Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2014, Blaðsíða 24
24 Neytendur Vikublað 4.–6. nóvember 2014
Þetta eru bestu dekkin fyrir íslenskan vetur
n Bestu negldu dekkin frá Nokian n Goodyear og Nokian best í flokki ónegldra vetrarhjólbarða
N
okian Hakkepeliitta 8
negldu vetrardekkin eru
þau bestu sem þú færð fyrir
krefjandi vetraraðstæður
á nyrstu slóðum Evrópu
eins og á Íslandi. Þetta er niður-
staða árlegrar könnunar sérfræðinga
TestWorld í Finnlandi og birtist í
bílatímaritum í ríkjum Skandinavíu
og í Rússlandi. Í könnuninni voru
gerðar strangar og ítarlegar prófanir
á þrettán negldum og tólf ónegld-
um dekkjum. Fjallað er ítarlega um
vetrar dekkjakönnunina í blaði Fé-
lags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB)
sem fékk könnunina frá norska
systurfélagi sínu NAF. FÍB veitti DV
góðfúslegt leyfi til að fjalla um niður-
stöðurnar hér.
Gæðamerkin skora hátt
Þekkt gæðamerki raða sér að vanda
í efstu sætin en í FÍB-blaðinu segir
að þrátt fyrir það sé samt ekki hægt
að segja að beint samhengi sé milli
verðs og gæða þar sem ódýr dekk,
meðal annars frá Kína, Kóreu og Taí-
van, komu sum hver merkilega vel
út. Könnunin sýnir líka að neytend-
ur ættu að varast að láta glæsileg
gerðarheiti dekkja og markaðsslag-
orð blekkja sig þar sem þau reynist
oftar en ekki marklaus. Dæmi um
það séu kínversku Sunny-dekk-
in Snowmaster sem af nafninu að
dæma ættu að vera hreint fyrirtak í
snjó og ís. Raunin var allt önnur og
segir um þessi dekk í FÍB-blaðinu:
„Það er einfaldlega ekki hægt að ráð-
leggja nokkurri manneskju að fá sér
það undir bíl á Íslandi.“
Aðstæður á norðlægum slóðum
eru það krefjandi og sérstakar að
framleiðendur hanna og framleiða
sérstaka hjólbarða með þær í huga.
Vetrardekkin hér þurfa fyrst og
fremst að gera aksturinn öruggari í
snjó og hálku meðan hjólbarðar fyr-
ir suðlægari slóðir þurfa að ryðja vel
frá sér vatns- og krapaelg á vegum og
hraðbrautum.
Mismunandi fjöldi nagla
Öll dekkin í prófunum eru af sömu
stærð, eða 205/55 R16, en í flestum
þeirra ríkja sem niðurstöðurnar birt-
ast hafa nýjar reglur tekið gildi sem
takmarka fjölda nagla í hverju dekki
við mest 50 nagla á hvern ferilmetra.
Það þýðir að flest negldu dekkin í
þessum prófum eru með tæplega
100 nagla, en þó ekki öll. Undan-
tekningin er meðal annars Nokian-
dekkin sem vissulega koma best út
en þau státa af 190 nöglum í hverju
dekki. Framleiðendur geta nefni-
lega fengið undanþágu frá reglu-
gerðinni ef þeim tekst að sýna fram
á að hinn aukni naglafjöldi hafi ekki í
för með sér aukið vegslit. Fjöldi nagla
gerir þó ekki gæfumuninn þar sem
fleiri þættir hafa áhrif í prófunum.
DV bendir áhugasömum á að ítar-
legri upplýsingar um prófið og dekk-
in sem hér er fjallað um er að finna
í FÍB-blaðinu sem félagsmenn geta
nálgast á www.fib.is. Hér er aðeins
stiklað á stóru. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Pirelli Ice Zero
„Pirelli er eitt af bestu vetrardekkjunum í
ár. Með svona dekkjagang ertu vel í stakk
búinn að takast á við erfiða vetrarfærðina
fram undan. Hemlunareiginleikar þess í
vetrarfærðinni eru afbragð en eins og títt
er um slík dekk eru góðu vetrareiginleik-
arnir dálítið á kostnað hemlunareiginleika
í bleytu. Þá er dekkið heldur háværara en
sum önnur þeirra bestu.“
Einkunn: 8,6
Umsögn um versta neglda dekkið:
Umsögn um bestu ónegldu dekkin:
Sunny Snowmaster SN3830
„Á sama hátt og neglda vetrardekkið frá Sunny er óneglda Sunny dekkið
einnig í sérflokki – á botninum. Þetta dekk er slæmt á ís og langt frá því
að vera gott í snjó. Það er hins vegar best ónegldu dekkjanna á blautu
malbiki en það er bara ekki nóg til þess að hægt sé að mæla með því. Það
hæfir einfaldlega ekki vetraraðstæðum á norðlægum slóðum en gæti
hentað vel við mið-evrópskar vetraraðstæður. “ Einkunn: 6,1
Tegund – Gerð Heildareinkunn 0–10 Verð á 4 stk. Söluaðili
Nokian Hakkapeliitta 8 8,8 152.368 kr. Max1
Continental ContiIceContact 8,6 135.960 kr. Sólning
Pirelli Ice Zero 8,6 139.960 kr. Bílabúð Benna
Goodyear Ultra Grip Ice Arctic 8,4 139.960 kr. Klettur
Gislaved Nord Frost 100 8,3 X X
Hankook Winter I*Pike RS 8,1 103.960 kr. Sólning
Dunlop Ice Touch 8,0 X X
Michelin X-Ice North 3 7,9 139.960 kr. N1
Bridgestone Blizzak Spike-01 7,7 X X
Vredestein Arctrac 7,5 103.856 kr. BJB
Jinyu Winter yw53 7,1 X X
Nordman 4 7,1 X X
Sunny Winter-Grip SN386 5,9 X X
Negldir hjólbarðar
Tegund – Gerð Heildareinkunn 0–10 Verð á 4 stk. Söluaðili
Goodyear Ultra Grip Ice2 8,2 128.800 kr. Klettur
Nokian Hakkapeliitta R2 8,2 152.368 kr. Max1
Continental ContiVikingContact 6 7,8 131.960 Sólning
Michelin X-Ice XI3 7,8 135.960 kr. N1
Maxxis Arctictrekker 7,7 X X
Bridgestone Blizzak WS70 7,3 151.904 kr. Betra Grip
Sailun Ice Blazer WSL2 7,2 X X
Pirelli Icecontrol Winter 7,2 X X
Dunlop SP Ice Sport 6,8 X X
Vredestein Nord-Trac 2 6,7 X X
KumhoÍ Zen KW31 6,6 X X
Sunny Snowmaster SN3830 6,1 X X
Ónegldir hjólbarðar
Umsögn um bestu negldu dekkin:
Nokian Hakkapeliitta 8
„Nokian er sá framleiðandi sem gefur
forskriftina að því hvernig vetrardekk fyrir
norðurslóðir eigi að vera og hvað þau eigi
að geta í snjó og á ís. Hakkapeliitta 8 fær
hæstu einkunn í öllum prófunarþáttum.
Það hemlar vel og skilar ökumönnum
þægilegri öryggistilfinningu á erfiðum
vetrarvegum. Að vísu er það fylgifiskur
afburðagóðra vetrareiginleikanna sá að
að hemlunarvegalengd í bleytu lengist
eilítið og rásfestan er örlítið síðri. Frábært
vetrardekk.“ Einkunn: 8,8
Continental ContiIceContact
„Continental aftur í einu af efsta sætun-
um eins og í fyrra. Dekkið hlýtur hæstu
einkunnir fyrir akstur á ís, hvort heldur
sem um er að ræða hemlun, veggrip,
rásfestu og aksturstilfinningu. Í snjó er
dekkið einnig ágætt en eilítið síðra þar
en Nokian. Hemlar vel í bleytu og er afar
rásfast, einnig í hjólförum á vegi eins og
þeim sem tíðkast svo mjög hér á Íslandi.
Mikil núningsmótstaða dregur heildar-
einkunnina niður.“
Einkunn: 8,6
Nokian Hakkapeliitta R2
„Nokian er eina óneglda vetrardekkið sem
stendur sig betur í snjó og á ís heldur en
Goodyear. Raunin er sú að það hefur jafn
stutta hemlunarvegalengd á ís og snjó og
sum negldu dekkjanna. En það hefur þann
slæma veikleika að hemla ekki nógu vel
í bleytu. Þar er hemlunarvegalengdin sú
lengsta. Kannski er þetta sönnun þess að
ekki er hægt að vera bestur í öllu. Nokian
hefur einfaldlega valið að vera best í snjó
og á ís.“
Einkunn: 8,2
Goodyear Ultra Grip Ice2
„Goodyear fer rakleitt á toppinn meðal
ónegldu vetrarhjólbarðanna. Einkenni
dekksins er hversu jafngott það er í öllum
prófunarþáttum. Stendur sig vel á ís og
snjó og einnig og ekki síður á votu malbiki.
Þetta er erfitt að sameina í einu og sama
dekkinu en nú hefur verkfræðingunum hjá
Goodyear tekist það. Til viðbótar þessu er
dekkið mjög rásfast og lágvært og því að
öllu samanlögðu afbragðs vetrardekk.“
Einkunn: 8,2
Sunny Winter-Grip SN386
„Hið kínverska vetrardekk Sunny er í sérflokki í þessari könnun – í botnflokknum.
Eiginleikar þessa vetrardekks eru margir þeir sömu og hjá dæmigerðu Mið-Evrópu
vetrardekki. Það er ágætt á votu og þurru malbiki. Þar gefur það góða aksturstilf-
inningu og hefur gott veggrip. En á ís og í snjó gegnir öðru máli. Þar er það alls ekki
viðunandi. Það þýðir það að engin ástæða er til að setja það undir bílinn og aka
síðan út í erfitt og varasamt íslenskt vetrarfæri.“ Einkunn: 5,9
Umsögn um versta óneglda dekkið:
Slabb í borginni Í Reykjavík
hefur undanfarin ár verið rekin
herferð gegn nagladekkjum og
þau sögð óþörf. Það er mikið til í
því enda hægt að fá mjög góða
og örugga óneglda vetrarhjól-
barða. Mynd dV efH / SiGTryGGur Ari