Jökull - 01.12.1986, Blaðsíða 91
Gissur fram m.a.: Jökullinn er afar aurborinn, á hann
kom næstum enginn snjór s.l. vetur. Jökullinn hefur
lækkað töluvert e.t.v. sýnilegt á meðf. myndum. Nú
kemur vatn undan jöklinum í gamla Jökulkvíslarút-
fallinu, eins og það gerði í áraraðir áður en það fór á
það flakk, sem það hefur verið á, nú undanfarin ár.
Eg held, segir Gissur, að jökullinn milli Merkigilja
og Oldufells sé alltaf að lækka. Upp af Merkigiljum
austan til virðist vera að koma upp úr jöklinum
fjallshryggur eða fjallsbrún, þvert norður yfir jökulinn
héðan frá Herjólfsstöðum að sjá.
VATNAJÖKULL
Tungnaárjökull hjá Jökulheimum. Gunnar Guð-
mundsson tekur fram: Hop Tungnaárjökuls lætur ekki
a sér standa fremur en vant er. Jökullinn hefur hörfað
Það mikið (89 m) að fremsta nöf fellsins, sem hefur
verið að koma upp úr jöklinum undanfarin ár, er farin
að skaga út úr jökuljaðrinum. Jökullinn er áberandi
brattari nú en s.l. haust, annað í útliti og hegðan jök-
ulsins er með líku sniði og fyrir ári síðan.
Síðujökull. Björn Indriðason tekur fram: Jökullinn
er greinilegur hopjökull. Jaðarinn er sléttur og sleikt-
ur. Neðsti hluti jökulsins virðist allur vera að lækka.
Skeiðarárjökull W. Haustið 1984 sagði Eyjólfur
Hannesson: „Þótt jökullinn hopi heldur en hitt hjá
mér, er stutt austur með jökulröndinni að fara að stað
þar sem jökullinn belgist upp og hækkar“. Og nú hef-
ur jökullinn hjá Eyjólfi, þ.e.a.s. milli Súlu og Gígju
tekið viðbragð og hlaupið fram um 150 m (sjá
skýrslu).
Skeiðarárjökull E. Bragi Þórarinsson tekur fram:
Lremur kílómetrum vestan við merki E-1 er jökul-
funga komin að hárri sandöldu. Þar austan við mynd-
aðist uppistöðulón í sumar. Úr því rann um stundar-
sakir austur í farveg Sæluhúsvatns, en vatn náði síðan
framrás til vesturs undir jökultunguna og vatnsborðið
lækkaði. Nú 15. sept. rennur vatn af þessu svæði und-
ir tunguna.
Að þessu atriði, sem Bragi minnist á, er nánar vikið
i ársskýrslu félagsins hér í blaðinu. Þar er einnig reynt
að varpa Ijósi á hvenær vænta megi Grímsvatna-
hlaups.
Skaftafellsjökull. Guðlaugur tekur fram að auk þess
að skríða fram hefur jökullinn hækkað. Jaðarsbrúnin
er orðin há og sprungin.
Svínafellsjökull. Jökullinn hefur hopað og er sléttari
°8 minna sprunginn en verið hefur undanfarin ár.
Virkisjökull og Falljökull. Báðir hafa jöklarnir geng-
ið fram. Virkisjökull er afar aurborinn og hann ýtir á
undan sér möl og stórgrýti, skrifar Guðlaugur í
skýrslu sína að lokum.
Örœfajökull. Eins og frá er skýrt í Jökli 33. ár bls.
145 var 26. ágúst 1982 mæld vegalengd að jökli frá
vörðu upp af Stórhöfða. Þá voru 75 metrar milli
vörðu og jökuls. í bréfi dags 24. september 1985 segir
Flosi Björnsson, Kvískerjum, að mælingin hafi verið
endurtekin 15. sama mánaðar. Þá mældust 73 m að
jökli. Jökullinn er Iítið sprunginn upp af Stórhöfða.
Tölulega séð kemur fram tveggja metra framskrið á
tveimur árum.
Kvíárjökull. Jöklarnir hér í nágrenninu hafa skriðið
fram á öllum þeim stöðum, sem ég mældi frá, nema
við merki nr. 142 (Breiðamerkurjökul upp frá Ný-
græðubakka) og lítilsháttar hop er við merki Fjalls-
jökuls nr. 136, segir Flosi í ítarlegu bréfi, sem fylgir
mælingaskýrslum jökla frá og með Kvíárjökli og allt
austur að Jökulsá á Breiðamerkursandi.
Þótt Kvíárjökull sýni í skýrslunni 10 m framskrið,
bendir Flosi á að í raun og veru sé alveg eins rétt að
líta svo á að hann sé í kyrrstöðu. Framskrið er stað-
bundið, verulegur hluti jaðarsins er í kyrrstöðu. Jök-
ullinn hækkaði á kafla snemma í sumar en virðist nú
kominn í kyrrstöðu eða jafnvel farinn að lækka aftur.
Lítið bar á eiginlegum kerum í Kvíárjökli
í sumar. Katlar eru jafnan greinilegastir á svæðinu
suðvestur af Kambsskarði, a.m.k. hefur svo verið þeg-
ar fátt er um það.
Hrútárjökull. Þótt jökullinn gangi fram breytist útlit
hans lítið. Hann hefur ekki hækkað og lítið verður
vart við sprungur í grjótjöklinum.
Fjallsjökull hefur lækkað í sumar.
Breiðamerkurjökull W. Augljóslega hefur verið
fram til þessa töluvert framskrið í vestara hluta
Breiðamerkurjökuls skammt austan við Breiðamerk-
urfjall og allt austur að vestustu grjótröndinni þar,
sem er upp af Breiðárlóni. Upptökin munu án efa
vera í Öræfajökli, líklega aðallega milli Heljargnípu og
FjölsvinnsQalIa. Jökullinn er þarna mjög sprunginn og
brúnin víðast brött. Jökuljaðarinn er nokkuð ójafn
sumsstaðar. Á mælingastaðnum gengur fram jökul-
tunga, báðum megin við hana er 80 m vik inn í jaðar-
inn. Á mælingastaðnum sjálfum og víðar á þessu
svæði hefur jökullinn að vísu hopað nokkra metra frá
því fyrr á árinu. Nokkru lengra inni á jöklinum mun
ekki hægt að merkja að hann hafi hækkað síðan í
fyrrahaust (1984). Á öðrum stöðum virðist Breiða-
merkurjökull W vera að lækka og hopa.
Mælingu varð ekki komið við upp af Breiðárskála
(nr. 141), þar nær Breiðárlón nú alveg austur að Máfa-
byggðarönd og breikkar jafnframt. Á þessum slóðum
er í raun og veru ekki lengur neinn álitlegur mælinga-
staður.
Að lokum sagði Flosi m.a. um veðurfarið á þessa
89