Jökull


Jökull - 01.12.1968, Blaðsíða 35

Jökull - 01.12.1968, Blaðsíða 35
vided the size of the ice-producing open water area is known. Further measurements in the field are needed to verify or improve the heat loss formulas. A CKNOWLED GEMEN TS The work deseribed here was done in con- nection with an ice investigation progra?n in the Thjorsa River Basin, Southwestern Iceland, carried out by the National Energy Authority, Reykjavik. In the years 1964—66 this progratn was supported with expert and financial aid from the U.N. Special Fund and supervised by the Norwegian ice experts Dr. Olaf Devik and Chief Engineer Edvigs V. Kanavin. The heat loss studies were initiated by Messr. Devili and Kanavin and the author is indebted to them as well as various members of the Na- tional Energy Authority for their cooperation and helpful comments. ÁGRIP VATNSHITl OG VARMAJÖFNUÐUR STRAUMVATNA I undanfarandi grein er fjallað um útreikn- inga á vatnshita og varmajöfnuði straumvatna. Þessar athuganir eru þáttur í ísarannsóknum Orkustofnunar á Þjórsár- og Hvítársvæðinu. Nauðsynlegt reyndist að gera sérstakar rann- sóknir í þessum efnum, því að eldri formúlur til útreikninga á varmatapi gáfu mjög ósenni- legar niðurstöður og mismunandi eftir hinum ýmsu heimildum. Settar eru fram diffurjöfnur fyrir vatnshita í straumvatni og gefin lausn á þeim fyrir ein- faldasta tilfelli: straumharða á í breiðum, jafn- cljúpum farvegi. Breytingar á vatnshitanum eru aðallega háðar varmaflutningi milli vatns og lofts, dýpt og straumhraða. Helztu atriði, sem ákveða varmajöfnuð straumvatna, eru: Varmaskipti við loftið. Varmaskipti við árbotninn. Varmi að- og frárennslis. Upphitun vegna fallorku. Varmaskipti við botninn og upphitun vegna fallorku eru venjulega smávægileg miðað við varmaskiptin við loftið, en geta skipt máli, þeg- ar árnar eru lagðar. Innrennsli jarðvatns er þýðingarmikið atriði í varmajöfnuði margra vatna hér á landi. Varmaskipti milli vatns og lofts gerast með: Geislun. Uppgufun. Uppstreymi. Urkomu. ísrek eða aðrar breytingar á ástandi yfir- borðsins kunna einnig að hafa áhrif á varma- skiptin. Geislun er skipt eftir öldulengd og uppruna í sólgeislun og jarðgeislun. Hér á landi skiptir sólgeislun litlu máli fyrir varma- jöfnuð straumvatna á vetrinn frá því í byrjun nóvember fram undir miðjan febrúar. Jarð- geislun er innrauð geislun eða hitageislun, og skiptist hún í útgeislun frá jörð og endurgeisl- un frá lofthjúpnum, en það er geislun, sem ský og eimur senda út. Geislun er unnt að mæla allnákvæmlega, en þegar mælingar eru ekki fyrir hendi, er hún reiknuð út eftir reynslufor- múlum. Uppgufun og uppstreymi er illmögu- legt að mæla, enda má finna ótal mismunandi formúlur til útreikninga á þeim hlutum í ýms- um heimildum. Varmaskipti við uppgufun eru í beinu hlutfalli við fallanda eimþrýstingsins upp á við og varmaskipti við uppstreymi eru í beinu hlutfalli við mismun vatnshita og loft- hita. Þessir tveir þættir eru einnig mjög háðir vindhraða og væntanlega báðir á sama hátt, þegar vindur er einhver að ráði. Formúlur til útreikninga á varmatapi frá straumvötnum í sambandi við ísmyndun munu fyrst hafa verið settar fram af dr. Olaf Devik 1931. Við athuganir á Þjórsársvæðinu 1964—65 kom í ljós, að útreiknað varmatap eftir formúl- um dr. Deviks var greinilega of lítið. Þessum formúlum var þá breytt með hliðsjón af nýrri heimildum og mælingum á kælingu vatns í varmamælum, og hafa þær síðan verið notaðar við útreikninga á ísmyndun og ísalögum og við veðurfarsathuganir á Þjórsársvæðinu. Þessir út- reikningar eru vafalaust ekki nákvæmir, eink- um fyrir styttri tímabil, enda verða formúlurn- ar að vera tiltölulega einfaldar til að notast megi við venjulegar veðurathuganir. Beinar mælingar á varmatapi frá straumvötn- JÖKULL 18. ÁR 369
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.