Jökull - 01.12.1973, Blaðsíða 54
Islenzk jöklaskrá
Árið 1969 kom út kortabók um jökla í Suður-
Noregi (0strem og Ziegler, 1969). Um þessar
mundir kemur einnig svipuð bók um aðra jökla
í Skandinavíu. Eru þetta fyrstu kortabækurnar
unnar eftir staðli hins alþjóðlega vatnafræðiára-
tugs (IHD), sem saminn var vegna tilmæla
stjórnarnefndar IHD um, að aðildarþjóðir létu
skrá magn og útbreiðslu íss í löndum sínum.
(Múller, 1969). Af þessu tilefni er hér rætt um
efni íslenzkrar jöklaskrár og möguleika á gerð
hennar.
Æskilegt væri, að efni jöklaskrárinnar yrði
skipt í eftirtalda fimm flokka:
1. Yfirlitsgreinar um landslag og landmótun,
loftslag og veðurfar, vatnsföll og jökla,
kortagerð og loftmyndun landsins.
2. Landshlutakort (1:250.000) og stærri kort
(1:50.000) yfir vatnasvið, sem sýna núver-
andi útlínur jökla, jökulár, rennslismæli-
stöðvar og veðurathugunarstöðvar.
3. Töflur um ýmsa landfræðilega þætti (legu
jökuls í hnitkerfi, lengd og breidd, hæstu
og lægstu hæð, halla, stefnu, flatarmál, mat
á þykkt, rúmmál, landfræðilega flokkun)
og jöklafræðilega þætti (hæð hjarnlínu,
flatarmál ákomusvæðis og leysingarsvæðis,
ákomu, leysingu, afkomu, virkni, hop og
framskrið), og vatna- og veðurfræðilega
þætti (rennsli jökulánna, lofthiti, úrkoma
o. f 1.), yfirlit yfir framhlaup jökla, jökul-
hlaup, eldgos í jökli, heimildir um fyrri
rannsóknir.
4. Loftmyndir, gervitunglamyndir, skámyndir
úr flugvélum og frá landi.
5. Niðurstöður, úrvinnsla landfræðilegra og
jöklafræðilegra þátta yfir landið í heild,
skilyrði fyrir tilveru jökla á ýmsum svæð-
um lands, kort yfir hæð hjarnlínu, jökla-
breytingar, vatnasvið jökla, heildarísmagn
á landinu, þáttur jökla 1 vatnabúskap
landsins, jökulhlaup, tillögur að bættri
gagnasöfnun, grundvöllur að frekari rann-
sóknum.
Af efni jöklaskrárinnar sést, að það yrði mik-
ið og tímafrekt verk að vinna vandaða skrá.
52 JÖKULL 23. ÁR
Margt mælir hins vegar með því, að frumútgáfu
jöklaskrár verði flýtt, þó ekki svo, að einhverj-
um ofangreindra efnisþátta verði sleppt. Á ýms-
um sviðum er slík bók nauðsynlegur grundvöll-
ur að frekari rannsóknum og endurbættri gagna-
söfnun um jökla. Auk þess er ekki seinna vænna
að bjarga ýmsum gögnum um jökla frá gleymsku.
Af þessum ástæðum tel ég ráðlegt að stefna að
því að koma út fjölritaðri kortabók innan 2—3
ára, en endurbæta hana á 5—10 ára fresti. Þessi
frumútgáfa yrði unnin úr þeim gögnum, sem
nú eru handbær t. d. af landakortum, ljósmynd-
um, flugmyndum, gervitunglamyndum og finna
má í ritverkum Þorvalds Thoroddsen (1892),
Jóns Eyþórssonar (1931, 1935, 1964), Helga H.
Eirikssonar (1932), Guðmundar Bárðarsonar
(1934), Sigurðar Þórarinssonar (1943) og í árleg-
um skýrslum Jóns Eyþórssonar og Sigurjóns
Rist í Jökli um jöklabreytingar.
Jöklaskráin getur orðið mjög gagnlegt verk,
ef áhersla er lögð á úrvinnslu þeirra gagna,
sem safnað verður. Verði hins vegar slegið
slöku við þann hátt, er jöklaskráning tóm bók-
haldsvinna, og gagn hennar það eitt að gleðja
hjörtu nokkurra kontórista.
Helgi Björnsson.
HEIMILDIR:
Bárðarson, G. G. 1934: Islands Gletscher. Vís-
indafélag íslendinga XVI. Reykjavík.
Eiriksson, H. H. 1931: Observations and Mea-
surements of some glaciers in Austur-Skafta-
fellssýsla. Vísindafélag íslendinga XII.
Reykjavík.
Eythórsson, J. 1931: On the present position
of the glaciers in Iceland. Vísindafélag Is-
lendinga. Reykjavík.
— 1935: On the variation of glaciers in Ice-
land, I. Drangajökull. Geogr Annal. XVII.
Stockholm.
— 1964: Glacier variations 1930—1960. Jökla-
breytingar. Jökull.
— 1951—1966: Jöklabreytingar. Jökull, 1—16.
Múller, F. 1969: Perennial ice and snow masses.
A guide for compilation and assemblage of
data for a world inventory.
Rist, S. 1967—1972: Jöklabreytingar, Jökull, 17
-22.
Thorarinsson, S. 1943: Oscillations of the Ice-