Jökull - 01.12.1986, Síða 97
Stjórnun. Á starfsárinu milli aðalfunda voru haldnir
18 stjórnarfundir og út komu 5 fréttabréf. Gerð var
tilraun með að hafa ákveðna fundardaga og stað. Val-
inn var fyrsti mánudagur i hverjum mánuði að vetrin-
um. Staður fundarherbergi Orkustofnunar. 1 Síðari
hluta ársins var varastjórn kvödd til fundar. Að hafa
fastan fundardag, stað og tíma gaf góða raun. Á þátt-
töku varastjórnar var ekki komin full reynsla.
Endurskoðun laga. Eins og aðalfundarboðið ber
með sér var unnið að endurskoðun laga. Meginþungi
þessa verks hvíldi á gjaldkera og ritara, þeim Jóni E.
ísdal og Einari Gunnlaugssyni. Fullur skriður komst á
verkið eftir að næsta óvænt birtist á árshátíð innbund-
ið ljósrit af fyrstu gjörðabók félagsins, nánar um
gjörðabókina og árshátíðina er í ellefta Fréttabréfi.
Að lokum þetta: Allir hinir ötulu sjálfboðaliðar
Jöklarannsóknafélagsins eiga þakkir skildar. Eg
persónulega þakka ánægjulegt samstarf á þessu ári og
liðnum árum.
Sigurjón Rist
Starfsemi Jarðfræðafélags fslands 1984—1985
I stjórn félagsins þetta starfsár sátu: Etrefna Krist-
mannsdóttir, formaður, Hreinn Haraldsson, ritari,
Ágúst Guðmundsson, gjaldkeri, Sigríður P. Friðriks-
dóttir og Leifur A. Símonarson, meðstjórnendur.
A starfsárinu voru haldnir átta fræðslufundir auk
aðalfundar. Aðsókn á flesta þeirra var góð, venjulega
30—40 manns. Tekinn var upp breyttur fundartími og
fundarstaður, sem þótti gefa allgóða raun, a.m.k. hvað
aukna fundarsókn varðaði. Voru fundirnir haldnir
síðdegis kl. 16 eða 17 í fundarsal Orkustofnunar.
Stjórnin hélt fjóra formlega fundi en auk þess voru
^uargir samráðsfundir með færri þátttakendum.
Gefin voru út fimm fréttabréf og var tekin upp sú
nybreytni að kynna vinnustaði og verkefni jarðvís-
'ndamanna í þeim.
Farið var í ferðalag á vegum félagsins haustið 1984
um virkjanasvæði Þjórsár og Tungnár og tókst það
mjög vel og var það einkum að þakka góðri Ieiðsögn
og góðum undirbúningi leiðsögumanna, þeirra Ágústs
Guðmundssonar, Elsu G. Vilmundardóttur og Snorra
P. Snorrasonar. Veðrið lék ekki sérstaklega við þátt-
takendur, 27 talsins, en var þó að mestu hæft til úti-
vistar.
Þann 11. apríl 1985 var haldin daglöng ráðstefna
um rannsóknir tengdar skjálftavirkni á Suðurlandi.
Var hún sótt langt út yfir raðir félagsmanna Jarð-
fræðafélags og voru þátttakendur rúmlega hundrað
manns. Var samdóma álit að ráðstefnan hefði tekist
mjög vel. Verið er að vinna að útgáfu skýrslu um nið-
urstöður ráðstefnunnar og stendur til að fylgja henni
eftir með annarri ráðstefnu um meira verkfræðilega
þætti varðandi skjálftavirkni.
Mörg mál komu til umsagnar félagsins og hafði það
milligöngu um ýmsar faglegar fyrirspurnir erlendis frá.
Hrefna Kristmannsdóttir
i
95