Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Blaðsíða 32
32 Menning Vikublað 04.–06. nóvember 2014 Í lok síðasta mánaðar voru 150 ár liðin frá fæðingu Einars Bene- diktssonar, skálds og athafna- manns. Í tilefni af því lagði Ill- ugi Gunnarssonar, mennta- og menningarmálaráðherra, fram til- lögu um að nefna afmælisdag skáldsins, 31. október, Dag ljóðs- ins. Daginn áður hafði meirihluti borgarráðs enn fremur samþykkt að flytja styttu af Einari frá Klambratúni að heimili Einars forðum, Höfða, en þar bjó hann frá 1914 til 1917 og er sagður hafa gefið húsinu nafnið Héðinshöfði – sem var síðar stytt í Höfði. Borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokkins höfðu lagt fram tillögur um þetta í ágúst með þeim rökstuðningi að minningu Einars væri ekki sýnd- ur nægilegur sómi á Klambratúni og styttan þyrfti að vera sýnilegri. Þessir tveir gjörningar, hátíðar- dagurinn og flutningur styttunn- ar á sýnilegri stað, eru á vissan hátt til vitnis um að vilji sé til að festa Einar Benediktsson enn frekar í sessi sem einn af hinum helgu mönnum þjóðarinnar, veraldlegum þjóðar- dýrlingum íslenska ríkisins. Þjóðartákn og -dýrlingur Í fræðiritinu Ódáinsakur sem kom út árið 2013, fjallar Jón Karl Helga- son bókmenntafræðingur um lík- indi trúarlegra dýrlinga kirkjunnar fyrr á öldum og veraldlegra þjóðar- dýrlinga ríkisins frá og með nítjándu öld. Jón Karl notar orðið helgifesta um þær aðferðir og hefðir sem stuðst er við þegar einstaklingur er festur í dýrlingasessi. Með orðaforða kirkj- unnar getum við sagt að þetta sé gert með íkonamyndum (t.d. á frímerkj- um og seðlum), líkneskjum (t.d. styttum), helgum stöðum (t.d. sér- stakri áherslu á heimili dýrlingsins), helgum dómum (t.d. söfnum tileink- uðum dýrlingnum), nafngift (t.d. götum og stöðum sem nefndir eru eftir dýrlingnum), messudögum (t.d. opinberum hátíðsdögum tileink- uðum dýrlingnum), korpus, helgi- siðum, helgisögnum, innrætingu, möntrum og fjölmörgum öðrum athöfnum til að viðhalda minningu þjóðardýrlingsins. Jón Karl færir rök fyrir því að verald legir þjóðardýrlingar og helgir dómar þeim tengdir séu meðal annars nýttir til að móta formgerð- ir og gildi þjóðríkisins sem stofnun- ar. Þannig eru leifar úr lífi þjóðar- dýrlingsins nýttar „til að koma reglu á samfélagslegan veruleika og virkja eða beisla ólíka þjóðfélagshópa.“ Val á þjóðardýrlingum byggist því ekki einungis á gæðum eða vinsæld- um verka þeirra heldur á pólitísk- um aðstæðum og þörfum valdafólks hverju sinni. Dýrlingurinn á að vera borgurunum gott fordæmi og fyrir- mynd. Það þarf ekki að varpa rýrð á skáldverk Einars Benediktssonar að reyna að skilja hugmyndafræðilegar ástæður þess að þjóðardýrlingn- um Einari er hampað frekar en öðr- um skáldum sem gætu átt jafn mik- ið tilkall til slíkrar helgifestu. Hér verður einungis reynt að varpa ljósi á hvernig persóna skáldsins (frekar en skáldskapurinn sjálfur) er not- uð, meðvitað eða ómeðvitað, til að staðfesta ákveðin gildi og heims- mynd. Að hvaða leyti er hugmyndin og sagan um Einar Ben notuð til að móta formgerð og gildi íslenska þjóðríkisins? Ævintýraleg ævi, umdeild skáldverk Einar Benediktsson er mikilsvirt skáld. Í ræðum á málþingi í Há- skóla Íslands um helgina sann- færðu fræðimenn undirritaðan um hæfileika Einars og mikilvægi hans í íslenskri bókmenntasögu. Hann hef- ur hins vegar oft verið gagnrýndur fyrir skrifa tyrfinn og uppskrúfað- an texta. Það er ekki síður ævin- týralegt lífshlaup Einars sem hefur haldið nafni hans á lofti í þjóðarvit- und Íslendinga: hann var ritstjóri, lögfræðingur, embættismaður og allrahanda athafnamaður og frum- kvöðull. „Ég held að þessi mynd af hon- um sem þjóðsagna- eða goð- sagnapersónu hafi mynd- ast mjög fljótt, en hann var alveg gríðarlega um- deildur og menn skiptust í tvo hópa: með og á móti,“ segir Guðjón Friðriksson sagnfræðingur sem skrif- aði þriggja binda ævisögu Einars. Hann hefur lengst af verið tengdur borgara- legum gildum, bæði sem persóna og skáld. Ljóðin hans bera vitni um þá nýrómantísku einstak- lingshyggju sem var að verða til í lok nítjándu aldarinnar og byrjun þeirr- ar tuttugustu í bland við hetjudýrk- un, tækni- og framfarahyggju. „Honum hefur verið hampað mjög af mörgum í Sjálfstæðisflokkn- um. Áður var sagt að heildsalar hafi dýrkað hann. Þá hefur hann verið dýrkaður mjög af athafnamönnum. Ýmsir athafnamenn kunnu öll kvæði hans utanbókar og þuldu upp, hann var þeirra ídol,“ segir Guðjón. Enn eru dæmi um athafnamenn í samtímanum sem líta upp til Einars, má þar nefna Jón Ólafsson, sem nefndi fjölmiðlafyrirtækið Norður- ljós til heiðurs Einari, og Skúla Mogen sen, sem nefndi fjárfestinga- félag sitt í höfuðið á fossafélagnu Tít- an sem Einar stofnaði utan um virkj- anaframkvæmdir í Þjórsá. Aftur á móti hafa jafnaðarmenn og kommúnistar einnig reynt að eigna sér Einar Ben. Ljóðið Sjá hin ungborna tíð er oftar en ekki sung- ið á frídegi verkamanna 1. maí og verkalýðsleiðtoginn Einar Olgeirs- son hafði miklar mætur á Einari. Guðjón segir mjög erfitt að stað- setja Einar Benediktsson á stjórn- málalitrófi samtímans: „Ég hugsa að hann myndi ekki hafa rekist vel í neinum flokki.“ Helgifesta Þegar persóna er smám saman fest í sessi sem opinber dýrlingur er auð- vitað ekki um úthugsuð samantek- in ráð að ræða heldur eru einstak- lingar með ákveðnar pólitískar skoðanir að bregðast við ákveðnum aðstæðum. Ástæðurnar og ástandið er vissulega margþætt en það má færa rök fyrir því að Einar geti gegnt því hlutverki að brúa gjá milli þeirra sem skilgreina sig sem listamenn og pólitískra hugmynda hægrisins, að minna á að hugsjónir hægri manna séu ekki ósamræmanlegar menn- ingarlífinu. Mestalla tuttugustu öldina voru ólíkar listamannakreðsur á Ís- landi sem skiptust eftir pólitískum skoðunum. Í dag er listin yfirleitt tengd miðju- eða vinstrivæng stjórn- málanna. Hin árlega deila um lista- mannalaun virðist til dæmis vera rifrildi milli andstæðra póla menn- ingarsinna og frjálshyggjumanna, þar sem hinir fyrrnefndu kvarta yfir því að ríkið meti menninguna ekki að verðleikum, og hinir síðar- nefndu segja það ekki hlutverk rík- isins að niðurgreiða ákveðna fram- leiðslu (þ.e. menningarframleiðslu) en ekki aðra. Sama pattstaða er uppi í deilunni um bókaskatt, myndlistar- sjóð og kvikmyndasjóð: „ríkið met- ur ekki bókaútgáfu / myndlist / kvik- myndaiðnaðinn að verðleikum,“ segja listamenn, en frjálshyggju- menn að það sé ekki hlutverk rík- isins að niðurgreiða ákveðna gerð (menningar)neyslu umfram aðra. Þó að á tuttugustu öldinni hafi verið nokkuð sterkari tenging milli listrænnar sköpunar og jafnað- arhyggju, getum við sagt að vinstrið hafi á undanförnum áratugum tek- ist að „eigna sér“ listina í meira mæli en áður. Messudagurinn Illugi Gunnarsson er á vissan hátt milli steins og sleggju. Hann er full- trúi menningarinnar í ríkisstjórn, skapandi og listelskur einstaklingur, en fylgir hugmyndastraumi sem kveður á um að listin eigi ekki að þrí- fast fyrir tilstuðlan styrkja hins opin- bera. En á sama tíma og framlög til einstakra menningarmála eru minnkuð eða vilyrði dregin til baka (þess ber reyndar að geta að heildar- útgjöld til menningarmála í fjárlaga- frumvarpi hafa aukist frá síðasta ári), er hann sannfærður um að blóm- legt lista- og menningarlíf sé samfé- laginu til hagsbóta. Niðurskurðurinn er álitinn nauðsynlegur til að ná fram halla- lausum fjárlögum, en einnig er það pólitískt markmið frjálshyggjunnar að minnka hlutverk hins opinbera í listaheiminum jafnt sem annars staðar. Verkefni Illuga felst í því í að sannfæra Íslendinga um að listalíf og pólitíski hægrivængurinn séu ekki andstæður. Viðskipti og listir vinni saman en útiloki ekki hvort ann- að. Til þess beitir hann nú þjóðar- dýrlingnum Einari Ben. Hugmyndafræðileg kynning Í aðsendri grein í Morgunblaðinu færir Illugi rök fyrir upptöku þessa opinbera messudags. Hann tal- ar vissulega um ljóðlist Einars en áhugavert er að taka saman þær framkvæmdir og lífsskoðanir Einars sjálfs sem Illugi ákveður að nefna og máta þær við stefnu og hugmyndir þeirrar íhaldssömu frjálshyggju sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir. Viðskiptafrelsi Illugi bendir á að Einar hafi verið jákvæður gagnvart viðskiptafrelsi og samkeppni – en þetta eru óumdeilanlega grunngildi efnahagslegrar frjálshyggju. Hann segir Einar hafa álitið peninga vera afl þeirra hluta er gera skyldi. Hér eru lykilorðin frelsi, samkeppni og peningar. Iðnaður Ein helsta hugmynda- fræðilega barátta samtímans snýst um hvernig haga skuli nýtingu nátt- úrunnar, en þarna reynist Einar vissulega sterkur bandamaður virkj- anasinna. Illugi talar um að Einar hafi verið jákvæður í garð orku- iðnaðar, hann vildi (þrátt fyrir ást á náttúrunni) nýta náttúruauðlind- ir til að auka hagsæld Íslendinga. Boðskapurinn er þessi: það er hægt að elska náttúruna og virkja hana á sama tíma. Hér eru lykilorðin því iðnaður, nýting og hagsæld. Ættjarðarást Þriðja deilumálið sem Einar er látinn miðla málum í er deilan um þjóðerniskennd og -hyggju. Deila milli þeirra sem leggja áherslu á hversu sérstakt Ísland er og hversu miklum möguleikum land og þjóð búi yfir og þeirra sem gagn- rýna þann málflutning sem þjóðern- ishyggju. Illugi nota Einar til að sýna að ættjarðarást sé ekki heimóttar- skapur (enda Einar víðförull heims- borgari) og síðar grípur hann til hugtaksins þjóðmenning sem hefur verið umtalað frá því að það var sett inn í stjórnarsáttmála Sjálfsæðis- flokks og Framsóknar. Peningar eru „lyftistöng fyrir nýja þjóðmenn- ingu á fornum stofni,“ segir Ein- ar Ben í gegnum penna Illuga, eða á mannamáli: það er engin list án blómlegs viðskiptalífs. Þetta tengir hann svo einnig hugmyndinni um að ættjarðarástin kristallist í til- raunum Einars til að selja aðgang að náttúrunni. Hérna eru lykilorðin ættjarðarást, þjóðmenning og ferða- mennska. Við þetta má bæta að Illugi segir hugmyndir Einars eiga vel við í bar- áttunni fyrir meira læsi. Þessi full- yrðing er órökstudd – hvaða hug- myndir þessa tiltekna skálds umfram annarra það eru sem eiga vel við í þessari baráttu er ekki ljóst – en hef- ur tilfinningalegt gildi. Líkneskið að Höfða Staðsetning líkneskis á borð við styttu af persónu skiptir máli: því sýnilegra sem það er í opinbera rým- inu, því mikilvægari getur persónan talist í vitund borgaranna. Þá er ljóst að hægt er að lesa táknræna merk- ingu úr umhverfi þess staðar þar sem líkneskinu er komið fyrir. Eftir að hugmyndir komu frá hópi áhugamanna um Einar Ben höfðu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks veg og vanda að tillögunni um að flytja styttu Ásgríms Sveinssonar af Einari af Klambratúni að Höfða. Reykja- víkurborg greiðir helming af 15 millj- óna króna kostnaði við flutninginn en áhugamennirnir borga helming. Það er ljóst að mun fleiri ferða- menn heimsækja Höfða, sögu- legan stað sem skrifað er um í ferða- mannabæklingum, en Klambratún, útivistarsvæði borgarbúa. Þó að Höfði sé í eigu Reykjavíkurborgar er það kannski fyrst og fremst tákn um heimsborgarahátt Íslendinga: hús- ið er brennt inn í vitund Íslendinga sem staður þar sem þjóðhöfðingj- ar stórvelda hittast. Staðurinn er því hentugur fyrir heimsborgarann og ferðamálafrömuðinn Einar Ben. Höfði er enn fremur staddur rétt við viðskiptahverfið Borgartún þar sem athafnamaðurinn og viðskiptamað- urinn, og embættismaðurinn Einar Ben sómir sér vel. Frekar en eitthvert skáld sem spókar sig í almennings- garðinum er Einar Ben við Höfða frekar tákn um veraldlegan athafna- mann og frumkvöðul. n Þjóðardýrlingurinnn Einar Ben n Fæðingardagur Einars gerður að Degi ljóðsins n Íslenskir hægrimenn festa skáldið í sessi Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is Þjóðardýrlingurinn Stytta Ásgríms Sveinssonar af Einari Benediktssyni er nú staðsett á Klambratúni við Miklubraut. Mynd SiGtryGGur Ar Íkon Mynd af Einari Ben var á 5.000 króna seðlinum. Fluttur Reykjavíkurborg greiðir helming flutningskostnaðarins að Höfða. „Boðskapurinn er þessi: það er hægt að elska náttúruna og virkja hana á sama tíma. „Val á þjóðar- dýrlingum byggist því ekki einungis á gæð- um eða vinsældum verka þeirra heldur á pólitískum aðstæðum og þörfum valdafólks hverju sinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.