Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2014, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2014, Síða 26
26 Lífsstíll Vikublað 28.–30. október 2014 Skref í átt að hamingju Þ að eru eflaust einhverjir sem kannast við að öfunda náung- ann sem virðist lifa frábæru og hamingjusömu lífi. Lán- ið virðist leika við hann allan ársins hring og þú skilur ekki hvernig hann fer að þessu. Kann að vera að líf þessa einstaklings sem þú öfundar sé í raun svipað þínu eigin, en að hann kunni bara betur að lifa því? 1 Einstaklingsbundin skynjun Hamingja er yfir- leitt afleiðing einstaklingsbundinn- ar skynjunar og túlkunar á aðstæð- um og uppákomum. Þrátt fyrir að geta ekki alltaf stjórnað því hvernig við skynjum hlutina, þá getum við nokkurn veginn stýrt því hvern- ig við bregðumst við. Við lend- um yfirleitt í ákveðnum aðstæðum vegna ákvarðana sem við tökum, eða gjörða okkar. Í raun getum við því að miklu leyti stýrt því hvort við erum hamingjusöm eða ekki. Hér á eftir eru nokkur dæmi um hvern- ig þú getur aukið hamingju þína og viðhaldið henni eins náunginn sem þú öfundar. 2 Ekki reyna að geðjast öðrum Ekki leggja þig fram við að láta aðra geðjast að þér. Reyndu að láta þér standa á sama um hvað öðrum finnst um þig. Það skiptir öllu máli að þú sért sátt/ur við sjálfa/n þig, ekki hvað öðrum finnst. Taktu ákvarðanir og stattu með þeim og lifðu lífinu eins og þú vilt hafa það. Ekki beygja þig undir aðra eða reyna að standast óeðlilegar kröfur. Þú þarft ekki að gera eitthvað bara af því einhver segir þér að gera það. Fyrir utan það að fara eftir lögum. Fylgdu eigin sannfæringu og innsæi. Ef þú telur að einhver ákvörðun sé rétt, treystu því þá að hún sé rétt. Það er óþarfi að bera hana undir aðra. 3 Ekki treysta á vinina Það er nauðsynlegt að eiga góða vini sem elska þig og þú elskar. En gott er að hafa í huga að þú átt þá ekki og þeir ekki þig. Vinirnir hafa sínar eigin langanir og þarfir sem þeir setja yf- irleitt í forgang. Ef þú treystir of mik- ið á vini þína þá munu þeir eflaust valda þér vonbrigðum, þótt þeir ætli sér það ekki. Hamingjusamir einstaklingar eiga yfirleitt góða vini, en þeir gæta þess þó að halda eigin sjálfstæði til að koma í veg fyrir að þeir verði fyrir vonbrigðum. Gott er að hafa í huga að skortur á sjálfstæði getur eyðilagt bæði vinasambönd og ástarsam- bönd. 4 Njóttu hvers dags Þegar þú spyrð hamingjusam- an einstakling hvað hann geri, þá er ólíklegt að hann gefi þér upp starfs- heiti sitt. Það er mun líklegra að hann segi þér virkilega hvað hann er að gera í lífinu. Hvaða verkefni eða ferðalög eru á döfinni, hvað hann hefur afrekað og hvaða vandamál hann sé að leysa. Þá eru hamingju- samt fólk líklegra til að lifa í núinu frekar en að bíða eftir framtíðinni. Það veit að það gerist fátt nema það sækist eftir því og það er lykillinn að hamingjunni. Njóttu hvers dags og þess sem hann hefur upp á að bjóða, það gerir þig hamingjusamari. 5 Ekki festa þig á einum stað Hamingjusam- ir einstaklingar festa sig síður nið- ur á ákveðnum stað. Þeir vilja hafa tækifæri til þess að ferðast og njóta frelsis- ins. Kannski einfaldlega vegna þess að þeim leiðist að vera alltaf í sama umhverfinu og vilja frekar hitta nýtt fólk og upplifa nýja hluti. Þegar þú spyrð þessa einstaklinga hvar þeir búi, þá er líklegt að þeir segi þér það, en bæti við: „þessa stundina“ eða „akkúrat núna.“ Ekki setja það fyrir þig að ferðast eða flytja þig um set ef þig langar til þess. Það er ekkert ómögulegt í þeim efnum. 6 Ekki nota sjálfshjálp- arbækur Þú ættir ekki að þurfa bæk- ur til að segja þér hvernig þú átt að lifa lífinu. Lifðu frekar eftir þinni eigin hugmyndafræði. Ham- ingjusamir einstaklingar treysta á sjálfan sig og vita hvenær þeir eru að gera rétt og rangt. 7 Ekki hræðast dauðann Hamingjusam- ir einstaklingar gera sér grein fyrir því að lífið er hverf- ult. Þeir vita að þeir koma til með að deyja einn daginn, líkt og allir aðrir. Ef þú óttast ekki dauðann ertu líklegri til að verða hamingjusam- ari. Þú getur ekki stjórnað dauðan- um og því máttu alls ekki láta dauð- ann, eða hræðslu við hann, stjórna þér. Þeir sem eru hræddir við dauð- ann eru ólíklegri til að láta drauma sína rætast. 8 Ekki láta markmiðin stjórna þér Ímyndaðu þér heiminn sem leikhús þar sem þú ert leikstjóri. Taktu stjórnina á eigin lífi í þínar hendur og sjáðu heiminn eins og þú vilt sjá hann. Þú smíðar þinn eigin raunveruleika, sumum gengur bara betur í þeim fram- kvæmdum en öðrum. Hamingju- samt fólk á sér drauma, vonir og markmið. Það vill ná ágrangri en gætir þess að láta markmiðin ekki ná tökum á lífinu. Þú getur ekki lif- að lífinu í eintómri bið eftir fram- tíðinni. Nútíðin er eini tíminn sem hægt er að lifa í. 9 Ekki breyta öðrum Ekki reyna að breyta öðr- um, það skilar aldrei tilætluð- um árangri og veld- ur vonbrigðum. Fólk getur alveg breyst, en það verður þá að gera það á sínum eigin forsendum. Það er betra að reyna að leiðbeina fólki og benda því á hvað þú telur rétt, en framhaldið er í þess höndum. n n Treystu á sjálfan þig n Stýrðu því hvernig þú bregst við aðstæðum Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrun@dv.is Erfið sambönd breyta efna- skiptum fitu Ný rannsókn sem kynnt var á ráðstefnu í Háskólanum í Ohio nýlega sýndi fram á að fjand- samleg sambönd geti haft áhrif á efnaskipti fitu líkamans, sér- staklega ef viðkomandi hefur ein- hvern tímann verið þunglyndur. 43 heilbrigð hjón sem höfðu verði gift í allavega þrjú ár voru beðin um að svara könnun um hversu ánægjulegt hjónabandið væri, hvort viðkomandi hefði þjást af þunglyndi. Næst fengu þau fitumiklar máltíðir ekki ólík- ar skyndibita. Þess á eftir var mælt á 20 mínútna fresti hversu mörgum hitaeiningum þau brenndu. Svo voru hjónin beðin um að reyna að leysa stórt vanda- mál í hjónabandinu sem oft hefði orsakað rifrildi. Í ljós kom að fjandsamlegir makar, sem líka voru eða höfðu verið þunglyndir brenndu að jafnaði um 31 færri kaloríum á klukkutíma en hinir. Frú Lauga segir skilið við plastpoka Bændamarkaður frú Laugu tekur skýra afstöðu gegn plastpokum og þeirri mengun sem af þeim stafar. Verslunin hefur skipt yfir í bréf- poka ásamt því að ætla að prófa sig áfram með poka úr óerfða- breyttum maís, en þeir brotna niður í náttúrunni og koma alveg í stað hefðbundinna ruslapoka. Verslunin sem selur lífræn- an mat beint frá býli, hefur verið kraftmikill liðsauki í byltingunni gegn umbúðum sem nú stendur sem hæst. Þetta er þó ekki fyrsta skref verslunarfólksins í þessari baráttu því auk þess að segja skil- ið við plastpokana gefst viðskipta- vinum þeirra kostur á að fylla á ólífuolíuflöskurnar sínar hjá frúnni ásamt því að fá afslátt af eggjum komi þeir með sinn eigin eggjabakka. Þín eigin pítsusósa Pítsa getur verið hinn besti heilsumatur ef álegg er valið með slíkt í huga. Við mælum með þessari pítsusósu ofan á spelt/grænmetispítsu og þú verður leikandi léttur á eftir. Þú þarft: Eina dós af maukuðum tómat Þrjá hvítlauksgeira Eina msk. tómatpúrru Oreganó Gróft salt Svartan pipar Setjið öll hráefni í skál og kryddið með salti, pipar og or- eganó eftir smekk. Maukið allt saman með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Berið á pítsuna að vild. Sósuafgangur geymist vel í lokuðu íláti í kæli. Lifðu í núinu Njóttu hvers dags frekar en að bíða eftir framtíðinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.