Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2014, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2014, Qupperneq 17
Vikublað 28.–30. október 2014 Fréttir Erlent 17 B andarísk 15 ára stúlka, frá Detroit í Bandaríkjunum, hefur verið ákærð fyrir sér- staklega hættulega líkams- árás á bróður sinn. Þá er hún sökuð um að hafa reynt að myrða for- eldra sína og systur. Málið hefur vak- ið mikinn óhug og fjölmiðlafár vest- anhafs, en stúlkan stakk bróður sinn ítrekað bæði í háls og útlimi fyrir utan heimili þeirra fyrir rúmri viku. Kærasti stúlkunnar er talinn vera hugmynda- fræðingur voðaverkanna. Stúlkan, Roksana Sikorski 15 ára, mun hafa ráðist á 12 ára bróður sinn með hnífi á meðan kærasti hennar sendi henni leiðbeiningar með smá- skilaboðum um það hvernig hún ætti að bera sig að. Rivera sagður örlagavaldur Roksana var ósköp venjulegur gang- fræðaskólanemandi þar til fyrir viku. Hún ólst upp hjá foreldrum sínum í Canton í Detroit. Roksana var ætt- leidd til Bandaríkjanna frá Póllandi ásamt bróður sínum og yngri systur fyrir rúmum tíu árum. Foreldrar hennar, Laurene og Jef- frey Sikorski, hafa greint fjölmiðlum frá því, harmi slegin, að börnin hafi verið ættleidd frá munaðarleysingja- heimili í Póllandi. Þeim var kunnugt um að börnin hefðu átt afar erfiða æsku en segja að líf þeirra hafi ver- ið í föstum skorðum og fjölskyldan afar hamingjusöm í Canton. Roksana hafði gengið í skóla eins og systkini hennar, en hafði fyrir ekki svo löngu kynnst eldri manni, Michael Rivera, 23 ára. Þau hafa átt í ástarsambandi og hurfu í sumar og sáust ekki um tíma. Á endanum sneru þau þó aftur. Fyrst um sinn var allt með kyrrum kjörum, en síðan breyttist allt. Foreldrar Rok- sönu hafa kært Rivera fyrir margvísleg kynferðisbrot á hendur dóttur þeirra og misneytingu. Talið er að í því sé að finna ástæðu árásarinnar. Má ekki hitta þau Sem áður sagði hefur málið vak- ið mikinn óhug. Roksana og Rivera hafa bæði verið ákærð fyrir þátt sinn í líkamsárásinni, auk þess sem þau verða að líkindum ákærð fyrir tilraun til manndráps. Lögregluyfirvöld segja að Roksana hafi farið að heimili sínu á fimmtudaginn fyrir rúmri viku og hitt bróður sinn þar fyrir utan. Fyrir utan lóðina sat Rivera í bifreið og og sendi stúlkunni smáskilaboð þar sem hann sagði henni hvernig hún ætti að bera sig að við árásina. Roksana réðst að drengnum en öskur hans komu í veg fyrir að hún gæti lokið sér af og gert atlögu að foreldrum sínum. Hún var handtekin og stuttu síðar var Rivera einnig færður í fangaklefa. Roksana hefur nú verið sleppt úr gæsluvarðhaldi gegn gríðarhárri tryggingu, einni milljón dollara. Henni er óheimilt að nálgast systk- ini sín en má undir miklu eftirliti hitta foreldra sína. Standa með henni „Við stöndum með henni,“ segja Lauren og Jeffrey Sikorski, foreldrar Roksönu. „Við höfum sterk tengsl við dóttur okkar. Við viljum styðja hana og styrkja og það er mikilvægt að við fáum að vera í sambandi við hana,“ segja þau. Sonur þeirra mun ná fullri heilsu og braggast vel á sjúkrahúsi. „Við höfum alið hana upp eins vel og okkur var unnt,“ segir Lauren. Hún lýsir dóttur sinni sem vinmargri stúlku. Það hafi vakið athygli þeirra hjóna þegar hún byrjaði að hegða sér einkennilega í byrjun árs. Þegar þau hafi áttað sig á ástarsambandi henn- ar og Rivera hafi þau reynt að bregð- ast við, en þá stakk Rivera af með Rok- sönu. Foreldrarnir segjast telja að Roksana glími enn við eftirköst þeirra erfiðu aðstæðna sem hún upplifði í bernsku áður en hún kom til Banda- ríkjanna. n „Við höfum alið hana upp eins vel og okkur var unnt Reyndi að drepa litla bróður sinn Kærasti fimmtán ára stúlku sagður hugmyndasmiður líkamsárásar og morðtilraunar Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is Skipulagði Rivera er sagður hafa lagt á ráðin. Erfiðir mánuðir Roksana breyttist mjög í byrjun þessa árs, segja foreldrar hennar. Kynjamisrétti fyrir dóm í Japan Konum ekki boðið með á barinn eftir vinnu K ona sem er starfsmaður vel- ferðarráðuneytis Japans hef- ur höfðað mál gegn japanska ríkinu vegna kynjamisrétt- is sem hún sætt í störfum sínum. Konan hefur starfað við ráðuneytið í tæpa tvo áratugi og ekki fengið neinar stöðu- eða launahækkanir á því tímabili. Er þetta í fyrsta sinn sem mál er höfðað í Japan vegna vegna kynjamisréttis, að sögn lög- fræðings konunnar. Málið er talið hið óheppilegasta fyrir forsætisráðherra landsins, Shinzo Abe, sem ítrekað hefur lýst því yfir að vinnuframlag kvenna sé lykillinn að hagvexti landsins og að hann vilji bæta stöðu þeirra á vinnumarkaði. Konan krefst þess að fá 6,6 millj- ónir jena, eða sem samsvarar um 7,4 milljónum íslenskra króna, í skaðabætur vegna þeirra launa sem hún hefur orðið af. Konan er á fertugsaldri og starfar sem að- stoðarforstöðumaður í tölfræði- og upplýsingadeild ráðuneytisins sem einnig fer með jafnréttismál á vinnumarkaði í Japan. Hún tók við stöðunni árið 1996 og hefur síðan þá stöðugt verið neitað um stöðuhækkun á meðan karlkyns samstarfsmenn hennar með jafn langan starfsaldur hafa allir hlotið framgöngu í starfi. Konan kveðst vona að með mál- inu takist að uppræta það óréttlæti sem konur innan ráðuneytisins verði fyrir. Í stefunni kemur fram að konum innan ráðuneytisins hafi ítrekað verið neitað um tækifæri til að þróa með sér nýja kunnáttu, sama hve mikið þær leggi sig fram eigi þær ekki möguleika á stöðu- hækkun. Þá eru karlar meirihluti starfsmanna mannauðsdeildar ráðuneytisins. Innan ráðuneytisins hefur tíðk- ast að bjóða kvenkyns starfsmönn- um ekki með á barinn eftir vinnu að drekka með yfirmönnunum og segir konan að þar með hafi þær kerfisbundið verið sviptar möguleikum til samskipta við þá. n Japan Starfsmaður velferðarráðuneytis Japans hefur höfðað mál vegna kynjamisréttis. Myndin er úr safni. Mynd REutERS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.