Málfregnir - 01.12.2001, Blaðsíða 8

Málfregnir - 01.12.2001, Blaðsíða 8
tungna í vísindum sé þar dragbítur á fram- þróun, er ástæða til að staldra við. Frekar en draga þær ályktanir, sem dregnar hafa verið, af kostum þess að hafa alþjóðamál, virðist mega snúa dæminu við og halda því fram að notkun alþjóðatungunnar latínu hafi á sínum tíma valdið stöðnun og einangrun vísind- anna frá fólkinu. Þegar menn tóku að rita á móðurtungum sínum hafi hins vegar leyst afl úr læðingi sem varð til þess að gróska hljóp í vísindin. F ramtíðarstefnan Innan íslenskrar málnefndar hefur að undanförnu verið unnið að því að móta til- lögur um stefnu í málræktarmálum og mál- efnum tungunnar og þegar rýnt er í fram- tíðina eru þar settir upp þrír „kostir" um þróun málstaðla á Islandi á 21. öldinni. Fyrsti kosturinn er sá að samhengi ís- lensks ritmáls haldist og saga íslenskrar tungu haldi áfram með svipuðum hætti. Þetta fæli það í sér að áfram yrði lögð rækt við íslensku með svipuðunr hætti og verið hefur. Annar kosturinn, sem minnst er á, er að til verði nýr ritmálsstaðall, eins konar ný- íslenska. Þetta gæti gerst ef menn breyta að marki þeirri stefnu sem viðurkennd hefur verið (t.d. því að nota frekar innlend orð eða vel aðlöguð tökuorð en hráa útlensku). Einnig yrðu nýjungar í framburði, beygingu og setningaskipan teknar inn í ritmálið svo fljótt sem þurfa þætti, t.d. til að auðvelda nýjum kynslóðum að ná tökum á rituðu máli. Þetta yrði allt sett undir stefnu sem einkennd væri með ifönsku orðunum laissez-faire. Ekki er auðvelt að spá fýrir um þá þróun sem þessu fylgdi en hugsanlegt er að fljótlega þyrfti að fara að þýða 20. aldar texta, a.m.k. þá ffá fyrri hluta aldarinnar, yfir á þetta nýja mál. Þriðji kosturinn væri sá að erlendir mál- staðlar ryddu sér til rúms í auknum mæli, þannig t.d. að enska yrði meira notuð í ýms- um atvinnugreinum og í skólakerfinu. Fyrsti kosturinn er sá eini sem hægt er að mæla með sem markmiði í íslenskri mál- 8 pólitík á 21. öld. Hér verða taldar upp jafnmargar ástæður fyrir þessari stefnu og kostirnir eru sem taldir voru upp en um þetta mætti flytja langt mál. Fyrst er þess að geta að æskilegt er að viðhalda lifandi tengslum við íslenskan bókmenntaarf. íslenskar bókmenntir og íslensk menning eru verðmæti í sjálfum sér og þær eru meira virði sem hluti af lifandi menningu en sem safngripir sem einungis væri hægt að nálgast í þýðingum. Önnur röksemd er að staðall, sem er í lifandi tengslum við verk Snorra Sturlu- sonar og Halldórs Laxness, við íslenskt laga- og stjómsýslumál og við málræktar- hefð 19. og 20. aldar, mun eiga auðveldara með að takast á við umdæmisvandann, sem ræðir um hér að framan, en nýr staðall sem ekki byggir á þessari hefð. Mikinn innri kraft þyrfti í þá rótlausu nýíslensku til að hún stæðist enskunni snúning. Ekki er heldur hægt að mæla með þriðja kostinum því honum fylgja margs konar vandamál sem ekki er ljóst hvemig leysa ætti. Hér má benda á að yrði tekinn upp erlendur málstaðall og hann ryddi sér hér til rúms yrði Island jaðarsvæði, án miðju. Menningarleg og e.t.v. pólitísk miðja myndi flytjast úr landi. Gera má ráð fyrir að það afbrigði heimsmálsins, sem hér myndi þró- ast (hugsanlega enskt pidgin, með líkum eiginleikum og prentsmiðjudanska í eina tíð), ætti í jafnmikilli og raunar meiri vök að verjast gegn umheiminum en sá staðall sem við búum nú við. Eina raunhæfa lausnin virðist því að viðhalda íhaldsseminni; eini málstaðallinn, sem á sér lífsvon hér á landi í framtíðinni, er sá sem við nú höfum. Lokaorð Ljóst er að enska sækir víða á, ekki síst í tækni og ýmsum atvinnugreinum og að hluta í vísindum. Nauðsynlegt er að stjóm- völd og aðrir hugi að leiðum til að spoma gegn því að íslenska missi gildi sitt á þess- um sviðum. Verði íslenska ekki nothæf á

x

Málfregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.