Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2014, Page 6
6 Fréttir Vikublað 28.–30. október 2014
Fátt sem kallar á
lækna heim eftir nám
n Kjör og aðbúnaður ræður miklu n Brátt mikill læknaskortur í ýmsum sérgreinum
F
yrsta verkfall lækna að fengn-
um verkfallsrétti fyrir um 30
árum hófst hér á landi í byrjun
vikunnar.
Á heilsíðuauglýsingu
dagblaða mátti í gær sjá boðskap
formanns Læknafélags Íslands:
„Kjarabarátta lækna snýst ekki bara
um laun heldur einnig um eðli-
lega endurnýjun í læknastéttinni. Á
undanförnum árum höfum við misst
hóp lækna úr landi. Það er mikil blóð-
taka fyrir okkur öll. Meðalaldur lækna
á Íslandi hækkar. Nýliðun í hópn-
um er nauðsyn. Augljóst er að í óefni
stefnir ef fram heldur sem horfir,“
segir meðal annars í auglýsingunni.
Jafnframt er vakin athygli á að lækna-
stéttin starfi í alþjóðlegu umhverfi og
að sá þáttur sem ráði úrslitum um
samkeppnishæfnina séu laun þeirra.
Alvarleg staða
Talsvert mæðir á landlæknisemb-
ættinu þessa dagana vegna ástands-
ins í heilbrigðiskerfinu. „Heilbrigð-
iskerfið er stór og mikil keðja þar sem
margar mismunandi fagstéttir styðja
hver aðra. Það er gríðarlega alvarlegt
þegar læknar stíga þetta skref, fara í
verkfall og nýta sér verkfallsréttinn
sem þeir hafa. Við höfum áhyggjur
af þessu,“ segir Geir Gunnlaugsson
landlæknir.
Embætti hans kemur ekki nálægt
kjaramálum lækna enda eru þau í
höndum viðsemjendanna. „Við fylgj-
umst að sjálfsögðu með. Þegar þetta
lá fyrir sendum við fyrirspurnir til
allra heilbrigðisstofnana á landinu
varðandi viðbragðsáætlanir og á
hvern hátt þær hygðust bregðast við
yfirvofandi verkfalli læknanna. Við
vorum einnig í sambandi við Lækna-
félagið þar sem upplýst var um það
hvernig verkfallið yrði í framkvæmd.
Við höfum einnig rætt það hér inn-
anhúss á hvern hátt embættið gæti
komið að þessu í ljósi eftirlitshlut-
verks síns. Þess utan höfum við ver-
ið í sambandi við heilbrigðisstofnan-
ir til að meta áhrifin. Þetta er alvarleg
staða sem heilbrigðiskerfið stendur
frammi fyrir.“
Illa gengur að laða
lækna heim frá útlöndum
Læknar og forsvarsmenn sjúkrahús-
anna lýsa vaxandi áhyggjum af erf-
iðleikum við nýliðun í læknastétt.
Þeir fullyrða að ungum læknum lít-
ist ekkert á að koma heim að loknu
framhaldsnámi og hefja hér störf.
Geir landlæknir hefur einnig reynt
að ná eyrum ráðamanna vegna þessa
vanda. „Við höfum verið að horfa
á nýliðun ungra lækna. Við höfum
velt því upp hvernig hægt sé að laða
unga lækna til starfa og tekið upp
slíkar spurningar við stjórnvöld. Þetta
hefur verið hægfara neikvæð þró-
un og við stöndum kannski frammi
fyrir því núna að komnir eru brest-
ir í ákveðnum sérgreinum. Vandinn
vex í ákveðnum sérgreinum þar
sem umsóknir eru fáar sem engar
þegar auglýstar eru stöður. Við höf-
um einnig haft áhyggjur af mönnun
innan heilsugæslunnar, bæði á höf-
uðborgarsvæðinu en einnig á lands-
byggðinni. Það eru stöður inn-
an hennar sem ekki hefur tekist að
manna. Það er áhyggjuefni að ungir
læknar flýta för sinni utan í fram-
haldsnám án þess að hafa viðkomu
hér á sínu svokallaða kandídatsári.
Þeir hafa sumir hverjir staldrað við
og verið hér einhver ár að loknu al-
menna læknisnáminu. Þetta er og
hefur verið mjög verðmætur starfs-
kraftur á sjúkrahúsunum. Þeir hafa
fengið þar þjálfun og reynslu í úrlausn
flókinna læknisfræðilegra vandamála
en ekki síður hafa þeir verið mikil-
vægur tengiliður milli sérfræðing-
anna og starfsins á hinum ýmsu
deildum. Þegar þessi hópur þynnist
eykst um leið álagið á þá sérfræðinga
sem eru að störfum hér á landi. Og
þegar meðalaldur þeirra hækkar sjá-
um við alveg hvert stefnir.“
Kjörin ráða úrslitum
Geir segir skýringarnar á þessari ugg-
vænlegu þróun geta verið margar.
„Ein skýringin er sannanlega kjör
læknanna. Önnur skýring tengist að-
búnaði, það er að segja sú umgjörð
sem bíður einstaklinga þegar þeir
koma heim frá sérnámi. Það getur líka
haft áhrif og dregið úr löngun þeirra
til að snúa aftur. Það eru fjölmargir
þættir sem skipta máli þegar menn
taka ákvörðun um að snúa heim. Við
höfum verið þeirrar gæfu aðnjótandi
að fólk hefur viljað snúa heim eftir
nám og stundum hafa ekki verið stöð-
ur fyrir alla. Nú stöndum við frammi
fyrir hinu gagnstæða; við eigum erfitt
með að laða fólk til okkar og manna
stöðurnar. Það er mjög alvarlegt.
Vð þurfum að setja okkur í spor
þeirra sem nú eru erlendis og hafa,
eins og reynslan hefur sýnt, hug á því
að snúa heim. Við þurfum að velta því
fyrir okkur hvers vegna þeir snúa ekki
heim í sama mæli og áður. Við höf-
um nefnt launamálin sem greinilega
er mjög mikilvægur þáttur. Svo er það
húsnæðismál helstu sjúkrahúsanna og
tækjabúnaður. Í því sambandi má ekki
gleyma að sérgreinar læknisfræðinnar
verða æ sérhæfðari. Ísland er lítið land
og hefur takmarkaða burði til að bera
mjög sérhæfðar greinar. Það þarf ým-
islegt annað að koma til að vega upp
á móti því. Þetta er flókin jafna og það
tekur tíma að byggja upp svo öfluga
þjónustu sem raun ber vitni.“
Brestir
„En hér og þar eru komnir brest-
ir sem við þurfum að leggja okk-
ur fram um að reyna að leysa. Fyrst
má nefna undirstöðuna sem er
heilsugæslan. Ekki má gleyma því
að þar eru ómannaðar stöður og við
verðum að reyna að laða lækna til
starfa innan hennar. Það er ánægju-
legt, og ég vil að það komi fram, að
það eru ungir læknar sem hafa sýnt
heilsugæslunni og læknanámi á
sviði heilsugæslu áhuga. Von mín er
að ástandið fari batnandi á þeim stað
í heilbrigðiskerfinu, en það þarf að
halda vel á spöðunum. En ástandið
er verra á ýmsum öðrum stöðum
þar sem veitt er sérhæfð þjónusta.
Það er mikið álag á krabbameins-
læknum sem hefur fækkað. Það hef-
ur verið talað um myndgreininguna,
en þar vantar sérfræðinga. Nefna má
nýrnalækningar en þar kreppir skór-
inn einnig. SAK (Sjúkrahúsið á Akur-
eyri) hefur glímt við þetta einnig og
leitar sérfræðinga og leggur sig fram
um að laða til sín sérmenntað og vel
menntað fagfólk. Þetta er því flókið
og ekki einfalt að leysa. Þetta er þrot-
laus vinna.“
Ábendingar vegna fjárlaga
Geir segir að lagðar hafi verið fram
ýmsar ábendingar í tengslum við
gerð fjárlaga og framlög til heilbrigð-
iskerfisins. „Þetta er nú til skoðunar
í ráðuneytinu og á Alþingi í tengsl-
um við gerð fjárlaga. Það hafa kom-
ið fram ábendingar um áherslur sem
mætti huga að áður en fjárlagafrum-
varpið verður að lögum. Það þarf
víða að bæta inn og það olli von-
brigðum að ekki skyldi ætlað meira
fé til uppbyggingar Landspítalans
eins og fram hefur komið fram í fjöl-
miðlum.“ n
Jóhann Hauksson
johannh@dv.is „Nú stöndum við
frammi fyrir hinu
gagnstæða; við eigum
erfitt með að laða fólk til
okkar og manna stöðurn-
ar. Það er mjög alvarlegt.
Ekkert borð fyrir báru Nýting á leguplássi á Landspítala er 100 prósent en ætti að réttu
lagi að vera talsvert minni.
„Það er áhyggju-
efni að ungir
læknar flýta för sinni
utan í framhaldsnám
Skortur á endurnýjun
Geir Gunnlaugsson landlækn-
ir lýsir þungum áhyggjum af
slakri endurnýjun í hópi ungra
lækna á ýmsum sérsviðum
á sama tíma og meðalaldur
þeirra sem fyrir eru hækkar.
Mynd RóBERt REynISSon
Hugo Boss söluaðilar:
Reykjavík:
Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100
Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100
Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665
Meba Kringlunni s: 553-1199
Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711
Hafnarfjörður
Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666
Keflavík:
Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757
Selfoss:
Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433
Akureyri:
Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509
Akranes:
Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458
Egilsstaðir:
Klassík Selási 1 s:471-1886
Úra- o skartgripaversl n
Heide Glæsibæ - s: 581 36 5