Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Blaðsíða 17
Fréttir Erlent 17Vikublað 4.–6. nóvember 2014 Gæðaþjónusta & góð verð R aja Devi er 75 ára gömul og segist hafa eignast sitt fyrsta barn þegar hún var sjötug. Það er engin leið til að staðfesta fæðingarár Raja, hún er fædd í þorpi á Indlandi þar sem stjórnsýsla er í algjöru lág- marki og það misjafnt hvort og þá hvenær fæðingar eru skráðar, sér- staklega þegar Raja var að vaxa úr grasi. Raja telur sjálf að hún sé 75 ára en þegar hún var um sjötugt fór hún í glasafrjóvgun á læknisstofu nálægt þorpinu hennar í Haryana á Ind- landi. Dóttir hennar, Naveen, sem nú er fimm ára gömul, er fjörugt barn sem þarf mikla athygli. Erfið meðganga Í viðtali við BBC-fréttastofuna ræddi Raja við fréttamann hvern- ig það er að verða móðir á áttræðis- aldri – í fyrsta sinn. Það er erfitt að elta barnið, segir hún, og fylgja því eftir. Læknar segja að með nútíma- tækni geti konur í einhverjum tilfell- um eignast börn á áttræðisaldri. Til þess þarf þó að nota egg úr talsvert yngri konum sem komið er fyrir í legi móðurinnar. Raja hafði farið í gegn- um tíðahvörf og því gat hún sjálf ekki framleitt egg og systir hennar var í sömu sporum. Læknar töldu systur Raju ekki geta gengið með barn, en sögðu ekkert því til fyrirstöðu að Raja sjálf léti koma fyrir fósturvísum. Það er þó sjaldgæft að konur leggi slíkt á sig, enda tekur meðgangan á líkamlega og andlega. Heilsu Raju hrakaði mikið eftir meðgönguna, hún reyndist henni erfið og eftir að barnið var fætt greindist hún með blöðrur á eggjastokkum. Varð að eignast barn En hvers vegna vildi Raja Devi hætta lífi sínu og heilsu til að verða móðir á áttræðisaldri? Það var henni afar mikilvægt, segir hún sjálf. Barneign- ir eru konum og fjölskyldum afar mikilvægar á Indlandi. Konur, sem ekki tekst að eignast eða ganga með börn, eru sagðar óbyrjur og njóta lítillar virðingar, sérstaklega á dreif- býlissvæðum. Margir stunda því fjölkvæni, sem er ólöglegt, og reyna þannig að eignast börn eða jafnvel erfingja. Raja hafði í mörg ár reynt að eign- ast börn. Þegar hún og eiginmaður hennar, Bala Ram, höfðu reynt að eignast barn í 15 ár giftist Bala yngri systur Raju. Þeim tókst ekki held- ur að eignast barn saman. Raja og Bala töldu mikilvægt að þau eign- uðust erfingja og því hættu þau á glasafrjóvgun á þeirra aldri. „Ef við eignumst ekki börn fá bræður mín- ir allar okkar eigur,“ segir Bala, sem á lítinn landskika þar sem hann rækt- ar hrísgrjón, hveitiplöntur, bómull og mustarð. Þá á hann einn vísund og hefur um hálfa milljón í árstekjur. Hjónin vildu eignast son, sem myndi þá geta erft eigur þeirra og viðhaldið arfleifð þeirra. Ef þau eignuðust stúlkubarn þyrfti hún að gifta sig og eiginmaður hennar taka yfir eignirnar. Þegar dóttir þeirra, Naveen, fæddist gerði læknir þeirra þeim ljóst að þau gætu ekki eignast annað barn, Raja væri of veikburða til þess. „Hún er því dóttir okkar og sonur,“ segja þau. „Við erum afskap- lega hamingjusöm fjölskylda.“ Hjálpar öllum Læknir fjölskyldunnar, Anurag Bish oni, rekur læknamiðstöðina í Haryana. Hann segist starfa með um 1.000 konum árlega sem vilji fara í glasafrjóvgun. „Um þriðjungur þeirra er á milli fimmtugs og sjö- tugs,“ segir hann. „Á tímabili var ég læknir 100 eldri sjúklinga á ein- um mánuði. Þau komu öll til mín með miklar vonir. Ég gat ekki látið drauma allra rætast. Við þurftum að velja og hafna vandlega,“ segir hann. Önnur kona á hans vegum, Bhateri Devi, var 64 ára þegar hún reyndi að eignast börn. Hún gekk með þríbura sem fæddust árið 2011. Dóttir henn- ar lést nokkrum vikum eftir fæðingu, en synir hennar ganga nú í skóla. Hún vill ekki viðurkenna að líkam- legri heilsu hennar hafi hrakað eftir fæðinguna, en hún er þó mjög við- kvæm. „Hvernig sem það er,“ segir hún, „er líkami konunnar gerður til að ganga með börn og meðganga og fæðing eru erfiðar konum á öllum aldri.“ n „Við erum afskaplega hamingjusöm“ n Er þetta elsta móðir heims? n Læknir á Indlandi lætur drauma kvenna um barneignir rætast Sögð elsta móðir í heimi Raja hefur ekki verið skráð sem elsta móðir heims, en ef afmælisdagur henn- ar er réttur þá er hún það. Áður hafði Maria del Carmen, spænsk kona, verið talin elsta kona í heimi. Hún var 66 ára þegar hún eignaðist tvíbura. Hún lést árið 2009, þá 69 ára gömul. Hún eignað- ist syni sína eftir margar misheppnaðar tilraunir. Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is „Hún er því dóttir okkar og sonur. Fjörug telpa Naveen er fjörugt barn og það er erfitt að fylgja henni eftir segir Raja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.