Jökull - 01.12.1968, Blaðsíða 65
ö. mynd. Tjald- og gryfjustaður IV suður af kverkinni í Kverkfjöllum.
Camping place IV on the accumulation area of the Kverkjökull glacier.
Ljósm. Hjálmar R. Bárðarson, 10. júní 1968.
bræðslubornum. Síðan var áfrani haldið í
muggu og þyngsla færi, svo að Gusi var um
tíma hafður aftan í Jökli 2. Jökullinn var
óvenju sléttur i neðra og komumst við á jökul-
rönd fyrir hádegi og heim að húsi kl. 14.30,
en Carl sneri við á jökulrönd í Jökli 2 og hélt
á vit þeirra Braga og Páls.
14. júni. — Bragi, Carl og Páll komu í Jökul-
lieima kl. 03.00. Höfðu þeir fest borinn á 12 m
dýpi. Vetrarákoman á þessum stað (X) reyndist
515 cm, vatnsgildi 2700 mm. Með morgni kom
Guðmundur Jónasson í R 342 ásarnt Ómari og
var þá farið að undirbúa heimferð. Skroppið
var með Pétur Sumarliðason og sírita inn að
Tungnaárkvíslinni norður af Fóstrufelli og fest-
ist Rauður þar illilega í jökulkeri, en náðist
þó upp úr. Frá Jökulheimum var haldið í fögru
veðri kl. 15.45. Staðnæmzt við Þröskuld að
vanda (7. mynd). Komið að Tungnaá kl. 19.30
og haldið viðstöðulaust yfir. Á suðurbakka ár-
innar var kaffi drukkið og aftur stanzað á
flötunum við Minnivallalæk, en komið í bæinn
kl. 03.00. Lauk þar með 16. Vatnajökulsleið-
angri Jöklarannsóknafélags íslands.
inn við myndatökur, enda hafði hann fengið
færri tækifæri til slíks í ferðinni en æskilegt
hefði verið. Þarna voru í jöklinum allmargir
katlar allt að 10 m djúpir, afleiðingar hlaups-
ins 1964/65. Nú var tekið að frysta í slóð og
færið að verða gott, og var „eldhúsið“ sett
aftan í Gusa, sem dró það léttilega. Hríðar-
mugga byrgði brátt sýn, en „navigatorinn" Carl
lét slikt ekki á sig fá og með aðstoð hans og
Magnúsar Eyjólfssonar, sem rak augun í Kverk-
fjallaslóðina, er að henni kom, komumst við
heim í skála kl. 10.15. Eftir súpuát var gengið
til náða, en kl. 18 var farið að búa á sleðana.
Suðaustan hríðarveður hélzt allan daginn.
13. júni. — Lagt af stað kl. 00.50 í lokuðu,
svo sem oft vill verða, þegar haldið er heim-
leiðis úr Grímsvatnaskála. Tekur þá stundum
timann sinn að komast spölinn vestur að vestari
Svíahnúknum, en úr því að þangað er komið,
er leiðin hættulaus. Kl. 02.25 vorum við komin
að hnúknum og kl. 06.00 vorum við að koma
niður í um 1300 m hæð. Þar voru Páll og
Bragi skildir eftir með 2 tjölcl og grafin fyrir
þá 2 m hola, en þeir áttu síðan að bora með
JÖKULL 18. ÁR 399