Málfregnir - 01.12.2001, Blaðsíða 26

Málfregnir - 01.12.2001, Blaðsíða 26
en nokkrir þættir gætu þó verið ýmsum sam- eiginlegir. Ég ætla aðeins að nefna fjóra og mætti kalla hinn fyrsta Hrœðslu við ein- faldan stíl. Fyrir fáeinum miserum varð ég fyrir svör- um þegar blaðantaður hringdi til Orðabókar Háskólans og leitaði ráða. Fram undan var svonefnd friðarvika og hann ætlaði að taka fólk tali og leggja fyrir það þessa spumingu: Hver er grundvöllur skoðunar þinnar áfrið- annku? Nú langaði hann að vita hvað okkur þætti um orðalagið. Ég svaraði því til að mér þætti það harla vont og spurði hvers vegna hann vildi endilega nota grundvöllur sem reyndar er eitt af ofnotuðum orðum líkt og alfarið og sambandið að vera í stakk búinn sem hver étur upp eftir öðrum í tíma og ótíma. Og ég spurði enn hvers vegna hann segði ekki einfaldlega Hver er skoðun þín á friðarviku? Hvaða álit hefur þú áfi iðarviku? eða aðeins Hvað finnst þér um friðarviku? Hann virtist í fyrstu hissa en sagði síðan: „Ef ég spyr svona beint er ég þá ekki orðinn of persónulegur? Finnst mönnum spumingin þá ekki of bamaleg?“ Og þar lá hundurinn graf- inn. Astæðan fyrir þyngslalegri spumingu var óttinn við að skrifa of einfalt mál og sú trú að að baki samanhamraðra setninga hljóti að felast mikil speki. En blaðamaðurinn er ekki einn um þessa skoðun og þetta er ekki séreinkenni stofnanamáls þótt þess sjáist þar víða merki, heldur hygg ég að meinsins sé að leita í vantrú margra á einföldu máli og í þeim misskilningi að því meira mark sé tekið á bréfum eða greinum þeim mun saman- skrúfaðri sem textinn sé. Annan þátt mætti nefna stirðnað orðalag en með því á ég við málsgreinar sem byggja á gamalli hefð innan stofnana og enginn hugsar um að færa til betri vegar. Ut úr einni slíkri var einu sinni snúið í Sandkornum í DV enda bauð hún upp á það sjálf. Um var að ræða auglýsingu frá sjávarútvegsráðu- neytinu sem hófst svona: Með tilvísun til laga nr. 81 31. maí 1976 um veiðar í fiskveiðilandhelgi Islands með áorðnum breytingum og reglugerðar nr. 44 8. febrúar 1984 um stjórnun botnfiskveiða veitir ráðuneytið leyfi tii þess að veiða á ofangreindu fiskiskipi eftirgreint aflahámark neðangreindra botnfisktegunda ... og síðan hófst upptalning. Öll kannist þið við klausur líkar þessari sem með lagni mætti setja fram á einfaldari hátt. Þriðja þáttinn mætti nefna erlend áhrif. Þar á ég ekki við tökuorð eða slettur sem komu svo ríkulega fram í kansellístflnum, heldur stflblæ textans. Ymsir þeirra sérfræð- inga, sem vinna við skýrslugerð af ýmsu tagi, eru menntaðir erlendis. Þeir hugsa ntargir um sérsvið sitt á máli þess lands sem þeir lærðu í og skrifa oftast um það á sama máli. Orðin í skýrslunum eru að vísu íslensk en setningaskipan og form er erlent. Ég sagði að orðin væru íslensk en oft er aðeins um að ræða lauslega þýðingu erlendra hug- taka sem almennur lesandi á erfitt með að átta sig á. Oft er hreinlega verið að þýða er- lendar greinar eða skýrslur í flýti til að koma ákveðnum upplýsingum á framfæri sem fyrst og er þá komið að fjórðu ástæðu þess að stofnanamál verður til og nefna mætti tímaskort. Þessi ástæða er ef til vill sú algengasta. Allir eru að flýta sér og allt þarf að gera strax. Fyrir kemur að búið er að senda í prentsmiðju og jafnvel prenta það sem eftir er að lesa yfir. Nýlega arlnaðist ég símavörslu á Orðabók Háskólans. Ungur maður í stjómsýslu hér í borg hringdi og spurði hvort hann mætti lesa upp fyrir mig texta sem hann hefði verið að snara úr ensku yfir á íslensku og fengið athugasemdir við. Ég sagði að það væri í lagi og hann hóf lesturinn. Eftir stutta stund bað ég hann að byrja aftur af því að ég hefði misst þráðinn, textinn væri ærið óskýr ef ekki illskiljanlegur á köflum. „Ég má ekkert vera að því að eyða meiri tíma í þetta,“ sagði hann þá, „þetta á að vera farið í prentun. Má ég ekki bara „meila“ þetta til þín? Þú ert enga stund að laga þetta og sendir mér það bara á eftir. Ertu ekki alltaf að svoleiðis 26

x

Málfregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.