Jökull


Jökull - 01.12.1968, Page 65

Jökull - 01.12.1968, Page 65
ö. mynd. Tjald- og gryfjustaður IV suður af kverkinni í Kverkfjöllum. Camping place IV on the accumulation area of the Kverkjökull glacier. Ljósm. Hjálmar R. Bárðarson, 10. júní 1968. bræðslubornum. Síðan var áfrani haldið í muggu og þyngsla færi, svo að Gusi var um tíma hafður aftan í Jökli 2. Jökullinn var óvenju sléttur i neðra og komumst við á jökul- rönd fyrir hádegi og heim að húsi kl. 14.30, en Carl sneri við á jökulrönd í Jökli 2 og hélt á vit þeirra Braga og Páls. 14. júni. — Bragi, Carl og Páll komu í Jökul- lieima kl. 03.00. Höfðu þeir fest borinn á 12 m dýpi. Vetrarákoman á þessum stað (X) reyndist 515 cm, vatnsgildi 2700 mm. Með morgni kom Guðmundur Jónasson í R 342 ásarnt Ómari og var þá farið að undirbúa heimferð. Skroppið var með Pétur Sumarliðason og sírita inn að Tungnaárkvíslinni norður af Fóstrufelli og fest- ist Rauður þar illilega í jökulkeri, en náðist þó upp úr. Frá Jökulheimum var haldið í fögru veðri kl. 15.45. Staðnæmzt við Þröskuld að vanda (7. mynd). Komið að Tungnaá kl. 19.30 og haldið viðstöðulaust yfir. Á suðurbakka ár- innar var kaffi drukkið og aftur stanzað á flötunum við Minnivallalæk, en komið í bæinn kl. 03.00. Lauk þar með 16. Vatnajökulsleið- angri Jöklarannsóknafélags íslands. inn við myndatökur, enda hafði hann fengið færri tækifæri til slíks í ferðinni en æskilegt hefði verið. Þarna voru í jöklinum allmargir katlar allt að 10 m djúpir, afleiðingar hlaups- ins 1964/65. Nú var tekið að frysta í slóð og færið að verða gott, og var „eldhúsið“ sett aftan í Gusa, sem dró það léttilega. Hríðar- mugga byrgði brátt sýn, en „navigatorinn" Carl lét slikt ekki á sig fá og með aðstoð hans og Magnúsar Eyjólfssonar, sem rak augun í Kverk- fjallaslóðina, er að henni kom, komumst við heim í skála kl. 10.15. Eftir súpuát var gengið til náða, en kl. 18 var farið að búa á sleðana. Suðaustan hríðarveður hélzt allan daginn. 13. júni. — Lagt af stað kl. 00.50 í lokuðu, svo sem oft vill verða, þegar haldið er heim- leiðis úr Grímsvatnaskála. Tekur þá stundum timann sinn að komast spölinn vestur að vestari Svíahnúknum, en úr því að þangað er komið, er leiðin hættulaus. Kl. 02.25 vorum við komin að hnúknum og kl. 06.00 vorum við að koma niður í um 1300 m hæð. Þar voru Páll og Bragi skildir eftir með 2 tjölcl og grafin fyrir þá 2 m hola, en þeir áttu síðan að bora með JÖKULL 18. ÁR 399

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.