Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Blaðsíða 9
Vikublað 4.–6. nóvember 2014 Fréttir 9
Ríkisstjórn á skilorði
Óvinsæll Framsóknarflokkur
n Öldudalur hrunsins alvarlegri en menn hugðu
Grétar Þór Eyþórsson stjórnmála-
fræðingur við Háskólann á Akureyri
rekur fylgishrun ríkisstjórnarinnar og
vaxandi óánægju nú meðal kjósenda,
sem birtist meðal annars í mótmælum,
fyrst og fremst til fylgishruns Fram-
sóknarflokksins. „Það var sá flokkur
sem gaf út stærstu kosningaloforðin,
skuldaleiðréttinguna, sem fólk bíður
enn eftir. Umræðan um hana hefur
verið gagnrýnin og það hefur komið í
ljós eftir kosningar að það sem átti að
setja í leiðréttingarnar var hreint ekki
jafn mikið og lofað var. Það er von að
einhverjir telji sig svikna. Ég rek óvin-
sældir ríkisstjórnarinnar að nokkru leyti
til vaxandi óþreyju. Fólk bíður eftir því
að eitthvað gerist, en við skulum bíða
með endanlegan dóm þangað til búið er
að taka upp úr kössunum. En þetta var
stóra málið í kosningabaráttunni.“
Langþreyta almennings
Grétar segir að fráfarandi ríkisstjórn hafi
tekið við sviðinni jörð og ætlað að laga
margt án þess að það tækist að öllu
leyti. Þetta skapaði óþolinmæli. „Nú
gerast svipaðir hlutir. Miklu var lofað en
efndirnar láta bíða eftir sér. Það tel ég
að skýri lítið fylgi ríkisstjórnarinnar nú.“
Ýmsir hagvísar benda til þess að
ástandið sé ekki alslæmt. Grétar telur
engu að síður að það dugi ekki til meðan
ekki bólar á efndum varðandi til dæmis
skuldaniðurfærsluna. „Það hlustaði
enginn heldur á Jóhönnu Sigurðardóttur
og Steingrím J. Sigfússon þegar þau töl-
uðu um jákvæðar hagtölur. Kjósendur
voru að hugsa um skuldir sínar og kjör.
Einnig er ástandið ótryggt nú vegna
átaka á vinnumarkaðnum. Læknar eru
í verkfalli og stöðugar fréttir berast af
vondu ásigkomulagi Landspítalans.
Þetta hjálpar ekki.“
Mótmæli nú eru einhver birtingar-
mynd þess að mati Grétars að fólk sé
orðið langþreytt og óþreyjufullt. „Það
er að renna upp fyrir fólki að öldudalur
kreppunnar er alvarlegri og lengri en
menn ætluðu. Kannski vildu menn
ekki horfast í augu við það í upphafi
en átta sig nú á að batinn tekur lengri
tíma. Það er svekkjandi. Við erum
veiðimannaþjóðfélag og höfum oft
bjargast einhvern veginn, stundum með
þorskgöngum frá Grænlandi þegar illa
árar. Nú upplifum við það að ekki eru til
neinar skyndilausnir og í fyrsta skipti
er fólk ef til vill að átta sig á því. Síðast
ætluðum við að fá erlenda kröfuhafa til
að taka skellinn með okkur að einhverju
leyti. Það virðist ekki vera alveg eins
einfalt og menn töldu. Ég held mig
talsvert við þann skilning enn, að óvin-
sældir ríkisstjórnarinnar séu nátengdar
loforðunum um skuldaniðurfærslu
heimilanna og tilfinningu manna um
vanefndir í þeim efnum.“
Fylgishrun
Framsóknar
Grétar Þór Ey-
þórsson stjórn-
málafræðingur
telur að skýra
megi óvinsældir
ríkisstjórnarinnar
með tortryggni al-
mennings um efndir
á kosningaloforð-
um Framsóknar-
flokksins.
S
amkvæmt heimildum DV
innan embættis tollstjóra er
hugsanlegt smygl á 250 vél
byssum litið alvarlegum aug
um.
Greint var frá því á Vísi sem og
vef RÚV um helgina að geymsla
Landhelgisgæslunnar á öryggisvæði
Keflavíkurflugvallar, þar sem hríð
skotabyssur er geymdar, hafi verið
innsigluð stuttu eftir að DV greindi
fyrst frá innflutningi byssanna. Með
því að flytja til landsins tugi hríðskota
byssa án þess að tilkynna tollinum
það hafi Landhelgisgæslan ekki virt
framvísunarskyldu og hafi því mögu
lega brotið lög.
Samkvæmt tollalögum er ekkert
sem bendir til að Landhelgisgæslan
sé undanskilin þeirri skyldu.
Framvísunarskylt óháð túlkun
Samkvæmt frétt RÚV hafði Land
helgisgæslan ekki framvísað pappír
um sem sýndu fram á að byssurnar
væru gjöf frá norska hernum. Ástæð
an fyrir þeim skorti á pappírum er
nokkuð augljós, norski herinn hefur
ítrekað fullyrt að ekki væri um gjöf að
ræða og fyrirhugað væri að rukka fyr
ir byssurnar.
Talsmenn norska hersins hafa ít
rekað fullyrt að reikningur verði send
ur vegna byssanna innan skamms
sem og að, að beiðni Landhelgisgæsl
unnar, greiðslu hafi verið frestað. Allt
bendir til þess að Landhelgisgæslan
hafi ekki séð ástæðu til að tilkynna
tollinum um innflutning á hríðskota
byssum, mögulega vegna þess að
stofnunin hafi litið á byssurnar sem
gjöf. Starfsmaður tollsins bendir á að
þrátt fyrir að byssurnar hefðu í raun
verið gjöf breytti það engu um fram
vísunarskyldu.
Talið smygl af tollinum
Samkvæmt heimildum DV innan toll
gæslunnar er beinlínis rætt um að
innflutningur Landhelgisgæslunn
ar á hríðskotabyssunum frá Noregi
sé smygl. „Við í tollinum erum hrein
lega algjörlega hneyksluð á þessu og
þá ekki út frá gjöldunum. Lögreglan
og Landhelgisgæslan virðist halda að
þau þurfi ekki að virða framvísunar
skyldu, sem er algjört grundvallar
mál, þegar kemur til landhelgi,“ seg
ir heimildarmaður DV. Hann segir
enn fremur að strangt sé tekið á inn
flutningi embættis Ríkistollstjóra sem
og starfsmanna þess og því skjóti það
skökku við að sama eigi ekki við um
lögregluna né Landhelgisgæsluna.
Engin heimild í lögum
Þegar lög um tollgæsluvald eru
skoðuð kemur í ljós að áhafnir varð
skipa hafi aðeins tollgæsluvald þegar
þær annist eða aðstoði við tollgæslu.
Ekki er hægt að sjá hvernig innflutn
ingur á hundruð hríðskotabyssa geti
flokkast undir aðstoð við tollgæslu.
Enn fremur segir í 152. grein tollalaga
að „tollstjóri getur falið starfsmönn
um Landhelgisgæslu Íslands að ann
ast tollgæslu“. Í ljósi þess að byss
urnar hafi verið innsiglaðar er afar
ólíklegt að slík heimild hafi verið fyr
ir hendi. Því er varla hægt að komast
fram hjá því að innflutningur Land
helgisgæslunnar hafi ekki verið lög
legur miðað við tollalög. n
Vélbyssusmygl á
Keflavíkurflugvelli
n Landhelgisgæslan virti ekki framvísunarskyldu n Braut mögulega lög
Tunglfararnir lentu í tollinum
En þrátt fyrir að Landhelgisgæslan telji sig
ekki þurfa að láta tollayfirvöld á Íslandi
vita þá eru ólíklegustu menn í heimi látnir
útbúa tollskýrslur vegna innflutnings.
Þannig var það með tunglfararana Buzz
Aldrin, Neil Armstrong og Michael Collins
þegar þeir komu tilbaka úr frægðarför
sinni til tunglsins en þá urðu þeir að fara
í gegnum tollinn í Bandaríkjunum. Engu
breytti þótt þeir væru að koma úr einni
frægustu för NASA-geimvísindastofn-
unarinnar til þessa, tollayfirvöld vildu
ekki sleppa þeim við þá hefðbundnu
skýrslugerð sem allir, enn til dagsins í dag,
þurfa að fylla út þegar snúið er tilbaka
á heimaslóðir. Samkvæmt tollskýrslu-
blaði, sem NASA birti á 40 ára afmæli
tunglferðarinnar og tunglfararnir fylltu
út, þá tóku þeir með sér tunglsteina, ryk
og önnur sýni en öllu þessu urðu þeir að
framvísa við komuna til landsins. „Það er
sama hver verkefnið er, jafnvel geimfarar
þurfa að fara í gegnum tollinn,“ sagði
yfirmaður hjá NASA.
Innsiglaði geymsluna
Tollurinn innsiglaði geymslu
Landhelgisgæslunnar
stuttu eftir að DV greindi frá
byssukaupum.
stjórnvöld sanni sig
Atli Már Gylfason
Hjálmar Friðriksson
atli@dv.is / hjalmar@dv.is