Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Blaðsíða 31
Vikublað 4.–6. nóvember 2014 31 Á morgun, miðvikudag, hefst Airwaves-hátíðin og því ekki seinna vænna en að fara að huga að dagskránni. Eflaust eru margir gestir óvissir um hvernig best sé að njóta alls þess sem hátíðin býður upp á, DV Músík fékk því hug- myndir frá nokkrum tónfróðum spek- ingum um hvað helst beri að sjá. Þá er „off venue“ dagskráin ekki síðri en gert er ráð fyrir um 675 atriðum á 52 stöðum. Hliðarsjálf Airwaves hefur því aldrei verið stærra og allir ættu að geta fundið eitthvað fyrir sinn snúð. Margrét Erla Maack fjölmiðla- og sirkuskona ætlar að taka þar virkan þátt í utan deildinni í ár. maria@dv.is H vað hefur gáfaðasti maður í heimi að segja okkur undir lok langrar ævi? Eitthvað á þessa leið: „I see the ghost of culture with numbers on its wrist/ Salute some new conclusion that all of us have missed.“ Manneskjan í laginu A Street heldur af stað í stríðið en hann bið- ur hana um að láta af hefndarþorsta sínum og hinum mikla sannleik sem hver ný kynslóð telur sig hafa höndl- að og mun vafalaust kalla yfir okkur fleiri helfarir. Síðan lýkur hann með viðlagi sem gæti allt eins átt við um Ísland eftirhrunsáranna en fjallar víst um 11. september: „The party‘s over, but I‘ve landed on my feet/I‘m standing on a corner where there used to be a street.“ Smáskífulagið Almost Like the Blues er nánast eins og paródía á Cohen-lagi, ekkert að sjá nema dauða og djöfulgang og aðeins einn góð- an brandara að finna þegar hann ber slæma gagnrýni saman við pyntingar, morð og aðrar hörmungar heimsins. Margir af minni kynslóð ráku upp stór augu þegar þeir sáu titil lagsins, Nevermind. Við heyrðum jú fyrst Cohen nefndan á nafn þegar Kurt Cobain vottaði honum virðingu sína í Pennyroyal Tea. Er hér Cohen að þakka fyrir sig með því að vísa í þekktasta verk Cobains? Varla, í ný- legu viðtali virtist hann varla vita um pönkið og líklega fór grönsjið alveg framhjá honum. Hér erum við aftur kominn út í stríðið sem tapaðist og hér er komið nokkurs konar svar við A Street, það er til eilífur sannleik- ur þrátt fyrir allt saman. Það er bara ekki alveg ljóst hver hann er. Á Born in Chains kemur vitrun- in: „Broken is the name.“ Einhvern daginn kemur að því að Cohen segir skilið við hlekki líkamans. Hann hefur alltaf leitað sannleikans í sprungunum og vafalaust aldrei séð nema örlítið brot. En það er þó meira en flestir geta sagt. n Syngur þó fréttirnar séu slæmar Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Dómur Popular problems Flytjandi: Leonard Cohen Útgefandi: Columbia n Engin ástæða til að örvænta ef ekkert er planað hefst á morgun Þórður Ingi Jónsson blaða- og tónlistarmaður „Ég ætla að sjá Kelela af því að platan hennar var í stanslausum snúningi hjá mér seinasta vetur. Þá ætla ég líka klárlega að sjá Jaakko Eino Kalevi og Nguzunguzu því það er mjög gott stöff.“ Ásgeir Guðmundsson umboðsmaður „Ég verð á miklum hlaupum alla hátíðina en reyni að sjá sem flest. Ætla ekki að missa af Jungle, Ballet School, East India Youth, Mr. Silla og svo er ég mjög spenntur fyrir nýja efninu frá Ylju og hvernig það kemur út á stóru sviði. Einnig vil ég skoða eitthvað af þessum ljóða giggum, skemmtileg viðbót þar á ferð.“ Margrét Erla Maack þúsundþjalasmiður „Aldrei þessu vant er ég ekki með miða á Air waves, en mun þess í stað skemmta mér „offvenjú“ með fátæka fólkinu og þeim sem eru undir (eða yfir) aldri. Þau gigg sem ég er spennt- ust fyrir eru: Karókí á Dolly sem Ásdís María Viðarsdóttir stjórnar. Þetta er hið fullkomna mótvægi Airwaves-kúlsins. Að syngja „guilty pleasures“ og tapa kúlinu sjálfur á sviði. Þá ætla samstarfsmenn mínir í Herrafataverzlun Kormáks og Skjaldar að vera með tónlistar- gjörning. Svo mun ég reyna af öllum mætti að sjá Hljómsveitina Evu, því þær eru uppáhald hjá mér þessa dagana. Svo finnst mér frábært að Bæjarins bestu séu með „offvenjú“-dagskrá.“ Steinþór Helgi Arnsteinsson viðburðastjóri hjá CCP „Ég ætla alls ekki að missa af The Knife. Sá þetta „show“ þeirra í London í fyrra og það var fullkom- lega sturlað.“ Berglind Pétursdóttir hugmyndasmiður og dansari „Á Airwaves í ár ætla ég að láta guð leiða mig um. Reynslan hef- ur sýnt að ef ég reyni að gera ein- hvers konar áætlun yfir hvað ég ætla að sjá/heyra enda ég oftast á því að sjá/heyra ekkert og sitja bara á stól og drekka bjór. Svo í ár verð ég á guðs vegum og boða kannski boðskap hins heilaga djamm-orðs í leiðinni.“ Sunna Ben plötusnúður og myndlistakona „Ég fer alltaf á tónleika með meistara Kött Grá Pjé þegar tækifæri gefst og eftir að hafa séð Kæluna Miklu og Lord Pusswhip koma fram á Druslugöngunni ætla ég að elta þau út um allt samviskusamlega líka. Dj. Flugvél og geimskip svíkur heldur engan. Af því sem ég hef ekki séð áður hlakkatil að sjá Börn, Una Stefson og æskuást- irnar mínar í The Knife. Svo hefur mér áskotnast sá heiður að spila með Reykjarvíkurdætrum svo ég fæ besta stæðið í húsinu á tónleikunum þeirra.“ Ferskt íslenskt til að skoða Slowsteps Sveitin er skipuð þeim Sebastian Storgaard, Gísla Erni Guðbrandssyni, Arnóri Hillers og Robert Mika- el. Sveitinni má lýsa sem rólegri indískotinni fólk- tónlist. Hljóm- sveitin safnar nú fyrir sinni fyrstu plötu í gegnum hópfjármögnunar- síðuna Karolina Fund. Við mælum með lögunum: Trespass og Closer. Unnur Sara Eldjárn Er glæný og fersk söngkona sem ætlar sér stóra hluti. Unnur Sara er á loka- ári sínu í söng við Tón- listarskóla FÍH. Hún var að gefa út fyrsta lagið sitt af væntan- legri plötu. Lagið heitir Að gleyma sér. Í laginu koma einnig fram þau Bragi Þór Ólafsson á gít- ar, Ingibjörg Elsa Turchi á bassa og Halldór Eldjárn á trommur Gunnar Gunnarsson píanóleik- ari gaf nýverið út plötuna 525. Á plötunni kveður við framandi tón í píanóútsetning- um og leitað var í sjóð íslenskr- ar sálmatónlistar við gerð þeirra. Við mælum sérstaklega með Allt eins og blómstrið eina og Minning í útsetningu Gunnars. Helgi Júlíus áður hjartaskurð- læknir og nú tónlistarmaður gaf nýverið út plötuna Crossroads. Helgi Júlíus sló í gegn á síðasta ári með lagi sínu Stönd- um saman í flutn- ingi Valdimars og er nýja efnið engu síðra. Við mælum með lögunum Life is now og Lights in the city, en þar nýtur hann lið- sinnis Ragnheiðar Gröndal og Hauks Heiðars Haukssonar. Shades of Reykjavík Hip hop- sveitin knáa gaf nýverið frá sér nýtt lag Blessun er bölvun mín og er það álit okk- ar að lagið sé með því betra sem heyrst hef- ur frá sveitinni í nokkurn tíma. Shades er þekkt fyrir þunga takta og ádeilurapp – oftar en ekki um fíkniefnaheim- inn. Það er ekki síst myndbandið við lagið sem vekur athygli en þar má sjá einn meðlim sveitarinnar útbúa svokallað DMT og reykja. Opnunarhófið mæltist vel fyrir Einstaklega góðmennt var á opn- unarhófi DV Músík síðasta föstu- dag. Þar komu saman áhuga- menn um tónlist og fögnuðu með okkur fyrstu útgáfu og opnun vefsíðunnar. Á komandi vikum mun verkefnið þróast enn frekar en ljóst er að mikil þörf er á inn- lendri umfjöllun um íslenska og innlenda tónlist. Það voru hljóm- sveitirnar Amabadama og Ylja sem léku fyrir gesti. Tónlistarlegt uppeldi Þessi stælgæi var heillaður af tónlistaratriðunum. Stráksi hefur ekki langt að sækja áhug- ann en hann er sonur Guðmundar Óskars Guðmundssonar bassaleikara.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.