Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Side 21
Umræða 21Vikublað 4.–6. nóvember 2014
Hún er alltaf í
mér samt
Ég á son Ég kaus að gera
það ekki
Bjarni Bernharður Bjarnason hefur ekki fengið geðklofakast í sjö ár. – DV Teitur Magnússon vann sig út úr andlegum veikindum. – DV Íslensk móðir stundar vændi um pabbahelgar. – DV
F
rá hruni bankakerfisins hef
ur verið of mikið um laust fé í
kerfinu og Seðlabankinn hef
ur leitast við að binda það. En
í stað þess að hækka bindi
skylduhlutfallið, sem hefði verið
ódýr og skilvirk leið að settu marki,
hefur Seðlabankinn boðið bönkun
um ríflega vexti fyrir að leggja inn fé í
Seðlabankann. Vaxtagreiðslur Seðla
bankans til banka hafa numið hátt í
30 milljörðum á fjórum árum. Með
því að hækka bindiskylduna hefði
Seðlabankinn trúlega getað sparað
sér helminginn af þeim kostnaði og
greitt ríflegan arð í ríkissjóð.
Með því að hækka bindiskyldu
hlutfallið hóflega hefði að mátt
lækka vaxtakostnað Seðlabankans
um helming. Með því hefði mátt
skylda bankana að leggja 50–100
milljarða inn á bindiskyldureikn
inga í Seðlabanka sem hefðu borið
0% vexti í stað 5% vaxta. Þannig hefði
Seðlabankinn getað sparað sér 2,5 til
5,0 milljarða árlega og greitt mikinn
arð til ríkissjóðs. Arðurinn hefði þá
nýst til að lækka skatta, lækka ríkis
skuldir eða jafnvel hefja byggingu á
nýjum spítala. Allt hefði það kom
ið heimilum landsins miklu betur
en að fóðra bankana á þessum háu
vaxtagreiðslum.
Það er á valdi Seðlabankans að
ákveða vexti á bindiskyldureikning
um og fróðlegt að vita hvers vegna
seðlabanki sem getur greitt 0% kýs
að greiða 5% vexti á bindiskyldu
reikninga. Þetta virðist óþarflega
rausnarlegt gagnvart bönkum sem
ekki eru á flæðiskeri staddir, ekki síst
í ljósi þess að það var 8 milljarða tap
á rekstri Seðlabankans árið 2013.
Það má eflaust deila um hvort
Seðlabankinn eigi að hámarka hagn
að í rekstri sínum, en það verður
seint deilt um að Seðlabankanum
er skylt að ná fram markmiðum um
verðstöðugleika án óþarfa kostnað
ar.
Vilji Seðlabankinn draga úr
kostnaði um nokkra milljarða á
næsta ári, þarf hann að bretta upp
ermar, auka bindiskyldu bankanna
hóflega og lækka samtímis vexti á
bindiskyldureikningum í 0%. Enn er
ekki of seint að afstýra milljarða tapi
á næsta ári. n
Illa farið með milljarðana
Frosti Sigurjónsson
þingmaður Framsóknarflokks
Kjallari
Milljarðar kr.
250.000
200.000
150.000
100.000
50.000
0
20
11-
01
20
11-
03
20
11-
05
20
11-
07
20
11-
09
20
11-
11
20
12
-0
1
20
12
-0
3
20
12
-0
5
20
12
-0
7
20
12
-0
9
20
12
-11
20
13
-0
1
20
13
-0
3
20
13
-0
5
20
13
-0
7
20
13
-0
9
20
13
-11
20
14
-0
1
20
14
-0
3
20
14
-0
5
20
14
-0
7
20
14
-0
9
Innlán og innstæðubréf banka alls í Seðlabanka
sem hafa skilað bönkum 5% til 5,75% vöxtum
Línurit: Undanfarin fjögur ár hafa bankarnir verið með á bilinu 100–200 milljarða króna í
ávöxtun hjá Seðlabankanum á 5 til 5,75% vöxtum.
Myndin Stund milli stríða Laganna verðir eiga stund milli stríða í þokkalegasta haustveðri við Höfðatorg. Mynd SIgTryggur arI
1 Læknir birtir launaseðil: 276.000 útborgað fyrir
fulla dagvinnu Þóra Elísabet
Kristjánsdóttir, læknir við Landspítalann
og sérnámslæknir í heimilislækningum,
birti á Facebook launaseðil sinn frá
Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu
frá 1. september þar sem kemur fram að
hún fékk 276 þúsund krónur útborgaðar
fyrir 100 prósenta dagvinnu. Læknar eru
í verkfallsaðgerðum um þessar mundir
og berjast fyrir því að fá allt að 30
prósent launahækkun.
Lesið: 59.167
2 Á tíu milljóna króna jeppa Reynir Jónsson,
framkvæmdastjóri Strætó bs., ekur
um á glænýjum tæplega tíu milljóna
króna Mercedes Benz-jeppa sem er í
eigu Strætó bs. Bíllinn var nýskráður
í febrúar á þessu ári og Strætó keypti
hann í október.
Lesið: 30.338
3 „Ég er mjög ósátt við Stöð 2 sport“ „Ég er mjög
ósátt við Stöð 2 sport, hvernig þeir bara
virðast „kötta“ algjörlega á kvennabolt-
ann,“ segir Harpa Þorsteinsdóttir sem er
nýkrýndur Íslands- og bikarmeistari með
Stjörnunni. Hún segir að umfjöllun um
kvennafótbolta í sumar hafi verið tals-
vert ólík umfjölluninni um karlaboltann.
Farið sé yfir helstu atriðin úr kvennabolt-
anum en víðtækari umfjöllun fari fram
um karlaboltann og lítið hafi verið sýnt
frá kvennaboltanum.
Lesið: 21.810
4 „Tók mér hlutverk hálfgerðs þorpsfífls“
Ljóðskáldið og myndlistarmaðurinn
Bjarni Bernharður Bjarnason rifjaði upp
barnæskuna í helgarviðtali DV. „Ég varð
fyrir ákveðnu einelti og til að verja mig
í þessu þorpi þá tók ég mér hlutverk
hálfgerðs þorpsfífls. Það var svona vörn
gegn því að fá á sig áföll,“ sagði hann um
uppvaxtarárin á Selfossi.
Lesið: 18.347
5 Stjörnur sem hafa mannslíf á samviskunni
Í helgarblaði DV var
að finna umfjöllun um
Hollywood-stjörnur og
tónlistarfólk sem hefur
orðið öðrum að bana.
Nokkrir hafa valdið
banaslysi með glæfra-
eða ölvunarakstri, þar á
meðal leikarinn Matthew Broderick sem
ók bíl sínum á röngum vegarhelmingi og
ók á bíl sem kom á móti honum.
Lesið: 15.588
Mest lesið
á DV.is
E
inn kafli vekur strax athygli í
efnis yfirlitinu á skýrslu Geir Jóns
um mótmæli frá 2008 til 2011
enda er hann á skjön við það
sem er sagt vera umfjöllunarefni skýr
slunnar.
Sá kafli ber heitið Viðbúnaður
vegna Fáfnismanna, 7. mars 2009.
Þegar viðkomandi kafla er svo
flett upp þá stendur eftirfarandi um
skipulag:
„Skipulag: Ákveðið var að sýna
Fáfnismönnum að lögreglan ætli að
fylgjast með samkomu þeirra, en þeir
höfðu boðið Hells Angels (HA) félög
um víðsvegar um heim til fagnaðarins.
Búast mátti við einhverjum árekstrum
og því yrði mætt af fullum þunga.“
Ekkert bendir til þess í lýsingu á
skipulagi að um mótmæli sé að ræða
eða að búist sé við að mótmælt verði
við Fáfnisheimiilið vegna komu Hells
Angels til landið.
Í framhaldi kemur svo atvikalýsing
sem hljómar svo:
„Atvikalýsing: Lögreglan bjó sig
undir mjög fjölmenna veislu Fáfnis
manna, enda væru þeir að tengjast
Hells Angels og búist var við að um
100 manns myndi sækja fagnaðinn og
þá um 40 HA meðlimir erlendis frá.
Undirbúið var á Keflavíkurflugvelli
að vísa þeim frá landi ef þeir mættu.
Reiknað var með að það gæti tekið
nokkurn tíma að vísa þeim úr landi,
eða koma þeim úr landi og því var
ákveðið að aðgerðasveit LRH myndi
aðstoða lögregluna á Suðurnesjum
við verkið. Ákveðið að aðgerðasveit
LRH annaðist gæslu við félagsheimili
Fáfnismanna að Gjáhellu 5 frá hádegi
þennan dag. Voru lögreglumenn fram
an við innkeyrslu í húsið og því tryggt
að allir gestir sem færu í félagsheim
ilið fari í gegnum þennan eftirlitspóst
lögreglu. Settur var upp eftirlitspóst
ur á bak við félagsheimilið ef einhver
reyndi að komast þar inn. Tryggja átti
að náð yrði til allra þeirra erlendu HA
félaga ef þeir kæmu á staðinn.
Kl. 16:00 sást fjöldi Fáfnismanna
inni í félagsheimilinu og var verið að
bera inn húsgögn, stóla og borð. Kl.
17:30 var byrjað að grilla utan við hús
ið, en allt var með kyrrum kjörum. Kl.
20:53 fóru ARM og KHÞ til að ræða við
fulltrúa Fáfnis og kynntu þeim nálg
un lögreglu og eins hvaða heimild
ir þeir þyrftu vegna veitinga og víns.
Kom í ljós að minni aðsókn var á þessa
skemmtun þeirra en þeir höfðu bú
ist við. Fækkað var eitthvað í hópi lög
reglumanna því ljóst var að lítið yrði úr
þessari samkomu. Kl. 23:55 var kom
in nokkur hreyfing á gestina og fleiri
fóru en komu og áætlað var að um
30 til 40 manns væru á staðnum. Kl.
01:05 var eftirliti lögreglu hætt því síð
ustu gestirnir voru að fara. Talið var
að þegar flestir voru í húsnæðinu hafi
verið þar um 100 manns, en engin af
skipti voru höfð af þeim og allt var ró
legt.“
Ekkert í atvikalýsingu bendir held
ur til þess að um mótmæli hafi verið
að ræða.
Þetta vekur því upp spurningar um
hugarfar Geirs Jóns og hugarfarið inn
an lögreglunnar til mótmælenda.
Eru mótmælendur viriklega sam
bærilegir við Hells Angels og/eða aðra
skipulagða glæpastarfsemi í huga lög
reglumanna?
Ef svo er, er það þá helsta ástæðan
fyrir því að sumir lögreglumenn hafa
reynt að nota mótmæli sem ástæðu
fyrir því að vopna eigi lögreglu með
teiserum og vélbyssum?
Það er óhuggulegt hugarfar.
Og á meir skylt með fasisma held
ur en frelsi. n
Eru mómælendur sambærilegir við Hells Angels?
agnar Kristján
Þorsteinsson
Af blogginu