörutegundir þeirra fáanlegar. Þessi mynd er
aðeins til glöggvunar en gefur vísbendingu um þá yfirburði sem vörur MS hafa í kælum verslana.
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is Hvað er
Spaceman?
Notað til að hafa áhrif á
„kauphegðun viðskiptavina“
Á vef MS er
fjallað um starf
verslunarráðgjafa
sem heldur utan
um teikningar
sem unnar eru í
Spaceman-for-
ritinu. Er forritið
sagt notað til að
greina vöruval
út frá sölusögu,
framlegð,
rýrnun og endur-
sendingu. Forritið hefur verið notað í rúman
áratug hjá MS og þar kemur fram að til eru
„teikningar af öllum helstu verslunum á
landinu.“ Um uppröðun á vöru eftir þessum
teikningum segir að vörunum sé raðað upp
með „markaðsfræðilegri hugsun“ og að
með Spaceman sé „hægt að hafa áhrif á
kauphegðun viðskiptavina.“
Miðað við að þessu öfluga verkfæri sé
beitt af fyrirtæki með markaðsráðandi
stöðu er kannski ekki skrýtið að keppi-
nautarnir séu óhressir.
Kú
Sérhæfir sig
í framleiðslu
á hvers kyns
ostum á borð við
Ljúfling, Öðling,
Bitling og Fiðring
auk þess sem fleiri afurðir eru væntan-
legar eins og fetaostur og salatostar.
Arna
Sérhæfir sig í
framleiðslu á
laktósafríum
mjólkurafurðum
fyrir þá sem
finna fyrir óþægindum við neyslu á
hefðbundnum mjólkurafurðum. Arna
býður upp á nettmjólk, ab-mjólk,
ab-jógúrt (jarðarberja, karamellu og
peru), ab-skyr (bláberja, jarðarberja
og vanillu), rjóma og matarrjóma.
Biobú
Sérhæfir sig í vinnslu
á lífrænum mjólkur-
afurðum og framleiðir
sex tegundir af jógúrt
(hreina, jarðarberja,
múslí, mangó, kaffi og kókos). En
einnig gríska jógúrt, ab-jógúrt, skyr,
skyrdrykk, smjör, rjóma (sem seldur
er í völdum búðum) og ís í þremur
tegundum (jarðarberja, mangó og
skógarberjaís).
„Þeir taka besta
plássið fyrir sig og
við erum teiknaðir upp
úti í horni og erum að
fá lakara pláss.
Búist við sniðgöngu Jóhannes Gunnars-
son, formaður Neytendasamtakanna, segir
að þar á bæ búist menn við því að neytendur
muni reyna að sniðganga vörur MS.
Fá lakara pláss í kælinum Ólafur segir
MS teikna upp mjólkurkæla verslana með
sérstöku forriti og það sé sífelld barátta fyrir
minni keppinauta að komast þar að.