Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Blaðsíða 23
Vikublað 4.–6. nóvember 2014 Umræða Stjórnmál 23 S igmundur Davíð Gunnlaugs­ son forsætisráðherra ítrekaði það aðspurður á Alþing í gær, að afnám hafta yrði ekki á kostnað heimilanna í landinu. Hvorki hefur gengið né rekið í samningum bús gamla Landsbank­ ans (LBI) annars vegar og ríkisstjórn­ arinnar og Seðlabankans hins vegar um undanþágur frá gjaldeyrishöftum til þess að flytja gjaldeyri kröfuhafa í gamla Lansbankann úr landi. Gegn slíkri undanþágu hefur slitastjórn LBI heitið því að standa við drög að samn­ ingi við frá því í maí síðastliðnum um að lengja í um 230 milljarða króna skuldabréfi nýja Landsbankans við erlenda kröfuhafa LBI. Síðasti frestur sem LBI gaf stjórnvöldum til þess að svara rann út 31. október siðastliðinn. Engin svör bárust enda lítur Seðla­ bankinn og forystumenn ríkisstjórn­ arinnar svo á að LBI og erlendu kröfu­ hafarnir geti ekki sett nein skilyrði. Því er að sjá sem um eins konar störu­ keppni sé að ræða. Seðlabankinn og ríkisstjórnin hafa í hendi sér að koma í veg fyrir að LBI og erlendu kröfuhaf­ arnir fái undanþágu frá gjaldeyris­ höftunum til þess að flytja allt að 400 milljarða króna í gjaldeyri sem bú LBI á handbæra. Á móti geta LBI og kröf­ uhafarnir erlendu sem slitastjórnin vinnur fyrir, neitað að lengja í skulda­ bréfi nýja Landsbankans sem er nær alfarðið í eigu ríkisins. Slitastjórnin virðist ætla að stíga varlega til jarðar þrátt fyrir hót­ anir um að semja ekki um Lands­ bankaskuldabréfið og hefur nú lengt frest sinn til 17. nóvember næstkomandi. Bjarni Benediktsson, efnahags­ og fjármálaráðherrra og formaður Sjálfstæðisflokksins, gaf til kynna á flokksfundi um helgina að aðstæður til að rýmka gjaldeyrishöftin væru einstaklega góð um þessar mund­ ir. Þetta má túlka svo að hann telji óhætt að veita LBI undanþágu til þess að flytja út gjaldeyriseignir er­ lendu kröfuhafanna og að áhættan samfara því sé með minnsta móti um þessar mundir. Þar er við Sigmund Davíð Gunn­ laugsson forsætisráðherra að eiga og hefur ágreiningur forystumanna ríkis stjórnarinnar í þessu efni skýrst að undanförnu. Sigmundur Davíð var spurður um afnám haftanna á Alþingi í gær af Helga Hjörvar, þingmanni Sam­ fylkingarinnar. Sigmundur svaraði og sagði „… það algjörlega á hreinu, eins og hv. þingmaður ætti að vita, að ríkisstjórnin mun ekki ráðast í afnám þeirra á þann hátt að það geti ógnað heimilunum í landinu.“ Sigmundur ítrekaði þetta næst þegar hann fór í ræðustól og sagði „… þessi ríkis­ stjórn, ólíkt þeirri síðustu, mun ekki stefna heimilum landsins í hættu í samskiptum við erlenda kröfuhafa.“ Fram kom í nýlegri skýrslu Seðla­ banka Íslands um fjármálastöðug­ leika að ef ekki semdist um að lengja í skuldabréfi nýja Landsbankans til ársins 2026 kynni það að leiða til er­ lendrar lántöku ríkissjóðs til endur­ fjármögnunar á þeim 230 milljörðum sem nýi Landsbankinn skuldar þeim gamla. Það yrði íþyngjandi fyrir gjald­ eyrisvaraforðann og skuldastöðu ríkissjóðs. Ef allt færi á verri veginn og ekkert yrði af framangreindum samningum og veitingu undaþágu frá gjaldeyrishöftum gæti það endað með að minnsta kosti 8 prósenta gengisfellingu með tilheyrandi verð­ bólguskoti. Á vegum Alþingis er starfandi þverpólitísk nefnd sem fjalla á um gjaldeyrishöftin. Í henni sitja Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (VG), Árni Páll Árnason (Sf), Vilhjálmur Bjarnason (S), Guðmundur Steingrímsson (Bf) og fleiri. Bjarkey segir í samtali við DV að ekkert samráð hafi verið haft við nefndina um þá stöðu sem uppi er í samningum við bú gamla Lands­ bankans (LBÍ). „Við fréttum af gangi mála í fjölmiðlum eins og annað fólk.“ Bjarkey segir að nefndin hafi haldið þrjá fundi síðan hún var skipuð. Ljóst má vera að djúpur ágreining­ ur er um málið í röðum stjórnarliða. Þar skiptast í fylkingar þeir sem vilja ríða á vaðið nú og veita LBÍ undan­ þágu frá gjaldeyrishöftunum til að flytja hundruð milljarða gjaldeyris­ eignir úr landi – stór hluti þeirra er reyndar erlendis – og hinna sem vilja taka harðari afstöðu gegn erlendu kröfuhöfunum og kanna hvort ekki megi hafa af þeim meira fé með svo­ kallaðri gjaldþrotaleið. Ljóst er að slík leið yrði einnig háð samningum við kröfuhafa um skipti á krónum fyrir erlendan gjaldeyri. Eins og fram hefur komið er ætl­ unin að skattleggja þrotabú gömlu bankanna um alls 35 milljarða króna. Þetta hefur mælst illa fyrir meðal umbjóðenda erlendu kröfu­ hafanna og ætlar slitastjórn Glitnis að láta reyna á skattlagninguna fyrir dómstólum. n Afnám hafta ekki á kostnað heimila n Sigmundur Davíð sýnir á spilin á Alþingi n Störukeppni stjórnvalda og erlendra kröfuhafa Jóhann Hauksson johannh@dv.is Segir fátt um afnám hafta Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að afnám hafta verði ekki á kostnað heimilanna. Ágreiningur er í ríkisstjórn vegna samninga við kröfuhafa gamla Landsbankans um 230 milljarða króna skuldabréf. Mynd Sigtryggur Ari icesave á herðum forsætisráðherra Megnið af hundruð milljarða króna í gjald- eyri eru forgangskröfur í eigu t.d. breska Innstæðutryggingasjóðsins vegna Icesave- klúðursins. Í nýrri skýrslu Haraldar Líndal Har­ aldssonar hagfræðings um fjár­ hagsstöðu Reykjanesbæjar eru samningar stjórnenda bæjar­ ins á undanförnum árum við Eignarhaldsfélagið Fasteign gagn­ rýndir harðlega. Eignarhaldsfélagið EFF var stofnað af Reykjanesbæ og gamla Íslandsbanka (síðar Glitni) árið 2003 og var í upphafi í allt að 70 prósenta eigu bæjarfélagsins og bankans. Mistök Í skýrslu Haraldar er lagt til að kannað verði hvort ekki sé hægt að greiða upp leiguskuldbindingar svo sem kostur er. Jafnframt verði kannað hvort hægt sé að fá þessar skuldbindingar lækk­ aðar. „Það er mat skýrsluhöfundar að þeir leigusamningar, sem sveitar­ félagið hefur gert um húseignir þess, séu í mörgum tilfella sveitarfélaginu óhagstæðir. Með hliðsjón af því er hér lagt til að kanna hvort mögulegt sé að greiða þessa samninga upp ef fjár­ mögnun fæst til þess. Einnig komi til greina að leita eftir lækkun á þessum leiguskuldbindingum,“ segir í nýju skýrslunni. Haraldur Líndal Haralds­ son lýsir síðar þeirri skoðun sinni að Reykjanesbær hafi gert mistök í samningum við EFF. „Það hefur verið skoðun skýrsluhöfundar að gerð hafi verið mikil mistök með leigusamn­ ingum sem Eignarhaldsfélagið Fast­ eign hefur gert í nokkrum tilfella.“ Samvinna einkafyrirtækja og opinberra aðila Hvatamenn að stofnun EFF á sínum tíma voru meðal annarra Bjarni Ár­ mannsson, forstjóri Íslandsbanka, og Árni Sigfússon, en hann var þá orðinn bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Íslandsbanki og Reykjanesbær lögðu mikið af fasteignum inn í félagið og áttu samanlagt um 70 prósenta hlut í því lengi vel eins og áður segir. Síð­ ar bættist við Háskólinn í Reykjavík og sveitarfélög sem áttu þar eignir og þar með hlut í félaginu urðu alls 11 talsins; Álftanes, Garðabær, Gríms­ nes­ og Grafningshreppur, Norður­ þing, Reykjanesbær, Sandgerðisbær, Fjarðabyggð, Ölfus, Vestmannaeyjar og Vogar. Að nokkru leyti á það við að aðildarfélögin hafi lagt fasteignir inn í félagið, notað þær áfram, svo sem skóla og íþróttamannvirki, en greitt félaginu leigu. Þannig gat ávinning­ ur og hagnaður komið eigendum til góða en einnig gátu áföll dreifst á alla eigendur. Til varð hlutafélag á einkamarkaði sem leigði fyrst og fremst sveitarfélögum fasteignir. Samvinnu hins opinbera og einka­ rekstrar hafði verið komið á fót inn­ an EFF. Reykjanesbær greiddi EFF (eða átti að greiða) sem svarar um einum milljarði króna í leigu árið 2010. Eftir bankahrunið ákvað stjórn EFF að lækka leigugjald tímabund­ ið um liðlega fjórðung. Þetta var gert þótt erlend lán EFF hefðu hækkað gríðarlega við fall krónunnar í banka­ hruninu. Helmingur leigugjaldsins átti samkvæmt leigusamningum að vera bundinn gengi evru gagn­ vart krónu og gat þannig brugðið til beggja átta eftir gengissveiflum. Báðum megin við borðið Reykjanesbær, sem Árni Sigfússon stýrði á þessum tíma, átti erfitt með að standa í skilum við EFF eftir bankahrunið, eins og nú er lýst í nýrri svartri skýrslu. Svo vildi til að Árni Sigfússon var einnig stjórnar­ formaður EFF og þurfti sem slíkur að semja við Reykjanesbæ um leiguverð og leiguskilmála. Þetta gat verið ein­ kennilegt eins og þegar endurbyggt samkomuhúsið Stapi, var komið í eigu EFF. Reykjanesbær tók húsið á leigu og greiddi EFF um 800 þús­ und krónur í leigu á mánuði. Þess má geta að samkomuhúsið hefur fjarri því skilað bæjarfélaginu þeim tekjum sem ætlað var. Rekstrarerfiðleikar EFF knúðu síðar á um að leigan fyr­ ir Stapa yrði hækkuð um allt að 30 prósent. Hefði Árni samþykkt slíka hækkun sem stjórnarformaður EFF hefði hann jafnframt samþykkt hækkun útgjalda fyrir bæjarsjóð Reykjanesbæjar. Í sæti bæjarstjóra blasti við að Árni gæti þurft að mót­ mæla hækkuninni og ganga þar með á hlut EFF. Þarna var augljós hags­ munaárekstur. n Bæjarstjóri samdi við sjálfan sig Árni Sigfússon var stjórnarformaður EFF og bæjarstjóri í senn„Það hefur verið skoðun skýrslu- höfundar að gerð hafi verið mikil mistök með leigusamningum sem Eignarhaldsfélagið Fasteign hefur gert í nokkrum tilfella. Jóhann Hauksson johannh@dv.is Beggja vegna borðs Bæjarstjórinn Árni Sigfússon þurfti að semja við stjórnarfor- manninn hjá EFF, Árna Sigfússon. Mynd Atli MÁr Bankastjórinn fyrrverandi Bjarni Ármannsson var hvatamaður að stofnun EFF ásamt Árna Sigfússyni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.