Iðjuþjálfinn - 01.12.1997, Síða 15

Iðjuþjálfinn - 01.12.1997, Síða 15
indi, en þar er áherslan á að útskýra iðju í breiðum skilningi. Iðjuvísindi eru grunnvísindi, sem skila hagnýtu gildi sínu til iðjuþjálfunar vegna þess að þau veita upplýsingar um iðju mannsins og láta sig varða röskun á færni fólks til að velja og stunda iðju. Iðjuþjálfun nútímans byggir á vís- indalegum grunni sem á sér rætur í viðhorfum iðjuþjálfa fyrri tíma (Clark & Larson, 1993). Doktorsprógramm í iðjuvísindum fékkst viðurkennt við Suður-Kaliforníu háskólann í Banda- ríkjunum árið 1989. Alþjóðasamband iðjuþjálfa var stofnað 1951 af 10 þjóðlöndum. Nú eru um 40 þjóðlönd í Alþjóðasam- bandinu, en hlutverk þess er að stuðla að alþjóðlegum samskiptum og efla þróun iðjuþjálfunar, meðal annars með alheimsráðstefnum á fjögurra ára fresti. Alþjóðasambandið stendur vörð um og setur staðla varðandi nám og þjónustu iðjuþjálfa (Reed, 1993). Lámarkskröfur sambandsins til náms eru að námið taki að minnsta kosti 3 ár, um helmingur námisins séu iðjuþjálfunargreinar og að verk- nám sé minnst 1000 tímar (Council of the World Federation of Occupational Therapists, 1993). Iðjuþjálfun á íslandi Fyrsti íslenski iðjuþjálfinn hóf störf á Kleppsspítala árið 1945 (Guðrún Pálmadóttir og Kristjana Fenger, 1990). Nokkrir til viðbótar, einkum útlendingar voru hér við störf af og til næstu 30 árin, en 1974 fóru að bæt- ast íslendingar í hópinn. Arið 1976 var hér 10 manna hópur, Islendinga og útlendinga, sem stofnaði Iðju- þjálfafélag íslands. Fyrsta verkefni félagsins var að fá samþykkt lög um iðjuþjálfun á Alþingi til verndar starfsheitinu iðjuþjálfi árið 1977. Iðju- þjálfafélag íslands hefur frá upphafi tekið virkan þátt í norrænu samstarfi iðjuþjálfafélaga og gerðist strax aðili að Alþjóðasambandi iðjuþjálfa (Guðrún Pálmadóttir, 1996). Það er einnig aðili að Evrópubandalagi iðjuþjálfa síðan 1989. Frá því 1982 hefur iðjuþjálfafé- lagið gefið út sitt eigið fagtímarit - Iðju- þjálfann. Iðjuþjálfum á Islandi hefur fjölgað nokkuð jafnt og þétt í gegnum árin (sjá 1. mynd). Að meðaltali erfjölgun- in tveir til þrír iðjuþjálfar á ári sem skila sér til starfa (Guðrún Pálma- dóttir, 1996). Eins og í öðrum stéttum eru aldrei allir í starfi í einu. Núna eru 84 iðjuþjálfar á íslandi, en sam- kvæmt síðustu símaskrá iðjuþjálfafé- lagsins starfa 71 þeirra við fagið og þar af aðeins 10 utan höfuðborgar- svæðisins (Iðjuþjálfafélag íslands, 1997). Einnig er nokkuð um að fólk hafi ekki skilað sér heim að námi loknu. Iðjuþjálfar hér á landi eru mjög skammt á veg komnir hvað varðar fjölbreytni í starfsvettvangi (Guðrún Pálmadóttir, 1996). Eins og sést á 2. Fjöldi starfandi iðjuþjálfa 1975 -1997 1975 8 1980 15 1985 34 1990 57 1995 63 1997 71 1. mynd mynd þá starfar meginhluti iðjuþjálfa innan hefðbundinna stofnana. Hér er átt við almenn sjúkrahús og endur- hæfingarstöðvar þar sem skjólstæð- ingar eru innlagðir eða fá þjónustu frá göngudeild. Þetta er mjög frábrugt® því sem gerist hjá nágrannaþjóðum, en í Danmörku starfar um helmingur allra iðjuþjálfa utan stofnana (Guðrún Pálmadóttir og Snæfríður Þóra Egil- son, 1996). Það er þó sýnileg breyting hér hjá okkur, því síðustu tvö árin hefur fjölgað verulega þeim iðjuþjálf- um er starfa á vegum svæðisstjórna 1975 19!« 1985 199« 1995 1997 UNOANFARNA TVO ÁRATUGI HAFA IfiJU- ÞJÁLFAR VERIÐ AÐ ENDURSKOÐA VIÐ- HORF SITTTILIÐJU. ÞEIR FÓRU AÐ SKRIFA, GERA RANNSÓKNIR OG ÞRÓA KENNINGAR OG Á ÞANN HÁTT HEFUR ÞEIM TEKIST AÐ SANNA GILDI HINNA UPPRUNALEGU VIÐ- HORFA OG AÐFERÐA í IÐJUÞJÁLFUN ÁN ÞESS AÐ MISSA NIÐUR ALLA ÞÁ ÞEKKINGU OG REYNSLU SEM STÉTT- IN ÖÐLAÐIST Á TÍMUM SMÆTTAR- HYGGJUNNAR IÐJUÞJÁLFINN 2/97 15

x

Iðjuþjálfinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.