Jökull - 01.12.1968, Blaðsíða 14
Mynd 9. Hugsanlegt er, að nota megi tvívetni
til mælinga á ísrennsli í jöklum.
Fig. 9. Deuterium measurements might be of
great use in testing models of iee flow in a
glaciers.
jökli, eins og sýnt er á Mynd 9. Gildin við
yfirborð jökulsins tákna ð-gildi íssins í næst-
efsta árlagi, þ. e. í lagi, þar sem breytingu
fyrsta sumarsins er lokið. Slitróttu örvarnar
tákna hreyfingar íssins, eins og menn hugsa
sér, að þær séu samkvæmt eldri hugmyndum.
Með því að bora holu gegnum jökulinn, eins
og sýnt er á myndinni, og mæla tvívetni is-
kjarnans af mismunandi dýpi, ætti að takast
að staðfesta, hvort hreyfingarnar eru eins og
myndin sýnir. ískjarninn efst í holunni, Kj,
mundi þá hafa ök^ = a, sem er hið sama og
yfirborðsisinn við holuna. Kjarni K2 mundi
hafa 8^2 = b, sem er hið sama og 8-gildi vfir-
borðsíssins nokkru ofar á jöklinum. Þannig
mundi, eins og myndin sýnir, fást tvívetnis-
snauðari ískjarni, eftir því sem neðar kemur í
holuna, og sá ís væri þá upprunninn að sama
skapi ofar af jöklinum. Myndin sýnir einnig,
að sýni tekin af yfirborðsís neðan við hjarn-
línu mundu hafa 8-gildi, sem væri spegilmynd
8-gildanna ofan við hjarnlínu. A þennan hátt
gætu tvívetnismælingar sýnt, hverjar hreyfingar
íssins væru. Ef unnt er að aldursákvarða ís-
kjarnann, fengjust jafnframt upplýsingar um,
hversu hratt ísinn hreyfist.
LOKAORÐ
Að síðustu er rétt að taka saman í fáum orð-
um þau not, sem hafa má af tvívetnismæling-
um á vatni og jökulís hérlendis samkvæint ofan-
skráðu.
Tvívetnismælingar á úrkomu ásamt tvívetnis-
mælingum á grunnvatni má nota til að afla
upplýsinga um, hvar grunnvatn, jafnt heitt sem
kalt, hefur fallið til jarðar sem regn og megin-
rennslisstefnu þess neðanjarðar. Dæmi eru um,
að vatn hefur runnið allt að 70 km leið neðan-
jarðar, þegar það kemur upp á yfirborðið aftur.
Tvívetnismælingar á ís og snjó á jöklum hér-
lendis má að auki nota til að ákveða magn árs-
úrkomu, sem fellur á jöklana. Þessar mælingar
veita þá jafnframt upplýsingar um, hversu
mikill hluti ársúrkomunnar sezt að í jöklinum
sem ís og hversu mikill hluti rennur burtu þeg-
ar fyrsta sumarið. Slík ákvörðun hefur verið
gerð á einum stað á norðurhluta Langjökuls
og á einum stað á Tungnárjökli. Gildin, sem
fengust, eru í góðu samræmi við það, sem við
að búast samkvæmt öðrum upplýsingum. Ekkert
virðist því til fyrirstöðu að beita þessari aðferð
almennt á íslenzkum jöklum.
Tvívetnismælingar af íssúlu, sem safnað er
með því að bora gegnum jökulinn á Bárðar-
bungu, munu ef til vill, ásamt aldursákvörðun
á ísnum, geta gefið upplýsingar um breytingar
á meðalárshita hérlendis allt frá upphafi ls-
landsbyggðar.
Þá má ef til vill með tvívetnismælingum á
jökulís fá mikilvægar upplýsingar um hreyfing-
ar jökla.
Að endingu skal tekið fram, að því er varðar
jökla, að talsvert af því, sem hér hefur verið
ritað, er enn hálfunnið verk eða jafnvel aðeins
hugmyndir. Sumt má að vísu teljast sannað,
eins og t. d. það samspil, sem á sér stað milli
tvívetnis jökulíssins annars vegar og leysingar-
vatns eða regns hins vegar. Sú aðferð, að not-
færa sér tvívetnismælingar til að ákveða magn
ársúrkomu og magn þess hluta hennar, sem
sezt að í jöklinum, virðist einnig nothæf. Aðrir
þættir, eins og að notfæra sér tvívetnismæling-
ar til að rannsaka hreyfingar jökla eða að not-
færa sér jiær sem hitamæli liðinna alda, eru
þó, enn sem komið er, vart meira en hugmynd-
ir. Þær hugmyndir virðast í dag réttar, svo langt
sem vitneskja okkar nær, og því rétt að fylgja
þeim eftir með frekari rannsóknum. Hvort end-
anlegt svar verður jákvætt, skal þó engu um
spáð, fyrr en raunverulegar mælingar liggja
fyrir.
348 JÖKULL 18. ÁR