Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Blaðsíða 30
Vikublað 4.–6. nóvember 201430 Lífsstíll Hlátur er aðlaðandi T augasérfræðingurinn og uppistandarinn Sophie Scott elskar að pæla í hlátri en að hennar sögn misskilja margir þessa skemmtilegu athöfn. Hér er listi hennar yfir tíu atriði sem þú vissir ekki um hlátur. Listinn birtist fyrst á fréttavef BBC. 1 Rottum kitlar Langar þig að sjá rottu hlæja? Prófaðu að kitla hana. Rottur, simpansar og hundar hlæja. Þó ekki að brönd- urum heldur til að sýna hamingju og mynda tengsl. Alveg eins og við mannfólkið. Rottur sem leika sér meira hlæja meira en þær sem leika sér lítið og þær sem hlæja mest vilja vera í kringum aðrar sem hlæja. 2 Hlátur snýst ekki um brandara Ef þú spyrð fullorðinn einstakling hvað fái ahnn til að hlæja nefna flestir brandara. Að sögn Scotts er það rangt. Robert Provine, sálfræðingur við háskólann í Maryland í Banda- ríkjunum, komst að því að flestir hlæja mest þegar þeir tala við vini. Provine segir einstaklinga 30% líklegri til að skella upp úr þegar þeir eru í kringum annað fólk. Hann segir okkur þó ekki hlæja að bröndurum heldur að fullyrðing- um og athugasemdum. Að sögn Scotts er hlátur ein tegund tjá- skipta en ekki viðbragð. Hlátur tengist því félagslegri hegðun sem við notum, til að sýna öðrum að okkur líki við þá og við skiljum þá. 3 Heilinn greinir á milli alvöru hláturs og gervi Scott rannsakar hlátur meðal annars með heilaskanna. Hún hefur komist að því að heilinn greinir á milli hláturs sem kemur frá hjartanu og hláturs sem kreistur er upp. Enn fremur, segir hún, kveikir uppkreistur hlátur á svæðum í heila sem tengist skiln- ingi á tilfinningum annarra sem Scott segir sanna að við reynum að skilja ástæðuna fyrir uppgerðinni. 4 Hlátur er smitandi Eft-ir að hafa rannsakað hlátur með hjálp heilaskamma hefur Scott komist að því að hlátur er smitandi. Enn fremur eru þeir sem líklegri eru til að hlæja þegar aðrir hlæja betri í að greina á milli ekta hláturs og óekta. 5 Þekkt fólk er fyndnara Uppistandarar not- færa sér þá staðreynd að hlátur er smitandi óspart til að halda saln- um heitum. Hins vegar skipta væntingar okkar og það hvort við þekkjum þann fyndna máli. Fólki finnst brandari sem sagður er af frægum grínista mun fyndnari en þegar óþekktur einstaklingur seg- ir hann. 6 Hlátur kemur þér ekki í form Netið er fullt af alls kyns mýtum tengdum hlátri og heilsu en því mið- ur á sú fullyrðing að hlátur brenni fleiri kalóríum en langhlaup enga stoð í raunveruleikanum. Vissulega eykur hlátur orku og hraðar á hjartslætti en brennslan er ekki meiri en 10– 40 kalóríur við hvert 10–15 mínútna hláturskast. Þú yrðir því að hlæja í þrjá klukkutíma til að brenna snakkinu sem þú torg- aðir í gærkvöldi. 7 Sambönd halda lengur ef þú hlærð Sál- fræðingurinn Bob Levenson, við Berkel- ey-háskólann í Banda- ríkjunum, fékk pör til að fjalla um hvað í fari makans pirri þau – sem hlýtur að teljast viðkvæmt um- fjöllunarefni. Þau pör sem not- uðu hlátur og bros áttu auð- veldara með að ræða vankanta í fari makans auk þess sem þau mældust hamingjusamari og voru lengur saman. Þetta, seg- ir Scott, sýnir okkur að við not- um hlátur til að láta okkur líða betur. Þess vegna sé hægt að nota hlátur til að mæla, ekki aðeins heilsu fólks, heldur einnig heilsu sambanda. 8 Hlátur þarfnast nákvæmrar tímasetningar Þegar fólk ræðir saman hlær það nákvæmlega við enda setn- inga. Meira að segja þeir sem nota táknmál, þótt þeir gætu vel hlegið í gegnum allar „þöglu“ samræðurn- ar. Scott hefur mikinn áhuga á því hvernig uppistandarar nota pásur til að fá viðbrögð frá áhorfendum sínum. Hún segir að það þarfnist mikils hugrekkis að grínast fyrir framan hóp og taka svo pásu til að búa til pláss fyrir hlátur – og komast yfir það ef ekki er hlegið. Hún seg- ir uppistandara verða að geta lesið í hláturinn til að vita hvenær sé best að taka pásurnar. 9 Hlátur er aðlaðandi Getur þú virkilega hlegið ein- hvern í rúmið með þér? Samkvæmt rannsókn á auglýsingum á einkamála- dálkum telja bæði konur og karlar húmor mikilvægari en gáfur, menntun, starfsframa og kyn- lífslöngun. Í annarri rannsókn kom fram að við lítum hýrari augum á ókunnuga ef þeir hlæja að bröndurum okkar. 10 Sumt fær þig pott-þétt til að hlæja Enginn grínisti hefur fundið BRANDARANN sem fær alla til að hlæja alltaf. En sam- kvæmt rannsóknum Scotts er sumt fyndara en annað. Eitt af því sem langflestum finnst fyndið eru myndbönd af fólki sem berst við hláturinn við aðstæður þar sem hláturskast þykir sér- lega óviðeigandi. Til að mynda fréttalesari sem fær óstjórn- legt hláturskast í beinni út- sendingu. n n 10 atriði sem þú vissir ekki um hlátur n Staðfest er að hlátur er smitandi Aðlaðandi Fólk telur húmor mikilvægari en gáfur. Tímasetning Hlátur þarfnast nákvæmrar tímasetningar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.