Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Blaðsíða 25
Neytendur 25Vikublað 4.–6. nóvember 2014 Þetta eru bestu dekkin fyrir íslenskan vetur n Ítarleg próf fyrir aðstæður á norðlægum slóðum n Ekki láta blekkja þig með gerðarheitum Svona er könnunin gerð N iðurstöðurnar eru ýmist meðaltal margendurtek- inna mælinga eða hug- lægt mat nokkurra til- raunaökumanna. Prófin fóru fram í Ivalo, nyrst í Finnlandi, á bílaprófana- og tilraunasvæði TestWorld. Öll dekkin voru keypt hjá dekkjasölufyrirtækjum til að koma í veg fyrir framleiðendur sendu inn dekk sem sérhönnuð væru fyrir út- tektina. Sundurliðaðar niðurstöð- ur fyrir hvert dekk, í hverjum flokki, má finna í FÍB-blaðinu. n Hemlun Hemlunarvegalengd er mæld í metrum á snjó, ís, blautu og þurru malbiki. Hvert próf er endurtekið 15–20 sinnum á 2–3 dögum við mismunandi hitastig og er niðurstaðan meðal- tal mælinga. n Hröðun Grip dekkjanna á ís og snjó er mælt með því að auka hraðann eins fljótt og hægt er. Tímamæling er gerð á tilteknu hraðabili. Á ís hefst mælingin á 5 km hraða og lýkur við 20 km hraða. Í snjó hefst hún á 5 km hraða en lýkur við 35 km hraða. Hvert próf er margendurtekið líkt og í hemlunarprófinu. n Aksturseiginleikar Virkir aksturseiginleikar metnir út frá brautartíma bílanna á aksturs- brautum sem þaktar eru ís, snjó eða eru blautar eða þurrar eftir því sem við á. Í þessum akstri reynir á veggrip við hröðun og hemlun í kröppum beygjum. Niðurstaða fæst svo með meðaltali brautar- tíma ökumannanna. n Aksturstilfinning Hver bíl- stjóri lýsir upplifun sinni af hverju dekki án þess að vita tegundina sem um ræðir. Mikilvægasta í þessu er að vita hvernig bílstjóran- um þótti dekkin í neyðartilvikum, hversu fljótt þau misstu veggrip og bíllinn byrjaði að skrika og hversu erfitt eða auðvelt var að ná valdi á bifreiðinni á ný. n Rásfesta Ekið er eftir brautum þar sem hjólför hafa myndast í malbikinu ýmist vegna slits eða verið búin til í yfirborði vegarins. Einkunnir gefnar af ökumönnum eftir því hversu oft og mikið þarf að snúa stýrinu til að rétta af stefn- una. Þeir vita ekki hvaða tegund er undir bílnum hverju sinni. n Veggnýr Veggnýrinn, eða hvinurinn, frá dekkjunum er mældur inni í bílnum í höfuðhæð, á víxl í framsætum og aftursæti. Niðurstöður byggja á bæði mæl- ingum og huglægu mati öku- manna og eru meðaltal margra prófunaraðferða. n Núningsmótstaða Mæld þannig að bílnum er ekið á sléttri, hallalausri braut utandyra þar til hann nær 80 km hraða. Þá er bifreiðin sett í hlutlausan og látin renna þar til hún nær 40 km hraða. Mælingin er endurtekin við mismunandi hitastig í logni og meðaltal niðurstaðna síðan uppreiknað til bensínlítra miðað við viðmiðunardekkið sem er það dekk í könnuninni sem lengst rennur. Vissir þú þetta um dekkin undir þínum bíl? Hver skal mynsturdýptin vera? - Hinn 1. nóvember síðast- liðinn tók gildi ný reglugerð um lágmarksmynsturdýpt dekkja. Skal dýptin vera að lágmarki 3 millímetrar yfir vetrartímann frá 1. nóvember til 14. apríl. Yfir skilgreindan sumartíma, frá 15. apríl til 31. október, skal dýptin var að lágmarki 1,6 millímetrar. Breytingin er gerð í þágu umferð- aröryggis en mun vafalaust hafa það í för með sér að eigendur bíla þurfi að skipta oftar um dekk vegna slits. Hversu gömul eru dekkin þín? DOT-merkingin segir til um hvenær tiltekinn hjólbarði er framleiddur og upplýsingar um það má finna á hlið þeirra. Þrír til fjórir síðustu tölustafirnir segja til í hvaða viku og hvaða ár dekkið var framleitt. Á dekki sem framleitt er í 15. viku ársins 2012 myndi því standa: 1512. Þó ólíklegt sé að þú sér enn á dekkjum frá því fyrir aldamót þá væri kóðinn fyrir dekk frá 15. viku ársins 1999: 159. Hversu lengi endast vetrar- dekk? Ending er háð aksturs- lagi, vegalengdum og veggerð sem ekið er á en ef miðað er við meðalakstur, sem er 15 þúsund kílómetrar á ári, ættu dekkin að endast þér þrjá vetur. Hver skal þrýstingurinn vera? Loftþrýstingur dekkja er mik- ilvægur með tilliti til öryggis, eldsneytiseyðslu og endingu dekkjanna. Þrýsting ætti að miða við handbók bílsins eða merkimiða sem finna má ýmist á hurðarstólpa eða á innanverðu bensínlokinu. Hafðu í huga að það lekur alltaf úr dekkjum með tímanum. Mældu þrýstinginn annan hvern mánuð. Kjör- þrýstingur er ýmist tilgreindur í börum, kílógrömmum eða Psi (pund per fertommu). Gott er að vita að: 1 bar = 1,02 kg. 1 bar = 14,29 psi. Hvað þýða upplýsingarnar á hlið dekkjanna? Á hlið dekkj- anna er alltaf að finna margs kon- ar tölur og bókstafi sem ekki allir þekkja. Þessar upplýsingar segja til um stærð þeirra og eiginleika. Hér er útskýrt hvað 205/65R15 88H þýðir: 205 = Breidd slitflatar í millímetrum. 65 = Prósentuhlut- fallsleg hæð dekkbelgsins miðað við breidd slitflatar. R = Radí- aldekk. 15 = Þvermál felgunnar í tommum. 88 = Burðarþolskóði- hve mikinn þunga dekkið þolir. (88 = 560 kg) H = Hraðakóði sem segir þér að hjólbarðinn þolir í þessu tilfelli 210 km/klst á sum- arhjólbörðum. L= 120 km/klst, M = 130 km, N = 140 km, P = 150 km og koll af kolli fram í Z sem þýðir 240 km/klst. Hraðaþol fer sjaldn- ast yfir Q = 160 km/klst. Sláandi mynd Tryggingafélagið Sjóvá útbjó þessa mynd, sem byggð er á upplýsingum frá dekkjaframleiðandanum Goodyear, og sýnir áhrif mynstursdýptar og ökuhraða á veggrip miðað við 3 mm vatnsdýpi. Því dýpra mynstur, því meira grip. Hafðu það í huga. Mynd Sjóvá Krefjandi aðstæður Á Íslandi geta akstursskilyrði um vetur orðið afar krefjandi með litlum sem engum fyrirvara. Þá skiptir höfuðmáli að vera á góðum dekkjum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.