Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Blaðsíða 26
Vikublað 4.–6. nóvember 201426 Sport Brasilíska undrið Ganso á barmi þess að gleymast n Átti að verða hinn brasilíski Zidane n Neymar og Ganso voru framtíð Brasilíu U ngur að árum skaust hann fram á sjónarsviðið með hæfileika sem heilluðu fljótt útsendara stærstu liða Evrópu. Paulo Henrique Ganso átti að verða næsta stórstjarna Brasilíu og í félagi við Neymar var litið til hans sem bjargvættar brasil- íska landsliðsins. Neymar og Ganso voru vonarstjörnur Santos í heima- landinu, þangað sem Ganso kom sem 16 ára piltur. Þeim félögum var líkt við ofur- hetjurnar Batman og Robin en á meðan Neymar kleif hærra upp á stjörnuhimininn, og var á endan- um keyptur til stórliðs Barcelona fyrir gríðarháa fjárhæð, sat Ganso eftir og ferillinn staðnaði. Margir fót- boltaunnendur hafa því spurt sig, þegar þeir sjá einstaka myndbrot af glæsilegum tilþrifum hans á netinu; hvað varð um Ganso og hvar er hann nú? Hinn brasilíski Zidane Í HM-fárinu í Brasilíu í vor var mikið skrafað og skrifað í þarlendum fjöl- miðlum um hverja landsliðsþjálfar- inn Luiz Felipe Scolari myndi velja í liðið sem átti að vinna keppnina á heimavelli. Eitt nafn var þó áberandi fjarverandi í öllum þeim vangavelt- um, Paulo Henrique Ganso. Undra- barnið sem nokkrum árum áður hafði verið líkt við sjálfan Zinedi- ne Zidane, meðal annars af Neym- ar sem naut góðs af þjónustu Ganso um árabil hjá Santos. Líkindin voru til staðar. Yfirvegun á bolta, yfirsýn, útsjónarsemi og einstök sendingar- geta Ganso minnti um margt á hinn franska snilling. Ganso var ekki einu sinni í umræðunni fyrir mótið og sem fyrr beindist kastljósið að Neymar. Umdeild ákvörðun Aðeins fjórum árum áður hafði það vakið hörð viðbrögð og gríðarlega reiði þegar Dunga ákvað að velja Ganso ekki í landsliðshóp Brasilíu fyrir HM 2010 í S-Afríku. Aðrir sýndu því skilning þar sem hann var aðeins tvítugur þá og álitinn vel geymdur gimsteinn fyrir framtíðina. Í dag er Ganso 25 ára og hefur leikið með Sao Paulo í heimalandinu síðan 2012 eftir að hafa verið seldur frá Santos við litla hrifningu stuðningsmanna. Menn bíða enn eftir því að hann uppfylli væntingarnar sem til hans voru gerðar og blómstri í þann heimsklassaleikmann sem menn vita að hann hef- ur að geyma. Ganso er nú eldri en margir aðrir Brasilíumenn sem haldið hafa í víking til Evrópu og freistað gæfunn- ar í bestu deildum heims. Ekkert lið þar um slóðir hefur enn tekið sénsinn á brasilíska undrinu sem nú er á barmi þess að gleymast í heimalandinu. Nýtti ekki sénsinn Eitt af því sem hefur hindrað bæði framgöngu Ganso og félagslið í Evrópu í að taka áhættuna á að kaupa hann er hversu óheppinn hann hefur verið með meiðsli. Í nokkur skipti hefur hann meiðst illa og verið frá svo mánuðum skiptir. En eftir að Dunga hafði litið fram hjá honum árið 2010 ákvað eftir- maður hans í starfi, Mano Menezes, að hlusta á stuðningsmenn og velja hann í Copa America-keppnina í Argentínu árið 2011. Þetta átti að vera hans augnablik, fyrsta skref- ið í átt að því að gera tíuna, sókndjörfu leikstjórnandastöð- una að sinni næsta áratuginn hjá Brasilíumönnum. En Ganso, líkt og liðsfélagar hans, runnu á rass- gatið í keppninni. Ganso náði sér aldrei á strik og liðið féll út í fjórð- ungsúrslitum eftir vítaspyrnu- keppni gegn Paragvæ. Ári síðar var hann valinn í Ólympíulið Brasilíu en þá var annar ungur leikmaður, Oscar, farinn að narta í hælana á hon- um í sömu stöðu. Svo fór að Osc- ar var valinn fram yfir Ganso í úr- slitaleik keppninnar og Chelsea keypti nýrstirnið síðar um sum- arið. Þrátt fyrir að vera sjálfur að- eins 22 ára virtist ferillinn kominn í bakkgír hjá Ganso. Átök og úthýst frá Santos Hlutirnir skánuðu ekki þegar Ganso varð ósáttur við forráðamenn Santos um haustið. Sagan segir að hann hafi verið fúll með samningstilboð félags- ins, allt fór í háaloft og á endanum varð óumflýjanlegt að selja Ganso. Bak við tjöldin var einnig barátta meðal fjársterkra kaupsýslumanna um eignarhlut í Ganso. Áður höfðu Manchester-liðin City og United sýnt honum áhuga auk annarra stórliða en á þessum tíma var hann sterklega orðaður við AC Milan. Niðurstaðan varð loks, á grundvelli ósættis, slakr- ar frammistöðu og plagandi hné- meiðsla, að Ganso var seldur til Sao Paulo fyrir upphæð sem nemur rúm- um 1,2 milljörðum íslenskra króna. Síðastliðin tvö ár með Sao Paulo hafa hins vegar verið vonbrigði fyrir Ganso sem hefur á þeim tíma skorað 7 mörk í deildinni heima undir stjórn hins virta þjálfara Muricy Ramal- ho. Sao Paulo stefndi í fall á síðasta ári en náði fyrir rest að bjarga sér og endaði í þægilegri stöðu fyrir miðja deild. Ramalho er eignaður heiður- inn að því. Á brattann að sækja Í ár hefur Sao Paulo leikið vonum framar, með framherjana Alexandre Pato og Luis Fabiano í broddi fylkingar. Liðið er í öðru sæti brasilísku deildar- innar með 56 stig eftir 31 leik, fimm stigum á eftir toppliðinu Cruzeiro. Ganso hefur leikið heldur minna en undanfarin ár og var um tíma gert að leika með varaliðinu fyrir að gagnrýna leikaðferð liðsins opinberlega. Hann hefur þó verið að fá leiki undanfarið og sýnt athyglisverð tilþrif. En hann er dottinn út af heimskortinu, á langt í land með að komast í landsliðið á ný og við það að falla í gleymsku meðal knattspyrnu- áhugamanna sem höfðu heyrt og séð svo lofandi hluti frá honum sem leikmanni. Það er ljóst að það er á brattann að sækja hjá þessum leikna Brassa ef hann á ekki að týnast innan um unga og hæfileikaríka landa sína í brasilísku deildinni. Hann yrði ekki sá fyrsti. n „Undrabarnið sem nokkrum árum áður hafði verið líkt við sjálfan Zinedine Zidane. Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Batman og Robin Santos-tvíeykið Neymar og Ganso áttu að vera framtíð brasilíska landsliðsins og næstu stórstjörnur knattspyrnuþjóðarinnar. Það hefur aðeins ræst hjá öðrum þeirra. Nýtti ekki sénsinn Ganso fékk tækifærið hjá Mano Menezes sem valdi hann í landsliðið fyrir Copa America- keppnina í Argentínu árið 2011. Þetta átti að vera hans augnablik, en hann og liðið ollu vonbrigðum. MyNd ReUteRS Stjarnan sem aldrei varð? Miklar vonir voru bundnar við Ganso en hlutirnir hafa ekki gengið sem skyldi hjá þessum hæfileikaríka leik- manni. MyNd ReUteRS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.