Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2014, Qupperneq 21
Vikublað 28.–30. október 2014 Umræða 21
Frelsi fylgir
ábyrgð
Ég var
tekinn af lífi
Mummi í Mótorsmiðjunni um almenningsumræðu um sig - DV
Maður er svo ofboðslega fljótur
að vinna upp þol og styrk
Kolbrún Björnsdóttir er með hjóladellu - DV
Fjölbreytileiki og hundaflautupólitík
R
eykjavíkurborg hefur
sótt um aðild að sam-
starfi um fjölmenningu
og fjölbreytileika á veg-
um Evrópuráðsins undir
heitinu Intercultural cities. Í sam-
starfinu er gengið út frá því að fjöl-
breytileiki sé eftirsóknarverður. Það
snýst ekki bara um að tryggja gagn-
kvæma virðingu ólíkra hópa, ekki
um að við umberum hvert annað
eða reynum að lifa í sátt. Verkefnið
gengur út á að sækjast eftir fjöl-
breytileika, að laða sem allra fjöl-
breyttastan hóp fólks að borginni
og skapa aðstæður þar sem allir fá
notið sín. Það er sama hvort litið er
til félagslegra, efnahagslegra eða
menningarlegra þátta, ábatinn af
fjölbreytileika er ótvíræður.
Reykjavík er ekki best í heimi
Hluti af aðildarferlinu felst í að meta
stöðu Reykjavíkurborgar í saman-
burði við samstarfsborgirnar. Fjórt-
án þættir eru skoðaðir, bæði innan
stjórnkerfis og þjónustu borgar-
innar en einnig þættir sem varða
atvinnulífið, fjölmiðla og háskól-
ana, svo nokkur dæmi séu nefnd.
Reykjavík kemur ekki vel út. Af 64
borgum er Reykjavík númer 57. Við
erum ekki best í heimi – ekki miðað
við höfðatölu. Engin tölfræðitrikk
koma okkur til hjálpar.
Auðmýkt
Best í heimi er enda úrelt markmið.
Að vera best kallar á samkeppni í
stað samstarfs, það snýst um okk-
ur sjálf en ekki aðra. Best í heimi
gengur beinlínis gegn markmiðum
Intercultural cities. Auðvitað eig-
um við að hafa metnað, en við eig-
um að beina honum í samstarf en
ekki samkeppni. Vinna með öðr-
um, læra af öðrum og miðla því sem
vel er gert. Að mæla okkur í saman-
burði við aðrar borgir er vissulega
gagnlegt, en aðallega þó til að bæta
okkur í afmörkuðum þáttum.
Niðurstaða matsins sýnir að við
getum bætt okkur verulega þegar
kemur að tækifærum fólks til virkni
og þátttöku í nærsamfélaginu. Við
því getum við auðveldlega brugð-
ist í vinnunni við skipulag hverfa
og lært af þeim borgum sem best
standa hvað þetta varðar. Sömuleið-
is getum við gert betur þegar kemur
að því að bjóða nýja íbúa velkomna
til borgarinnar, fyrir utan að kynna
fólki réttindi sín og skyldur getum
við tryggt gott aðgengi að upplýs-
ingum um verkefni og uppákomur
sem stuðla að bættum félagsauð,
samveru og þátttöku borgarbúa.
Það verður bæði krefjandi og gef-
andi að bæta okkur á þessum svið-
um – og hinum 12 sem úttektin náði
til. Til þess þurfum við frekar auð-
mýkt en keppnisskap, Intercultural
cities er samstarfsvettvangur en
ekki keppni.
Höfnum hundaflautupólitík
Á Íslandi hefur hvorki rasismi né
fasismi náð að hreiðra um sig að
ráði. Ekkert opinbert stjórnmálaafl
hefur þá stefnu að sporna gegn fjöl-
breytileika. Engu að síður örlar á
neikvæðu viðhorfi til fjölbreytileik-
ans og efasemdum er sáð um af-
markaða hópa, án þess þó að geng-
ist sé við því.
Stóra moskumálið í aðdraganda
borgarstjórnarkosninganna í vor
er skýrt dæmi. Þar sagðist oddviti
Framsóknarflokksins vera mótfall-
inn byggingu mosku í Reykjavík þó
ástæðurnar væru óljósar. Ýmist var
hún á móti moskunni á skipulags-
legum forsendum þar sem hún
átti frekar heima annars staðar
eða lagalegum forsendum þar sem
borginni bar ekki að gefa lóðina
heldur selja hana. Hún þvertók fyrir
rasískar skoðanir en sagði samt frá
því að í Svíþjóð hefði fólk áhyggjur
af þvinguðum hjónaböndum meðal
múslima. Það hafði þó ekkert með
stóra moskumálið að gera.
Þetta er það sem stundum er
kallað hundaflautupólitík. Áróður
sem komið er til skila undir rós en
þó með mjög afgerandi og mark-
vissum hætti. Þekkt leið sem getur
verið árangursrík – ef ekkert er að
gert. Á vegum Intercultural cities er
lögð þung áhersla á þverpólitíska
samstöðu, samstarf allra flokka
um verkefnið og snör viðbrögð við
hvers kyns áróðri, fordómum og
hundaflauti. Það má ekki verða
að einhver (og þá mjög lítill) hluti
borgarstjórnar verði til þess að rýra
trúverðugleika Reykjavíkurborgar
þegar kemur að verkefninu.
Fjölbreytileikinn
Sem aðili að Intercultural cities
mun Reykjavík beinlínis sækjast
eftir fjölbreytileika. Við munum
ekki bara fást við hann sem verk-
efni, sætta sjónarmið og stuðla að
umburðarlyndi. Við munum gera
það sem í okkar valdi stendur til að
gera Reykjavík aðlaðandi fyrir fólk
allsstaðar að og læra af fólki sem
hefur ólíka reynslu og þekkingu.
Þannig er brýnt að hér rísi moska,
rússnesk rétttrúnaðarkirkja,
búddahof, ásatrúarhof og fleiri
bænahús. Ekki bara til að þjónusta
fjölbreyttan íbúahóp Reykjavíkur,
heldur einnig til marks um að hér
sé samþykkt og æskilegt að iðkuð
séu margs konar trúarbrögð.
Það er undir okkur Reykvíking-
um komið hvernig til tekst. Ef við
setjum okkur það sameiginlega
markmið að stuðla að fjölbreytt-
ari borg, þar sem þekkingin og
reynslan verður meiri og menn-
ingin fjölbreyttari. Ef við sköpum
aðstæður fyrir fólk til að hittast, tala
saman, kynnast, læra og miðla. Ef
við þróum samfélagið áfram í sam-
einingu og af virðingu hvert fyr-
ir öðru. Þá framtíðin björt. Saman
getum við unnið að því að gera
góða borg betri. Fjölbreyttari og
betri. n
Sóley Tómasdóttir
oddviti Vinstri grænna í Reykjavík
Kjallari „Á Íslandi
hefur hvorki
rasismi né fasismi
náð að hreiðra um
sig að ráði
Myndin Æfingar Hópur fólks æfir björgun úr sjó úr varðskipinu Tý, í köldu og stilltu veðri á mánudag. Mynd SigTRygguR ARi
1 Marta María svarar: „Fannst merkilegt
að eigandi heilsuveitinga-
staðarins Local gerði þetta“
Marta María Jónsdóttir, fréttastjóri dæg-
urmála á mbl.is, segir Helgu Gabríelu,
bloggara og rekstrarstjóra veitinga-
staðarins Local, fara frjálslega með
sannleikann í bloggfærslu þar sem Helga
Gabríela gerir upp samskipti sín við
Mörtu Maríu vegna Instagram-mynda.
Lesið: 52.209
2 Erlendur sendir dóttur Ásdísar skilaboð. „Hann
er farinn að tala um barna-
barnið,“ segir Ásdís H. Viðarsdóttir
um Erlend Þór Eysteinsson sem hefur
ítrekað hótað Ásdísi frá því samvistum
þeirra lauk. Í umfjöllun DV fyrir helgi kom
fram að Erlendur sendir dóttur Ásdísar
ógnandi skilaboð.
Lesið: 41.718
3 Helgi Seljan reyndi að kæra Erlend Helgi Seljan,
fréttamaður í fréttaskýringaþættinum
Kastljósi, staðfesti í samtali við DV að
Erlendur Þór Eysteinsson, sá sem ítrekað
hefur hótað Ásdísi H. Viðarsdóttur
frá því samvistum þeirra lauk, hafi að
undanförnu sent Helga hótanir með
SMS-skilaboðum. Helgi reyndi að kæra
hótanirnar til lögreglu sem neitaði að
taka við kærunni.
Lesið: 38.544
4 Kveður Smartlandið:
„Segi stopp við út-
litsdýrkuninni og
bullinu sem kemur
fram á Smartlandi“ Nanna Árna-
dóttir, íþróttafræðingur og einkaþjálfari
hjá World Class á Seltjarnarnesi, hefur
ákveðið að hætta pistlaskrifum fyrir
Smartland á Mbl.is af prinsippástæðum.
Þetta kemur fram í síðasta pistli hennar
sem birtist þar á sunnudagskvöldið.
Lesið: 26.163
5 „Ég hélt það yrðu mín örlög að deyja í þessu
bílslysi“ Þórhildur Þorkelsdóttir,
fréttamaður á Stöð 2, lenti í alvarlegu
bílslysi fyrir einu á hálfu ári á Skeiðavegi.
Þau voru fjögur í bílnum á leið heim af
balli og Þórhildur sat í farþegasætinu
þegar ökumaðurinn sofnaði undir stýri á
um 90 kílómetra hraða. Þórhildur lýsir því
meðal annars í helgarviðtali í DV hvernig
þau sluppu öll með ótrúlegum hætti.
Lesið: 24.953
Mest lesið
á DV.is
Hanna Birna Kristjánsdóttir segir að margt þurfi að brýna í fjölmiðlalöggjöfinni - DV