Málfregnir - 01.12.2001, Blaðsíða 37
ann við prófið og fyllt spurningablaðið út af
stakri samviskusemi.
Það bendir t.d. til áreiðanleika niðurstaðna
okkar að hlutfall jákvæðra svara hjá ungling-
unum er svipað og hjá fullorðnum í viðmið-
unarsetningunum, hvort sem þær eru tækar
eða ótækar. Meðalhlutfall jákvæðra svara
fyrir unglinga í hinum 11 tæku viðmiðun-
arsetningum er t.d. 93%. Sama hlutfall hjá
fullorðnum er 94%. Eins og sést á þessum
tölum eru niðurstöðumar þær sömu fyrir
unglinga og fullorðna. Einnig er nær enginn
munur eftir landsvæðum (ekki heldur á
svæðinu vestan Elliðaáa og öðrum svæðum).
Ein af hinum tæku viðmiðunarsetningum er
gefin í (12a). Þetta er setning í hefðbundinni
þolmynd. í fyrri dálknum í töflunni í (13)
birtum við niðurstöður úr hverjum lands-
hluta fyrir þessa setningu. Niðurstöður okkar
sýna svipað hlutfall jákvæðra svara hjá ung-
lingum og hjá fullorðnum. Auk þess að sýna
fram á áreiðanleika niðurstaðna okkar þá
sýnir þessi niðurstaða að hin nýja setninga-
gerð og hefðbundin þolmynd útiloka ekki
hvor aðra. Þannig samþykkja margir ung-
lingar nýju setningagerðina og þessir sömu
unglingar samþykkja einnig hefðbundnar
þolmyndarsetningar. Þessi niðurstaða bendir
til að hér stefni í sömu þróun og hefur þegar
átt sér stað í pólsku en eins og sýnt var í
dæmi (5) þá hefur pólska bæði hefðbundna
þolmynd og hina svokölluðu -no/to-setn-
ingagerð. í írsku, þar sem svipuð málbreyt-
ing átti sér stað, hvarf hins vegar hefðbundin
þolmynd við það að hin nýja setningagerð
kom fram (sbr. Maling 1993).
(12) Dœmi um tœka og ótœka viðmiðunar-
setningu í prófinu
a. Olafur var rekinn úr skólanum
(Tæk viðmiðunarsetning)
b. *Haraldur er enn þá veikt
(Otæk viðmiðunarsetning)
Ein af hinum fimm ótæku viðmiðunarsetn-
ingum er gefin í (12b). I seinni dálknum í
töflunni í (13) birtum við niðurstöður úr
hverjum landshluta fyrir þessa setningu.
Niðurstöður okkar sýna heldur hærra hlutfall
jákvæðra svara hjá unglingum en hjá full-
orðnum, að meðaltali er ntunurinn um 5-6%.
Þessi niðurstaða bendir til að ef einhver
skekkja er í niðurstöðum okkar þá komi hún
einkum fram í því að unglingarnir samþykki
setningar sem þeim þykja í raun ótækar. Þessi
skekkja ætti þó ekki að vera meiri en 5-6%.
5. Félagslegir þættir
5.1 Hefur kyn ntálhafa og menntun for-
eldra áhrif á notkun þessarar nýju setn-
ingagerðar?
Eins og komið hefur fram fylgdi spurninga-
blaðinu blað þar sem nemendur voru m.a.
beðnir um að gefa upp kyn sitt og menntun
(13) Hlutfall jákvœðra svara í hverjum landshluta fyrir viðmiðunarsetningarnar í (12)
Tæk setning Ótæk setning
Landshluti Unglingar Fullorðnir Unglingar Fullorðnir
Vesturland 99% 100% 6% 3%
Vestfirðir 98% 96% 9% 0%
Norðurland 99% 96% 3% 0%
Austurland 100% 95% 6% 0%
Vestmannaeyjar 97% 100% 14% 6%
Suðurland 100% 100% 5% 0%
Suðumes 99% 100% 7% 0%
Uthverfi Reykjavíkur 98% 100% 5% 0%
Reykjavík vestan Elliðaáa 96% 6%
37