Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Blaðsíða 6
6 Fréttir Vikublað 4.–6. nóvember 2014 Hugo Boss söluaðilar: Reykjavík: Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100 Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100 Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665 Meba Kringlunni s: 553-1199 Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711 Hafnarfjörður Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666 Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757 Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433 Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509 Akranes: Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458 Egilsstaðir: Klassík Selási 1 s:471-1886 Úra- o skartgripaversl n Heide Glæsibæ - s: 581 36 5 Áreitti fjórtán ára stúlku 23 ára karlmaður hefur verið dæmdur fyrir að áreita 14 ára stúlku kynferðislega og nota til þess samskiptamiðlana Facebook og Skype. Maðurinn sendi stúlk­ unni einnig smáskilaboð. Hann var dæmdur í sex mánaða skil­ orðsbundið fangelsi og til greiðslu 400.000 króna til stúlkunnar. Móð­ ir stúlkunnar hafði farið fram á að þeim yrðu dæmdar 1.200.000 krónur í miskabætur. Í dómi kemur fram maðurinn áreitti stúlkuna í maí og júní í fyrra, en honum var gefið að sök að hafa á þessu tímabili rætt við stúkuna á kynferðislegan hátt. Þá segir í ákæru: „… og biðja hana um að hitta sig í því skyni að hafa við hana kynferðismök, svo og sýna henni kynfæri sín er hann fróaði sér og fá hana til að sýna honum ber brjóst hennar, hvort tveggja í gegnum vefmyndavél, og beðið hana um að hitta sig til þess að hafa við hana kynferðismök.“ Maðurinn játaði brotin bæði hjá lögreglu og fyrir dómi. Hann hefur ekki áður hlotið dóm. Manninum ber einnig að greiða sakarkostnað og þóknun lög­ fræðinga. H ún lemur barnið sitt,“ segir hálfbróðir drengs sem orðið hefur fyrir grófu of­ beldi af hálfu móður sinnar. Héraðsdómur Reykjaness dæmdi konuna í sex mánaða skil­ orðsbundið fangelsi síðastliðinn fimmtudag fyrir að misþyrma syni sínum bæði andlega og líkamlega í janúar á síðasta ári, en að sögn bróð­ ur drengsins hefur ofbeldið haldið áfram eftir að dómurinn féll. Hann segist óttast um velferð bróður síns og þriggja annarra barna sem einnig búa á heimilinu. Faðir þeirra er greindarskertur og því ekki metinn hæfur til að annast son sinn. Bróðir drengsins segist tilbúinn til að ann­ ast hann en hann fór með tímabund­ ið forræði yfir honum þegar ofbeldið kom fyrst upp. Hann segir barna­ verndaryfirvöld skorta úrræði til að taka á málinu. Laminn daginn eftir að dómur féll Konan var dæmd fyrir að slá son sinn, sem þá var nýorðinn níu ára, með stólfæti í bakið, rassinn, hand­ leggi, hægri mjöðm og í bringuna. Með þessari háttsemi hafi hún mis­ þyrmt syni sínum bæði andlega og líkamlega þannig að heilsu hans var hætta búin, eins og segir í dómn­ um. Móðir drengsins segir hann hafa mætt illa í skóla og hafi í um­ rætt skipti læst sig inni á baði. Hún segist hafa orðið reið þar sem hún hafi verið orðin of sein í vinnuna og slegið drenginn þegar hann kom út af baðherberginu. Drengurinn sagði bróður sínum hins vegar að kærasti móður sinnar hefði einnig tekið þátt í barsmíðunum. Hann hafi meðal annars verið klemmdur með salern­ ishurðinni og laminn með stól þar til stóllinn brotnaði. Í framhaldinu hafi þau hent honum út óklæddum en síðan hent í hann buxum sem hann hafi farið í öfugar. Frá þessu er greint í málsgögnum og dómi héraðsdóms. Bróðir drengsins segir umrætt til­ vik aðeins eitt af mörgum. Tilviljanir hafi ráðið því að þetta mál hafi farið fyrir dóm. „Það var kennari í Holta­ skóla sem tók hann upp í og fór með hann niður í skóla. Skólastjór­ inn hringdi í mig og ég tók hann og fór með hann niður á heilsugæslu. Þannig þróaðist þetta mál sem var verið að dæma í,“ segir bróðir drengsins sem fór með tímabundið forræði yfir drengnum í tvo mánuði þar til barnaverndaryfirvöld fundu fóstur fyrir hann. Drengurinn fór þá í fóstur á Patreksfjörð en sneri aftur til móður sinnar síðastliðið sumar. Að sögn bróður drengsins þurftu barnaverndaryfirvöld að hafa af­ skipti af fjölskyldunni strax daginn eftir að dómur féll í málinu. Þá hafði móðirin gengið í skrokk á drengn­ um á nýjan leik. „Hann vildi ekki fara að sofa. Hann vildi fá að vera í tölvunni. Ég veit ekki nákvæm­ lega hvað þau gerðu við hann en þau lömdu hann og hentu honum út. Hann hljóp þá um miðja nótt, í stuttbuxum einum fata, og bankaði upp á hjá pabba,“ segir hann. Engin úrræði í boði Maðurinn segir engin úrræði í boði hjá Barnaverndarnefnd Reykjanes­ bæjar fyrir drenginn. „Barna­ verndarnefnd getur ekki tekið hann af móðurinni því það finnst ekk­ ert fóstur fyrir hann. Það er ekki til neitt úrræði. Það er ekki til neitt fólk sem vill taka hann,“ segir bróð­ ir drengsins. „Barnaverndarnefnd er samt að reyna að gera sitt besta en þau bara geta ekkert gert. Ég hef stundum hringt þegar mér hefur of­ boðið í gegnum tíðina og þá er alltaf verið að reyna að gera einhverja samninga við hana. Þegar þeir síð­ an klikka þá eru gerðir aðrir samn­ ingar.“ Aðspurður hvernig samningar þetta séu segir maðurinn: „Þau eiga að vera undir eftirliti. Ég veit að núna var gerður samningur sem gildir fram í desember. Barna­ verndarnefnd kallar hana alltaf til sín, gerir samning við hana og hún á að standa við eitthvað ákveðið prógramm sem hún þarf að fylgja. Prógrammið er í stuttu máli; gefðu honum að borða, láttu hann mæta í skólann og ekki berja hann. Samt hefur komið upp að hann hafi ekki mætt tíu daga í röð í skólann og hún heldur alltaf áfram að berja hann.“ Þegar blaðamaður innir mann­ inn eftir því hvers vegna drengurinn fái ekki að vera í hans umsjá segir hann það sennilega vera vegna þess að þegar fósturfjölskyldan á Patreks­ firði fannst þá lét hann drenginn frá sér. „Ég held það sé ekkert svo auð­ velt fyrir mig að fá hann aftur. En ég á stórt einbýlishús og það er nóg pláss,“ segir bróðir drengsins en sjálfur á hann þrjú börn. Laug til um faðerni barnanna Drengurinn verður ellefu ára í des­ ember en systkini hans sem einnig eru á heimilinu eru á aldrinum eins, þriggja og fjögurra ára, að sögn mannsins. „Hin börnin voru systk­ ini mín þangað til í fyrra,“ segir bróð­ ir drengsins en hann segir konuna hafa logið til um faðerni barnanna. Faðernispróf hafi leitt í ljós að faðir mannsins átti einungis eitt barn með konunni, það elsta. Konan kemur frá Taílandi og talar ekki íslensku. Þá er núverandi sambýlismaður hennar einnig af erlendu bergi brotinn. Bróðir drengsins segist hafa verulegar áhyggjur af velferð hans. „Ég óttast líka, því hann er orðinn svo stór, að hann fari að svara fyrir sig,“ segir hann. Ofbeldið haft mikil áhrif Maðurinn segir ofbeldið hafa haft mikil áhrif á drenginn. „Hann er rosalegur kvíðasjúklingur. Hann leit rosalega vel út og var rosalega glað­ ur þegar hann kom úr fóstrinu, en núna hefur hann bætt á sig svona tuttugu kílóum og brosir ekki neitt. Hann er voða sviplaus og kvíðinn. Hann er bara ein taugahrúga,“ segir bróðir drengsins. Í dómi héraðs­ dóms segir enn fremur að afleiðingar fyrir drenginn gætu orðið alvar­ legar þegar fram líða stundir, meðal annars á þann hátt að hann gæti átt erfitt með að umgangast og mynda tengsl við fullorðið fólk. Einnig gæti komið fram streita og kvíði síðar á lífsleiðinni. Engin gögn voru lögð fram um andlegar afleiðingar ofbeld­ isins á drenginn en í dómnum segir að ljóst megi vera að atburðirnir hafi leitt til líkamlegra áverka, hræðslu og óöryggis. n Áslaug Karen Jóhannsdóttir aslaug@dv.is Laminn með stólfæti Konan var dæmd fyrir að hafa lamið son sinn með stólfæti í bakið. Ýmsir áverkar Eins og sjá má hlaut drengurinn sýnilega áverka eftir ofbeldið. Kviður barnsins Að sögn bróður drengs- ins komu þessir áverkar eftir spark í kviðinn. Ofbeldið hefur haft mikil áhrif „Hann er bara ein taugahrúga,“ segir bróðir drengsins. sviðsEtt mynd „Hann er voða sviplaus og kvíð- inn. Hann er bara ein taugahrúga. „Hún lemur barnið sitt“ n Móðir dæmd fyrir að misþyrma syni sínum Spyr um dróna Helgi Hrafn Gunnarsson, þing­ maður Pírata, lagði fram fyrir­ spurn til dómsmálaráðherra á Alþingi á mánudag um lögreglu og dróna. Þar spyr hann hvort lögreglan hafi fest kaup á dróna eða fyrirhugi slík kaup, og hvort hún hafi eignast dróna með öðrum hætti, til dæmis, fengið slíkan búnað að gjöf eða láni. Í fyrirspurninni er einnig spurt hvort dómsmálaráð­ herra telji lögreglu hafa heim­ ild til að kaupa og nota slík tæki, og hvernig slík tæki nýt­ ist lögreglu og hvort reglur um notkun þeirra séu til staðar eða verði settar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.