Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Blaðsíða 16
16 Fréttir Erlent Vikublað 4.–6. nóvember 2014 Í dag, þriðjudag, ganga Banda­ ríkjamenn til kosninga Sam­ kvæmt nýjustu könnunum hafa líkur aukist á að repúblikanar nái meirihluta í öldungadeildinni. Samkvæmt spálíkani skoðana­ kannanasérfræðingsins Nates Silver eru nú innan við þriðjungs líkur á að demókratar haldi meirihluta sínum, því allt virðist stefna í að repúblik­ anar bæti við sig átta sætum, en ekki sex, sem myndi duga þeim til að ná meirihluta. Teboðssigur í Iowa Ástæða aukinna sigurmöguleika repúblikana er ekki síst sú að Joni Ernst, frambjóðandi repúblikana, hefur verið með öruggt forskot í könnunum um hver tekur sæti demókratans Toms Harkin, sem er að hætta á þingi eftir að hafa setið í öldungadeildinni fyrir Iowa í sex kjörtímabil, eða 36 ár. Sigur Ernst yrði umtalsvert áfall fyrir demókrata, en ekki síður mikilvægur sigur fyrir Te­ boðshreyfinguna og vísbendingu um að sættir séu að takast á milli hennar og forystu Repúblikanaflokksins. Í kosningunum 2010 og 2012 lenti þessum fylkingum iðulega saman, þar sem frambjóðendur Teboðs­ hreyfingarinnar felldu marga fram­ bjóðendur sem nutu stuðnings for­ ystu flokksins í prófkjörum. Þessi innanflokksátök veiktu flokkinn og urðu til þess að hann tefldi fram frambjóðendum sem voru of öfga­ sinnaðir eða óagaðir til að ná kjöri. Borgarastyrjöld aflýst Ernst nýtur hins vegar stuðnings bæði Teboðshreyfingarinnar og flokksforystunnar, sem veðjaði á hana sem fulltrúa nýs Repúblikana­ flokks sem geti bæði höfðað til rót­ tæks arms flokksins og almennra kjósenda á miðjunni. Ernst kemur vel fyrir og hún kann að tala til hvítra kjósenda í dreifbýli og úthverfum, sem hafa á undanförnum árum orðið mikilvægasti kjósendahópur flokks­ ins. Þó að fréttaskýrendur hafi bent á að Ernst yrði einn íhaldssam­ asti meðlimur öldungadeildarinn­ ar nái hún kjöri, hefur henni tekist að komast hjá því að verða stimpl­ uð öfgamanneskja, líkt og margir aðrir frambjóðendur Teboðshreyf­ ingarinnar. Ástæðan er sú að Ernst hefur gætt orða sinna á opinberum vettvangi, þótt skoðanir hennar séu óumdeilanlega langt til hægri innan Repúblikanaflokksins. Þannig hefur hún til dæmis stutt lög sem skilgreina frjóvgað egg sem manneskju og leggja þannig ský­ laust bann við öllum fóstureyðing­ um og gervifrjóvgunum (því þær hafa í för með sér að fósturvísum er eytt), auk þess hún hefur talað fyrir því að stjórnarskrá Bandaríkjanna verði breytt til að banna hjónabönd samkynhneigðra. Margir fréttaskýrendur vestan­ hafs hafa fullyrt að það sé aðeins tímaspursmál hvenær „borgara­ styrjöld“ brjótist út milli Teboðs­ hreyfingarinnar og flokksforystunn­ ar. Ljóst er að demókratar hafa beðið í ofvæni eftir slíkum innan­ flokksátökum og eftir síðustu kosn­ ingar bundu margir vonir við að óeining innan Repúblikanaflokksins myndi duga til að verja meirihluta demókrata í öldungadeildinni. Sig­ ur Ernst í Iowa sýnir hins vegar að samruni Teboðshreyfingarinnar og Repúblikanaflokksins er auðveldari en demókratar vonuðu. Mitch McConnell öruggur Repúblikanar önduðu líka létt­ ar um helgina þegar kannanir sýndu að Mitch McConnell, þing­ flokksformaður þeirra í öldunga­ deildinni, virtist öruggur um endur­ kjör í Kentucky. Um tíma leit út fyrir að frambjóðanda demókrata, Alison Lundgren Grimes, tækist að fella McConnell. Þó að Hillary Clinton hafi ljáð Grimes stuðning á lokametrunum er mjög ólíklegt að henni takist að vinna upp forskot McConnells, sem er 9 prósentustig, samkvæmt nýjustu könnunum. Grimes og Clinton treysta þó á að stuðningur kvenna, sem hafa verið mikilvægasta bakland demókrata í síðustu kosningum, dugi henni til sigurs, en frambjóðendur demókrata í öðrum fylkjum Banda­ ríkjanna binda sömu leiðis vonir við að konur mæti á kjörstað í dag, því verði kosningaþátttaka þeirra góð gæti það bjargað flokknum fyrir horn. Þá hefur Grimes líka sakað McConnell og Repúblikanaflokk Kentucky um tilraun til kosninga­ svika og kosningakæfingar (vot­ er suppression). Flokkurinn sendi mjög ógnandi bréf á kjósendur sem líklegir eru til að kjósa demókrata, minnihlutahópa og fátæka kjósend­ ur. Bréfið lítur út fyrir að vera frá yfir­ völdum og í því er viðtakandi sakað­ ur um kosningasvik. Grimes fullyrðir að með bréfinu vilji McConnell hræða kjósendur frá kjörstöðum. Endalok Scotts Walker? Ásakanir um kosningasvik og kosn­ ingakæfingu hafa sömuleiðis verið áberandi í öðrum mikilvægustu kosningum dagsins, fylkisstjóra­ kosningunum í Wisconsin þar sem hinn umdeildi Scott Walker berst fyrir pólítísku lífi sínu. Árið 2011 setti fylkisþing Wisconsin mjög ströng lög um kosn­ ingaþátttöku sem meðal annars kröfðu kjósendur um að framvísa skilríkjum á kjörstað. Ýmis vand­ ræði komu hins vegar upp við fram­ kvæmd laganna og var bent á að reglur um hvaða skilríki tekin væru gild á kjörstað væru beinlínis hann­ aðar til að að halda ungum kjósend­ um og fátæku fólki frá. Í byrjun árs voru lögin því felld úr gildi af alrík­ isdómara. Áfrýjunardómstóll sneri þeirri ákvörðun við, en Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi lögin aftur úr gildi nú í byrjun október. Stuðningsmenn Scotts Walker eru æfir vegna þeirrar ákvörðunar, og hafa sumir gengið svo langt að tala um samsæri Hæstaréttar gegn Walker. Ljóst er að mjög mjótt er á mununum, því í síðustu könnun­ um fyrir kosningar mældist Walker með eins til tveggja prósentustiga forskot á frambjóðanda demókrata, Mary Burke, fyrrverandi fram­ kvæmdastjóra reiðhjólaframleið­ andans Trek, sem hefur höfuðstöðv­ ar sínar í Wisconsin. Spenna í fylkisstjórakosningum Spennan er sömu leiðis mikil í ná­ grannafylkjunum Illinois og Michig­ an. Í Illinois er sitjandi fylkisstjóri, demókratinn Pat Quinn, með naumt forskot, en í Michigan er það repúblikani sem er sitjandi fylkis­ stjóri, Rick Snyder, en forskot hans hefur verið að skreppa saman síð­ ustu dagana fyrir kosningarnar. Í Flórída hefur bilið á milli Charlies Crist, fyrrverandi ríkisstjóra demókrata, og núverandi ríkis­ stjóra, repúblikanans Ricks Scott, hins vegar aukist síðustu dagana fyrir kosningar. Samkvæmt nýju­ stu könnun Zogby er Crist með 45 prósent gegn 38 prósentum Scotts. Frambjóðandi Flokks frjálshyggju­ manna, Adrian Wyllie, mælist svo með 8 prósenta stuðning, en hann er sá frambjóðandi flokksins sem mælist með mest fylgi í ár. Þá er ljóst að demókratar munu ná að fella sitj­ andi fylkisstjóra repúblikana í Penn­ sylvaníu. Í ljósi þess hve mikil völd fylkis­ stjórar hafa yfir kjörstjórnum fylkjanna hafa repúblikanar lagt gríðarlega áherslu á að vinna fylk­ isstjórakosningar í þessum fylkjum, sem öll hafa verið svokölluð „battle­ ground states“ í síðustu forseta­ kosningum. Eins og Chris Cristie sagði í ræðu á ársfundi fylkisstjóra­ sambands repúblikana í október, þá getur það skipt sköpum hver stýrir framkvæmd kosninga. n Magnús Sveinn Helgason sagnfræðingur og sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum n Konurnar gætu komið demókrötum til bjargar n Borgarastyrjöld aflýst meðal teboðsmanna Stefnir í sigur repúblikana Tók forskotið Sigur Ernst yrði umtalsvert áfall fyrir demókrata. Kosningasvik og kosningakæfing Demókratar hafa sakað repúblikana um kerfisbundna kosningakæfingu (voter suppression). Fylkisstjórar repúblikana og meirihlutar þeirra í fylkisþingum hafi kerfisbundið unnið að því að gera minni- hlutahópum og fátækum kjósendum, hópum sem yfirleitt kjósa demókrata, erfitt fyrir að kjósa. Síðan 2010, þegar repúblikanar náðu meirihluta í fjölda fylkisþinga, hafa þeir unnið að því að herða reglur um kosninga- þátttöku og skráningu á kjörskrá, auk þess að ráðast í stórfelldar hreinsanir á kjör- skrám til að útrýma því sem þeir fullyrða að séu umfangsmikil kosningasvik. Rannsóknir sýna hins vegar að kosninga- svik séu mjög fátíð og afar sjaldgæft og fátítt sé að kjósendur sem ekki hafa kosn- ingarétt villi á sér heimildir til að kjósa. Repúblikanar hafa engu að síður fullyrt að nauðsynlegt sé að herða reglur, sér í lagi sé mikilvægt að kjósendur framvísi skilríkjum á kjörstað, en fram á síðustu misseri hafa kjósendur í Bandaríkjunum ekki þurft skilríki til að kjósa. Stór hluti Bandaríkjamanna á til að mynda engin opinber skilríki. Þannig hefur verið áætlað að 9 prósent allra skráðra kjósenda í Wisconsin eigi ekki skilríki sem ný kosningalög fylkisins gera kröfu um. Eru það sérstaklega fátækir kjósendur og fólk úr minnihlutahópum sem ekki á skilríki, enda hafa demókratar fullyrt að þessum ákvæðum sé beinlínis ætlað að halda minnihlutahópum og kjósendum demókrata frá kjörstöðum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.