Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2014, Síða 3
Fréttir 3Vikublað 28.–30. október 2014
Harðar aðhaldsaðgerðir
Svarta skýrslan komin í Reykjanesbæ
A
lmennur borgarafund-
ur um alvarlega fjárhags-
stöðu Reykjanesbæjar verður
haldinn annað kvöld í Stapa
og hefst fundurinn klukkan 20.00.
Endanleg skýrsla KPMG um fjárhags-
stöðu bæjarfélagsins og framtíðar-
horfur var lögð fram á fundi bæjarráðs
síðastliðinn fimmtudag. Eins og DV
hefur greint frá skortir bæjarsjóð
alls um 15 milljarða króna til þess að
koma skuldum niður í lögbundið 150
prósenta hlutfall af árlegum tekjum
bæjarins. Ætlunin er að á næstu árum
verði gerðar ráðstafanir til þess að
lækka heildarskuldir úr um 40 millj-
örðum króna niður í 25 milljarða.
„Sóknin“
Í skýrslu KPMG eru settar fram til-
lögur að markmiðum um aðgerðir í
rekstri bæjarsjóðs. Á grundvelli henn-
ar hefur verið samþykkt áætlun sem
ber nafnið „Sóknin“.
Ætlunin er að ná fram 900 millj-
óna króna aukinni framlegð í rekstri
bæjarsjóðsins á næsta ári og árin þar
á eftir. Þetta verður gert með 500 millj-
óna króna niðurskurði útgjalda í ár-
legum rekstri en einnig er ráðgert að
afla 400 milljóna króna viðbótartekna.
Í því sambandi verður farið yfir rekstr-
arkostnað allra sviða í rekstri bæj-
arfélagsins. Þá verður skipulag og
skipurit stjórnsýslu Reykjanesbæjar
endurskoðað til að ná fram auknum
sparnaði. Í samþykkt bæjarráðsins er
einnig gert ráð fyrir að launagreiðslur
á vegum bæjarfélagsins verði yfirfarn-
ar á næstu vikum með það fyrir augum
að draga úr yfirvinnu, bifreiðastyrkj-
um og öðrum greiðslum sem ekki eru
bundnar kjarasamningum. Loks legg-
ur bæjarráð til bann við nýráðningum
starfsfólks innan bæjarskrifstofunn-
ar og að reynt verði að manna lausar
stöður með núverandi starfsfólki. Þá
verður ekki ráðið í stöður undirstofn-
ana bæjarfélagsins nema með sérs-
töku leyfi bæjarráðs.
Fram kemur í fundargerð bæj-
arráðs að skýrsla KPMG sé krafa um
aðgerðir án þess að vænst sé nýrra at-
vinnuverkefna sem skili meiri tekjum
í bæjarsjóð enda breyti það litlu um
stöðuna og kröfuna á næstu árum um
að styrkja þurfi fjárhagsstöðu bæjar-
ins.
Þarf að selja höfnina?
Á bæjarstjórnarfundi daginn áður
voru kynnt áform Reykjaneshafn-
ar um 56 milljóna króna lántöku til
þess að standa skil á öðru láni og sam-
þykkti bæjarstjórnin að veita einfalda
ábyrgð vegna lántökunnar. Bæjar-
stjórnin skuldbatt sig til þess að selja
ekki eignarhlut sinn í Reykjaneshöfn
til einkaaðila fram til þess tíma að lán-
ið væri að fullu greitt. En fari svo að
bæjarfélagið selji hlut í Reykjaneshöfn
til annarra opinberra aðila er áskilið
að nýr eigandi ábyrgist lánið í sam-
ræmi við eignarhlut sinn. n
Nauðvörn Bæjarstjórn Reykjanesbæjar glímir við afar erfiðan fjárhag. Á grundvelli nýrrar
skýrslu KPMG verður reynt að snúa vörn í sókn.
Ætla að reyna að stilla
Steingrími gegn Höskuldi
H
ópur Vinstri græningja í
Norðurlandaráði ætlar að
reyna að stilla Steingrími J.
Sigfússyni upp gegn Hös-
kuldi Þórhallssyni, þing-
manni Framsóknarflokksins og
formanni Íslandsdeildar Norður-
landaráðs, í kosningum um forseta
ráðsins á fimmtudaginn. Þetta segir
Høgni Hoydal, færeyskur stjórnmála-
maður úr Þjóðveldisflokknum og for-
maður hóps Vinstri græningjanna í
Norðurlandaráði. Árlegt þing Norð-
urlandaráðs verður sett í dag, þriðju-
dag, í Stokkhólmi.
„Það sem við segjum er að Vinstri
græni hópurinn hefur unnið svo lengi
í Norðurlandaráði án þess að fá for-
setaembættið. Nú er tími til kominn
að þessi hópur fái líka að fara með
forsetaembættið. Nú erum við með
fínan kandídat,“ segir Høgni en þrett-
án ár eru síðan forseti ráðsins kom úr
röðum Vinstri græningja.
Forsetaembættið á fimm
ára fresti
Ísland fær forsetaembættið í Norður-
landaráði á fimm ára fresti og var það
Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylk-
ingarinnar, sem gegndi embættinu
síðast. Á hinum Norðurlöndunum er
vaninn sá að forsetaframbjóðandinn,
sem yfirleitt er einn í framboði og
þar með sjálfkjörinn, komi úr röð-
um stjórnarandstöðunnar. Á Íslandi
kemur forsetaefnið hins vegar úr röð-
um stjórnarmeirihlutans.
Kosið var á milli Höskuldar og
Steingríms á fundi Íslandsdeild-
ar Norðurlandaráðs í lok síðasta
mánaðar. Steingrímur varð und-
ir í þeirri kosningu en Samfylkingin
greiddi Höskuldi atkvæði sitt. Sam-
kvæmt tillögu Íslandsdeildarinnar er
Guðbjartur Hannesson, þingmaður
Samfylkingarinnar, varaformanns-
efnið. Ef ekkert mótframboð berst
verður Höskuldur sjálfkjörinn í for-
setaembættið og Guðbjartur í vara-
formannsembættið.
Rætt á valnefndarfundi
Ákvörðun hóps Vinstri græningja
var rædd á valnefndarfundi Norður-
landaráðs í Stokkhólmi í gær, mánu-
dag, en þar eiga sæti fulltrúar frá öll-
um flokkahópum Norðurlandaráðs
að sögn Høgna. Fundinum lauk eftir
að DV fór í prentun og því veit DV ekki
hver niðurstaða fundarins var.
Høgni átti hins vegar ekki von á
því að andstaða yrði við vilja Vinstri
græna hópsins innan valnefndarinnar.
„Nei, ég held ekki. Við ætlum bara að
reyna að keyra þetta mál áfram svona.
Þannig að við getum líka einhvern tí-
mann fengið forsetaembættið.“
Afar sjaldgæft er að mótframboð
berist í forsetakjörinu þannig að kosn-
ing um embættið hafi átt sér stað.
Vilja umræðu um framtíðarfyrir-
komulag
Steingrímur J. Sigfússon segir að
flokkahópur Vinstri græningja vilji
fá umræðu um hvernig eigi að haga
skipun forseta Norðurlandaráðs til
lengri tíma litið. „Flokkahópurinn
vill fá umræðu um það hvernig á að
hafa þetta fyrirkomulag til framtíð-
ar litið. Við erum einn af rótgrónu
flokkahópunum í Norðurlandaráði.
Höfum yfirleitt verið með á milli 10
og 15 prósent af fulltrúunum. Það er
minnt á það að við höfum aðeins einu
sinni átt forsetann og það var fyr-
ir 13 árum. En ég hef bara sett þetta í
hendurnar á flokkahópnum. En sem
stendur þá greinir Høgni bara frá
því í valnefndinni að við séum með
kandídat.“
Steingrímur segir líka að margir
séu á þeirri skoðun að Norðurlanda-
ráð eigi ekki að vera hrætt við lýð-
ræðislega kosningu og að „hrist“ sé
upp í því fyrirkomulagi sem verið hef-
ur innan Norðurlandaráðs. „Margir
telja að það sé allt í lagi að hrista að-
eins upp í þessu og ýtt aðeins við
þessu fyrirkomulagi. Ég man
ekki til þess að forsetaval-
ið hafi endað í kosningu.
Það er ágætt að hafa smá
fjör í þessu.“
Sú nýlunda gæti
því komið upp á fundi
Norðurlandaráðs á
fimmtudaginn að kos-
ið verði um tvo fulltrúa
frá Íslandi. Þannig
yrði gengið framhjá
vali Íslandsdeildar-
innar á frambjóð-
anda og látið reyna
á það hvort fulltrú-
ar annarra Norð-
urlandaþjóða séu
sammála meirihluta
Íslandsdeildarinn-
ar um forseta. n
n Vinstri græningjar í Norðurlandaráði vilja kosningu um forsetaembættið á fimmtudag
Ingi Freyr Vilhjálmsson
blaðamaður DV í Stokkhólmi/ingi@dv.is
„Ég man ekki til
þess að forsetaval-
ið hafi endað í kosningu.
Láta
reyna á
fyrirkomu-
lagið Flokka-
hópur Vinstri
græningja vill
kosningu um
forsetaembættið
í Norðurlandaráði.
Steingrímur J.
Sigfússon verður
þá boðinn fram
gegn Höskuldi
Þórhallssyni.
Íslenskt tal leiðbeinir
notanda um allar aðgerðir
Nú þegar eru fjöldi Íslendinga í fullu
fjöri sem startað hefur verið í gang
með hjartastuðtækjum frá Donnu.
Samaritan PAD
hjartastuðtæki
kosta aðeins frá
kr. 199.600 m/vsk.