Málfregnir - 01.12.2001, Síða 32

Málfregnir - 01.12.2001, Síða 32
Hér er um breytingu á setningagerð málsins að ræða og hefur þessi nýjung verið nefnd „nýja þolmyndin" (sbr. Helga Skúla Kjart- ansson 1991). Þessi nafngift stafar af því að nýja setningagerðin er mynduð með hjálpar- sögninni vera og lýsingarhætti þátíðar af aðalsögn rétt eins og hefðbundin þolntynd. Einnig virðist nýja setningagerðin hafa sömu merkingu og vera notuð við svipaðar að- stæður í málinu og hefðbundin þolmynd. í þessari grein verður fjallað um niðurstöður viðamikillar rannsóknar á þessari málbreyt- ingu sem við Joan Maling, prófessor við Brandeis-háskóla í Bandaríkjunum, höfum staðið að á undanfömum árum. Niðurstöður rannsóknar okkar sýna að þessi nýja setninga- gerð hefur í raun ekki setningafræðileg einkenni þolmyndar heldur virðist hér vera komin fram ný gerð ópersónulegrar germynd- ar í málinu. Þó ekki verði fjallað mikið um þessa hlið niðurstaðna okkar í þessari grein er rétt að benda á að heitið „nýja þolmyndirí* er því setningafræðilega séð rangnefni og betra væri að nefna þessa nýju setningagerð „nýju ópersónulegu germyndina". Nánari umfjöllun um setningafræðilega hegðun þessarar nýju setningagerðar má finna í Sigríði Sigur- jónsdóttur og Joan Maling (væntanlegt). 2. Nýja setningagerðin I hverju felst þessi málbreyting? Skoðum fyrst setningafræðilega formgerð hefðbund- innar þolmyndar í íslensku. I (3) má sjá mis- munandi gerðir hefðbundinnar þolmyndar. Þolmynd er mynduð með hjálparsögninni vera og lýsingarhætti þátíðar af aðalsögn. Til er þrenns konar þolmynd: Nefnifallsþol- (3) Hefðbundin þolmynd a. Stúlkan var lamin í klessu Stúlkurnar voru lamdar í klessu b. Henni var hrint í skólanum Þeitn var hrint í skólanum c. Kennarans var saknað Okkar var saknað d. Það var dansað í kringum jólatréð mynd, aukafallsþolmynd og ópersónuleg þolmynd. Nefnifallsþolmynd er mynduð af áhrifs- sögn í germynd sem tekur með sér geranda í frumlagssæti og andlag í þolfalli. Andlagið fær síðan nefnifall þegar það flyst upp í frumlagssætið í þolmynd, sjá (3a). Hjálpar- sögnin vera og lýsingarháttur þátíðar af aðalsögn samræmast nefnifallsfrumlagi þol- myndarsetningarinnar í beygingu. Auka- fallsþolmynd er mynduð af áhrifssögn í germynd sem tekur með sér geranda í frum- lagssæti og andlag í þágufalli eða eignarfalli. Andlagið heldur falli sínu er það flyst upp í frumlagssætið í þolntynd og hjálparsögnin og lýsingarháttur þátíðar af aðalsögn sam- ræmast því ekki (sjá 3b og c). Aukafalls- þolmynd er því frábrugðin nefnifallsþol- mynd m.a. að því leyti að hjálparsögnin stendur alltaf í 3. persónu eintölu og lýsing- arhátturinn í hvorugkyni nefnifalli eintölu. Ópersónuleg þolmynd nefnist þolmynd sem mynduð er af áhrifslausum sögnum sem taka með sér geranda í frumlagssæti. Þar sem áhrifslausar sagnir taka ekki neitt andlag er ekki um neinn þolanda að ræða sem fyllt getur frumlagssæti þolmyndar. I staðinn er yfirleitt beitt /;a/5-innskoti (sjá 3d). Eins og í aukafallsþolmynd stendur hjálparsögnin í ópersónulegri þolmynd alltaf í 3. persónu eintölu og lýsingarhátturinn í hvorugkyni nefnifalli eintölu. Dæmi unt nýju setningagerðina eru gefin í (4). Þessi dæmi samsvara dæmunum sem gefin voru um hefðbundna þolmynd í (3). Flestum eldri málhöfum þykja setningarnar í (4) ótækar. Munurinn á máltilfinningu yngri (nf.) (Nefnifallsþolmynd) (þgf.) (Aukafallsþolmynd) (ef.) (Ópersónuleg þolmynd) 32

x

Málfregnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.