Málfregnir - 01.12.2001, Síða 15

Málfregnir - 01.12.2001, Síða 15
forða grunnsins eins og lýst er að framan. Því verki ætti þó að vera hægt að ljúka á einu til tveimur árum. Ljóst er að það er mikil vinna sem eftir á að vinna við hagnýtar rannsóknir á tungu- málinu til þess að unnt verði að framleiða mörg þau verkfæri sem vonandi líta dagsins ljós á næstu árum. Það er hins vegar eitt af markmiðum verk- efnisstjómarinnar að stuðla að því að innan skamms tíma sjáist árangur af þessu átaki menntamálaráðuneytisins. Við í verkefnis- stjóminni erum líka þeirrar skoðunar að unnt sé að þróa gagnleg tungutæknitól með því að nota nær eingöngu þá þekkingu sem þegar er til staðar. Af þessum ástæðum verða veittir beinir styrkir til fyrirtækja sem óska eftir að fram- leiða einstök verkfæri til að markaðssetja og selja. Þegar um er að ræða styrk af þessu tagi eru skilmálar nokkuð á annan veg en þegar um þróun upplýsingagrunns er að ræða. Afurðin verður algerlega eign þess fyrirtækis sem þróar hana. Þó getur verið um einhverja endurgreiðslu að ræða, t.d. í því formi að fyrirtækið leyfi takmörkuð afnot tólsins í skólum án endurgjalds. Ekki er gert ráð fyrir að styrkja mörg slfk verk- efni og verkefni, sem skila fljótt árangri, munu fá forgang. Markmiðið með þessum styrkjum er að efla áhuga á tungutækni, bæði hjá notendum og framleiðendum, og að auka notkun tungutæknitóla hér á landi. Að lokum vil ég hvetja þá sem vilja fræð- ast nteir um tungutækniverkefni mennta- málaráðuneytisins til að kynna sér vef verkefnisins, http://www.tungutaekni.is. 15

x

Málfregnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.