Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Blaðsíða 22
Vikublað 4.–6. nóvember 201422 Umræða Umsjón: Henry Þór BaldurssonVinur allra Vinsæl ummæli við fréttir DV í vikunni „Þad er kannski erfitt að einblína á eitthvað eitt þegar úr svona miklu er að velja,“ segir Árni K. Guðmunds- son, en um 5.300 manns höfðu boðað mætingu sína á mótmæli á mánudag á Austurvelli. Um- ræður um það hverju ætti að mótmæla spruttu upp í athugasemdakerfi DV og var Árni að svara þeim sem töldu lítið tilefni til mótmæla. 16 Hvernig getur niðurskurður orðið að aukningu? R æða Benedikts Erlingsson- ar á verðlaunahátíð í Stokk- hólmi vakti athygli margra. Benedikt og Friðrik Þór Frið- riksson voru að taka á móti kvikmyndaverðlaunum Norður- landaráðs fyrir Hross í oss, fyrstir og einir Íslendinga sem slíkan heiður hafa hlotið. Benedikt óskaði í ræðu sinni eftir aðstoð gesta í samkvæm- inu á eftir, við að ræða við íslenska ráðamenn sem höfðu staðið fyrir 42% niðurskurði á kvikmyndasjóði í ár. Þessar tölur sem Benedikt nefndi hafa verið í umræðunni að undan- förnu í tengslum við frumvarp til fjárlaga sem var lagt fram í byrjun október. Af því tilefni er rétt að árétta nokkrar tölulegar staðreyndir: Kvik- myndasjóður var með 1.020 milljónir króna á síðasta ári. Í ár eru 625 millj- ónir í sjóðnum, í staðinn fyrir 1.070 milljónir króna sem áttu að vera í honum samkvæmt áætlun fyrri ríkis- stjórnar. Þarna munar 445 milljónum króna, eða sem nemur 41,6%. 5–7 ár Það tekur almennt um 5–7 ár að koma kvikmyndaverki í gegnum mylluna, frá hugmynd að frumsýn- ingu. Það þarf því langtíma áætl- unargerð og stöðugleika til að kvik- myndagerð á íslenskri tungu gangi upp. Í viðtali við Ríkisútvarpið verðlaunakvöldið góða sagði Illugi Gunnarsson menningarmálaráð- herra að stjórnvöld væru að bæta við til kvikmyndagerðar á þessu ári. Þar á ráðherra væntanlega við á fjárlögum næsta árs frá fjárlög- um yfir standandi árs. Í sjálfu sér er það rétt. Það er gert ráð fyrir að kvik- myndasjóður hækki um 100 millj- ónir á milli áranna 2014 og 2015 samkvæmt gömlu samkomulagi frá 2011. Hins vegar fylgdi ekki sögunni að ennþá vantar umtalsvert upp á þær 1.188 milljónir sem sjóðurinn átti að vera 2015 samkvæmt áætlun síðustu ríkisstjórnar. Það vantar reyndar heilar 463 milljónir króna eða sem nemur 39%. Árið 2006 gerði kvikmynda- greinin samkomulag við þáverandi menningarmála- og fjármálaráð- herra. Það var sameiginlegur skiln- ingur aðila sem að samningnum stóðu að til að kvikmyndasjóður gæti staðið undir kröfum um fram- boð á kvikmynduðu efni á íslensku fyrir Íslendinga þyrfti sjóðurinn að vera 700 milljónir á þáverandi verð- lagi. Sú upphæð samsvarar 1.186 milljónum í dag. Með tilkomu nýrr- ar áætlunar árið 2012 sem tók gildi í fjárlögum 2013 hillti loksins í að markmiðum þessa samkomulags yrði náð. Erindinu ekki svarað Í desember í fyrra, þegar ljóst var að ráðherra færi fram með 42% niður- skurð á kvikmyndasjóði og vís- aði í eldra samkomulag, þá óskuðu fagfélög í kvikmyndagerð eftir því formlega við ráðherra að samkomu- lag greinarinnar yrði endurskoðað og lögðu fram hugmyndir að nýju samkomulagi. Nú er liðið tæpt ár frá því að þessar tillögur voru lagð- ar fram og enn hefur erindinu ekki verið svarað. Í sama ráðuneyti hafa verið til meðferðar reglugerðarbreytingar í kjölfar fyrrnefnds samkomulags í á þriðja ár, án þess að þær hafi náð í gegn, þrátt fyrir að koma beint við fjárhag kvikmyndaframleiðenda og að gert sé ráð fyrir þeim á fjárlögum síðustu þriggja ára. Þannig hefur öðrum atriðum úr eldra samkomu- laginu frá 2011 ekki verið komið á, þrátt fyrir að ráðherra vísi í að það samkomulag standi. Hentistefna með hvað á að gilda úr hverju samkomulagi fyrir sig, allt eftir því hvernig vindar blása hverju sinni, segir sig sjálft að gengur ekki. Heildarniðurskurður menningar- málahluta fjárlaga yfirstandandi árs er hartnær 20% og er niðurskurð- ur á kvikmyndasjóði langstærsti einstaki liðurinn. Þetta er þrátt fyrir að fyrir löngu er búið að sýna fram á jákvæð efnahags- og menningarleg áhrif af fjárfestingu í kvikmyndum í gegnum kvikmyndasjóð. Það átti því ekkert að koma ráðherra menn- ingarmála sem staðið hefur í slík- um niðurskurði síns málaflokks á óvart að hann fái yfir sig kurteislega athugasemd frá einum fremsta kvik- myndaleikstjóra landsins. n „Það vantar reyndar heilar 463 milljónir króna eða sem nemur 39%. Hilmar Sigurðsson formaður SÍK Kjallari „Hvað heldur fólk að ellilífeyrisþegar séu með. Og þarf að lifa af því. Ca 180.000. Þetta er fólk sem er búið að borga skatta í 50–60 ár, var platað til þess að borga í lífeyrissjóð og hefur ekkert upp úr því,“ segir Rannveig Sigurðar- dóttir, en í síðustu viku fjallaði DV um Dagbjörtu Þórunni Þráinsdóttur, öryrkja og tveggja barna móður, sem sýndi svart á hvítu hversu illa einstaklingar í hennar stöðu hafa það þegar kemur að fjármálum. 14 „Innanríkisráðu- neytið er komið í algjöran ruslflokk. HB sá til þess. Botna ekki í þessari meðvirkni annarra ráðherra og þingmanna að sjá ekki til hvers þetta siðrof er að leiða. Staðan er grafalvarleg en það virðist flestum vera skítsama … nema þeim er mæta á Austurvöll á morgun,“ segir Magnús Sigurðsson. Um helgina fjallaði DV um það að Þorsteinn Pálsson, fyrrver- andi formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, telji innanríkisráðu- neytið ekki hafa burði til að bregðast rétt við vopnamálum lögreglu og Landhelgisgæslu vegna lekamálsins í ráðuneytinu. 10 „Hér á Íslandi er enginn „aðall“ og engar andskotans hefðir. Við viljum forseta sem hugsar sjálfstætt og lætur ekki fortíðina aftra sér frá því að Ísland komist inn í framtíðina,“ segir Kjartan Kjartansson. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segist nota nýársávarp eða setningu þingsins á næsta ári til þess að upplýsa almenning um það hvort hann ætli að gefa kost á sér í kosningum til forseta árið 2016. „Þess vegna hafa allir fyrirrennarar mín- ir tilkynnt slíkar ákvarðanir annaðhvort við setningu þingsins eða í nýársávarpi,“ segir Ólafur. 10

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.