Jökull


Jökull - 01.12.1968, Blaðsíða 71

Jökull - 01.12.1968, Blaðsíða 71
jökul er sunnan Nýjafells. Þá hefur Carl J. Ei- riksson einnig athugað lengdarbreytingar norð- an fellsins. Þar er hopið hægara eða á sl. ári 100 m á móti 190 m sunnan við fellið. Vatnajökull. Hannes Jónsson á Núpsstað, sem mælt hefur við vestanverðan Skeiðarár- ]öknl síðan lengdarmælingar hófust þar, lézt sumarið 1968. Við mælingunum tók Eyjólfur sonur hans. Ragnar Stefánsson í Skaftafelli, sem mælir við austanverðan Skeiðarárjökul, segir í bréfi: „Austasta línan, Eg, er hjá ytri farvegi Skeiðar- ar, skammt frá vestari öldubrún hans. Merki fjærst jökli í línunni er jökulmerkið nr. 113. Nálægt 3 km vestar er mælilínan E^, þar er jökulmerkið nr. 114 yzt merkja, og svo nál. 2 km vestar er mælilínan Ei, þar er jökulmerkið ur. 115 yzt í röðinni." Og enn segir Ragnar: „Lítil breyting hefur orðið á jaðri jökulsins. En Skeiðarárjökull hef- ur lækkað þetta ár (frá hausti 1967 til jafn- lengdar 1968). Áberandi er, hve tanginn austur við Jökulfell hefur lækkað mikið, sérstaklega þar, sem hreinn ís er. Skeiðará hefur nú tvö utföll. Llklegt er, ef jökullinn eyðist svo ört við Jökulfell, sem hann liefur gert í sumar, að þess verði skammt að bíða, að Skeiðará fari öll í ytri farveginn (þ. e. a. s. þann vestari). Skeiðarárjökull virðist lækka einnig hið hærra uppi, t. d. þar sem hann ber hæst héðan að sjá, miðað við Núpsstaðafjöll." í bréfi segir Flosi Björnsson á Kvískerjum, að Kvíárjökull sé úfinn og sprunginn. Erfitt að segja, hvort Hrútár- og Fjallsjöklar hækka eða ekki, virðast breytast lítið. Hrútárjökull mun þó sprungnari á nokkrum kafla en í fyrra. Breiðamerkurjökull virðist fremur halda áfram að lækka. í bréfi tekur Skarphéðinn Gíslason fram, að breytingar séu ekki stórvægilegar, þótt fram- skrið sé á flestum stöðum, nema við Heina- bergsjökul. Á báðum mælistöðum Heinabergs- jökuls mynduðust lón. Vatnsdalur hljóp um mánaðamótin ágúst/ september. Við Kolgrlmubrú er vatnshæðar- mælir (síriti byggður sl. vor). Hófst hlaupið þar kl. 17, 31. ágúst, náði hámarki kl. 8, 2. sept., þ. e. a. s. eftir 39 klukkustundir, og var lokið 22 klukkustundum eftir hámark eða kl. 6, 3. sept. Nánar verður skýrt frá Vatnsdalshlaupum í Jökli síðar. JÖKULL 18. ÁR 405
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.