Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Blaðsíða 20
Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík fréttaskot 512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 aðalnúmer ritstjórn áskriftarsími auglýsingar sandkorn 20 Umræða Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason • Ritstjóri: Hallgrímur Thorsteinsson Fréttastjóri: Jóhann Hauksson • Ritstjórnarfulltrúi: Ingi Freyr Vilhjálmsson • Umsjónarmaður innblaðs: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Vikublað 4.–6. nóvember 2014 Maður finnur alltaf eitthvað Annaðhvort er ég rólegur eða mjög rólegur Aldrei minnst á konurnar Vertu úti, vinur Salka Gústafsdóttir tók „100 happy days“ skrefinu lengra. – DV Bragi Valdimar Skúlason er rólyndismaður. – DVHarpa Þorsteinsdóttir er ósátt við Stöð 2 sport. – DV V ið eigum því frekar að venjast að frá trúbadornum Svavari Knúti Kristinssyni streymi ljúfir og angurværir íslensk­ ir sönglagatónar en reiðilestur um það hvað allt sé orðið ómögulegt á Íslandi. Ef efnt yrði til keppni um ljúfasta mann Íslands kæmi nafn Svavars Knúts ósjálfrátt upp í hugann ásamt sveimi úr Draumalandinu, laginu þar sem blómabreiðan angar við blíðan fuglasöng „því þar er allt sem ann ég, þar er mitt Drauma­ land.“ Þess vegna er kannski enn meiri ástæða til að taka þessa rödd alvar­ lega sem nú kveður sér hljóðs í nýj­ um Austurvallarmótmælum. Það eru auðvitað engin ný tíðindi á þess­ um eftirhrunsárum að mótmælt sé á Austurvelli, en tíðindin felast kannski í hverjir mótmæla nú. Mót­ mælendahóparnir hingað til hafa haft á sér blæbrigðamun en hafa þó átt það sameiginlegt að þar hefur far­ ið framarlega í flokki fólk sem alla jafna skiptir sér af pólitík og hefur haft uppi gagnrýni. Þetta virðist ekki vera tilfellið núna. Mótmælin núna virðast meira koma frá fólki sem hef­ ur hingað til ekki látið í sér heyra. Fólki eins og Svavari Knúti. Svavar er með rúmlega 1.600 áskrifendur að persónulegri síðu sinni á Facebook. Þar setti hann inn færslu á miðvikudaginn í síðustu viku og sagði: „Ég held að Ísland sé að selja sál sína ódýrt og ógeðslega. Og mér býður við þessari þróun. Ég elska landið mitt, en akkúrat núna er verið að taka allt sem ég trúi á, pakka því saman og brenna það á bálkesti. Mér líður eins og þessi ríkisstjórn sé beisikallí að gera svo marga vonda hluti í einu að fólk hreinlega viti ekki hverju það á að mótmæla fyrst.“ Yfir 700 manns líkaði við færsluna. Það er athyglisvert sjá hvað það er sem virðist hafa fyllt mælinn hjá þessum friðsama unga Íslendingi sem hefur verið svona seinþreyttur til vandræða. Það sem hann nefnir sérstaklega og svíður mest af þeim mörgu vondu hlutum sem ríkis­ stjórnin hefur staðið fyrir er aðförin að ókeypis menntun og heilbrigðis­ þjónustu í landinu. Hann blandar sér í ört stækk­ andi hóp þeirra sem sjá glögg merki þess að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sé vísvitandi að skera niður þessa ómissandi al­ mannaþjónustu til að búa í haginn fyrir aukna einkavæðingu í menntun og heilbrigðisþjónustu. Svavar segir: „… ef þetta gengur í gegn án þess að við mótmælum, þá er kynslóðin mín og kynslóðirnar sem eru eldri en hún beisikallí að segja: „Takk fyrir að borga fyrir mig menntunina og heilbrigðiskerfið kæru foreldrar, afar og ömmur. Fokk­ ið ykkur börn og barnabörn. Kaupið ykkur tryggingar og borgið fyrir ykkar nám sjálf, helvítis afæturnar ykkar.“ Hann segir annars staðar á Face­ book að hann hafi ekkert ætlað sér að fara að „skipuleggja mótmæli eins og einhver bévítans Bolsévíki.“ Hann hafði ætlað sér að eyða næstu vikum í að búa í haginn fyrir fjölgun í fjöl­ skyldunni. Hann hefur væntanlega litið yfir sviðið á þann veruleika sem það barn mun fæðast inn í og ákveðið að láta þær breytingar sem eru að verða ekki yfir sig ganga. Gangi þær í gegn kemur kerfið í síauknum mæli til með að segja við það barn: „Vertu úti, vinur,“ af því það getur ekki borg­ að fyrir þjónustu sem áður var greidd úr sameiginlegum sjóðum. Mótmælin núna eru mótmæli þess þögla meirihluta sem velt­ ir stjórnmálum ekki mikið fyrir sér fyrr en hann finnur á eigin skinni að það er verið að rjúfa sjálfan samfé­ lagssáttmálann. Og þá er sagt stopp. Hingað og ekki lengra. Feðgar í fjölmiðlum Með kaupum sínum á litlum hlut í vefmiðlinum Kjarnanum hefur Ágúst Ólafur Ágústsson, fyrrver­ andi þingmaður og varaformað­ ur Samfylkingarinnar, nú fetað í fótspor föður síns, Ágústs Einars­ sonar hagfræðings. Ágúst keypti hlut í útgáfufélagi DV um síðustu aldamót ásamt þeim Óla Birni Kárasyni og Einari Sigurðssyni og náðu þeir yfir­ höndinni á þeim miðli. Aðkoma Ágústs Ólafs er þó umtalsvert minni í sniðum og er hann lítill hluthafi sem mun verða ráðgef­ andi samkvæmt tilkynningunni. Báðir virðast þeir feðgar hins vegar vera talsverðir áhugamenn um fjölmiðla. Utanríkisráðherrann Bjarni Ben Nigel Farage, formaður breska þjóðernishyggjuflokksins Ukip, er hrifinn af stefnu íslensku ríkis­ stjórnarinnar í Evrópumál­ um ef marka má Twitter­færslu sem hann birti á mánudaginn. Farage sagði þar, og vitnaði í utan­ ríkisráðherra Íslands sem hann sagði að héti Bjarni Benedikts­ son: „Utanríkisráðherra Íslands er sannfærður um að landinu sé betur borgið utan Evrópusam­ bandsins.“ Farage vitnaði svo orðrétt í ummæli Bjarna þess efnis. Ríkis­ stjórnin og Ukip eru sammála um að minnsta kosti eitt. Fara báðir, Óskar og Davíð? Sagan segir að stórútgerðin sé orðin harla þreytt á að greiða tapið af rekstri Morgunblaðsins og upp sé kom­ inn ágreiningur í hluthafahópn­ um. Mögulega er það raunveru­ lega ástæðan fyr­ ir því að Óskar Magnús son er að láta af störfum sem útgáfustjóri. Nú velta menn fyrir sér hvort Davíð Oddssyni verði nokkuð vært þegar Óskar yfirgefur skútuna og því spurt hvort þeir hverfi báðir á braut um áramótin. Þá þarf að finna nýjan ritstjóra. Einn úr Eyj­ um, heimabæ Guðbjargar Matt­ híasdóttur, aðaleiganda Mogg­ ans, kemur kannski til greina en það er Páll Magnússon, fyrrver­ andi útvarpsstjóri. Fær mest úr skulda­ niðurfærslunni Margir bíða í ofvæni eftir niður­ stöðu skuldaniðurfærslunnar, stærsta kosningaloforðsins, sem renna á til tuga þúsunda einstak­ linga. Margir gera því skóna að upphæðirnar sem um ræðir muni valda mörgum vonbrigð­ um. Einn er þó sá sem má vel við una, en það er Tryggvi Þór Her­ bertsson, sem fenginn var til að útfæra skuldaniðurfærslu Fram­ sóknarflokksins. Eftir því sem næst verður komist er hann bú­ inn að fá um 30 milljónir króna fyrir viðvikið í verktakagreiðslur. Leiðari Hallgrímur Thorsteinsson hallgrimur@dv.is E ftir kosningar tekur við framsóknarstjórn eða verð­ tryggingarstjórn“. Þetta var boðskapur Sigmundar Dav­ íðs Gunnlaugssonar í að­ draganda síðustu alþingiskosninga, eða þann 22. apríl 2013. Í kosninga­ áróðri Framsóknarflokksins var hamrað á því að verðtryggingin yrði afnumin hratt og örugglega. Nú, rúmu einu og hálfu ári síðar, er ljóst að framsóknarstjórn Sigmund­ ar Davíðs er verðtryggingarstjórn, enda hafa engin þingmál verið lögð fram um afnám verðtryggingar. Og það sem meira er þá hefur verð­ tryggingin fest sig í sessi á íslensk­ um lánamarkaði. Ekki er að sjá að þessi þróun valdi Framsóknar­ flokknum áhyggjum. Nýr forsendubrestur? Ríkisstjórnin lofar leiðréttingu á húsnæðislánum vegna forsendu­ brests. Þessi forsendubrestur er samkvæmt ríkisstjórninni til kom­ inn vegna meiri verðbólgu en al­ menningur gat vænst í eðlilegu árferði. Hrunið olli vissulega geng­ isfalli og verðbólgu. Gengisfell­ ingar og verðbólga eru því miður fylgifiskur krónunnar, lán fólks hafa stökkbreyst áður og hætt er við að það geti gerst aftur. Erf­ ið skuldastaða þjóðarbúsins, afnám gjaldeyrishafta, óstjórn í efnahagsmálum, færri ferðamenn eða lægra fiskverð, svo eitthvað sé nefnt, geta orsakað gengisfell­ ingu og þar með verðbólgu. Hætt er við að nýr forsendubrestur kalli á nýja leiðréttingu. Hver á að fjármagna þá millifærslu þegar til kemur? Í stað þess að taka á þessum kerfisvanda eyðir ríkisstjórnin allri orku sinni í það hugsjóna­ mál sitt að hækka skatta á mat­ væli. Var því lofað fyrir kosn­ ingar? Verðtryggð leiga og námslán Þegar ríkisstjórnin kom galvösk með leið­ réttinguna var henni góðfúslega bent á það af þingmönnum Sjálf­ stæðisflokksins, að hún væri með­ al annars að leiðrétta lán fólks sem gæti auðveldlega greitt þau og hefði hagnast á hækkandi húsnæð­ isverði. Þetta gerist á sama tíma og leigj­ endum er sagt að enginn forsendu­ brestur hafi orðið á þeirra kjör­ um, þrátt fyrir að leiga sé almennt verðtryggð og hafi farið hækkandi vegna mikillar eftirspurnar eftir leiguhúsnæði. Ríkisstjórnin hefur ekki lagt fram neinar tilllögur til að bæta kjör leigjenda, á þeirra verð­ tryggingarvanda hefur Sigmund­ ur Davíð engan áhuga. Það sama má segja um verðtryggingu náms­ lána. Forsætisráðherra lætur eins og hann hafi ekki frétt af verð­ tryggingu þeirra. Trausti rúin Sigmundur Davíð taldi fyrir ári síðan að lítið mál væri að afnema verðtryggingu. Veruleikinn er annar og verðtryggingarstjórn hans er nú trausti rúin. Hvenær ætlar bjargvættur heimilanna að stíga fyrstu skrefin í afnámi verð­ tryggingar? n Verðtryggingarstjórn Sigmundar Davíðs„Var því lofað fyrir kosningar? Sigríður Ingibjörg Ingadóttir þingkona Samfylkingarinnar Kjallari „Mótmælin núna eru mótmæli þess þögla meirihluta sem veltir stjórnmálum ekki mikið fyrir sér fyrr en hann finnur á eigin skinni að það er verið að rjúfa sjálf- an samfélagssáttmál- ann. Og þá er sagt stopp. Hingað og ekki lengra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.