Málfregnir - 01.12.2001, Blaðsíða 20

Málfregnir - 01.12.2001, Blaðsíða 20
lega 32.000 Þjóðverjar heimsóttu Island árið 2000. Til samanburðar má geta þess að af 1100 milljónum Kínverja komu aðeins 564 þeirra til íslands á því herrans ári 2000. Telja má víst að samskipti við Asíu muni aukast á næstu árum og áratugum og miklir viðskiptahagsmunir geta verið í húfi. Því er brýnt fyrir íslendinga að eiga í sínum röðum fólk sem hefur gott vald á Asíumálum. Þó full ástæða sé til þess að bjóða upp á nám í Asíumálum, t.d. sem valgrein í nokkrum menntaskólum og í Háskóla Islands, er væg- ast sagt óraunhæft að gera þessi mál að skyldunámsgreinum. I því sambandi er mikilvægt að gera sér ljóst að það er himinn og haf á milli þess að læra Asíumál eins og t.d. kínversku eða japönsku og Evrópumál á borð við þýsku, spænsku eða frönsku svo ekki sé talað urn Norðurlandamál eins og t.d. dönsku. Þó rétt sé að taka orð Eiríks frá Brúnum. um hve létt honum reyndist að til- einka sér dönsku á lystireisu sinni til Kaup- mannahafnar, með nokkrum fyrirvara, þá gefa þau vísbendingu um hverju hægt er að fá áorkað í málanámi þegar um skylt mál er að ræða og viljinn fyrir hendi: En mjer þótti leitt fyrst í stað, að þar skyldi enginn eitt orð í íslenzku; en jeg skyldi og talaði þá orðið nokkuð í dönsku, því jeg var svo heppinn, að jeg var með skemmtilegum og þægilegum manni á dampinum fram, herra Sigmundi Guðmundssyni, prentara Isa- foldar, er kunni vel dönsku. Hann leiðbeindi mjer, og lærði jeg af honum mjög margt í dönsku, og kom það mjer að góðu gagni. (Eiríkur Ólafsson 1878:21) Vegna skyldleika íslensku og Norðurlanda- mála og vegna þess hve lík menningin er ætti Islendingum að veitast auðvelt að læra þessi mál. Það er allavega í öllu meira ráðist ef læra á japönsku eða kínversku en dönsku eða ensku. Málin eru gjörólík að uppbyggingu og menningin er framandi. Samkvæmt munnlegum heimildum mínum eiga Kín- verjar mun ileiri tákn en Japanar en báðar þjóðir hafa gert sér far um að einfalda og fækka táknunum. Til þess að teljast læs þarf maður að hafa u.þ.b. 2000 tákn á valdi sínu og til þess að geta lesið dagblöð eða sér- hæfðar bækur er vart hægt að komast af með færri en 3000 kínversk tákn. Japani, sem hefur vald á 2000 táknum, telst ágætlega læs á venjulegt nútímamál en lestur fræðilegra texta útheimtir skilning á fleiri táknum. Hér við bætist að þar sem táknum hefur verið fækkað og þau einfölduð er erfitt að lesa texta sem eru ritaðir fyrir 1900. I umræðu um tungumálanám er því stundum haldið fram að valið standi um að læra t.d. annaðhvort Asíumál eða Norður- landa- eða önnur Evrópumál. Þetta er að mínu viti alrangt. Því meiri málakunnáttu, sem nemendur búa yfir, því auðveldara reynist þeim að læra ný mál. Og ekki má gleyma að góð kunnátta í móðurmálinu er haldbesta hjálpartækið í öllu frekara mála- námi. Persónulega er mér kunnugt um nem- endur sem hafa hafið japönskunám í Banda- ríkjunum, Þýskalandi og Danmörku og haldið síðan til frekara náms í Japan. Þannig verður enskan, danskan og þýskan lykill að Asíumálum. Eins og áður hefur verið nefnt er löng hefð fyrir því að Islendingar sæki nám til útlanda. Skv. greiningu, sem ArbejdsMarlc- edsPolitisk Agenda hefur gert á grundvelli tölulegra upplýsinga í Nordisk statistisk árbog 2001, voru hlutfallslega flestir ís- lenskir námsmenn við nám erlendis af Norðurlandaþjóðunum árið 1999 eða alls 20% háskólanema. Til samanburðar má nefna að aðeins 7% norskra og sænskra námsmanna stunduðu nám erlendis og ein- ungis 2% finnskra og danskra námsmanna (Danske studerende bliver hjemme, bls. 5). En hvert sækja íslenskir námsmenn í framhaldsnám? Tafla 3 sýnir yfirlit yfir fjölda umsækjenda um lán hjá LÍN vegna náms í helstu námslöndum utan Norðurlanda en tafla 4 sýnir fjölda umsækjenda á Norður- löndum. 20

x

Málfregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.