Iðjuþjálfinn - 01.12.1997, Síða 18

Iðjuþjálfinn - 01.12.1997, Síða 18
sem gerir þeim kleift: • að þróa trausta fagímynd og taka ábyrgð á eigin fagmennsku og vinnu- brögðum • að eiga fagleg samskipti sem stuðla að gæðaþjónustu fyrir neytendur • að veita íhlutun sem byggð er á fræðilegum grunni og í samræmi við þarfir skjólstæðinga, umhverfi þeirra ogaðstæður • að taka þátt í endurmenntun, rann- sóknum og gæðamati er stuðlar að þróun iðjuþjálfunar sem fræðigreinar (Elsa B. Friðfinnsdóttir og félagar, 1997). Nám í iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri tekur fjögur ár. Námið er 120 námseiningar og skiptist í fjóra meginþætti; raunvísindi, félagsvís- indi, heilbrigðisvísindi og iðjuvísindi (5. mynd). 1. Raunvísindi eru 22 námseiningar, þar sem nemendur öðlast þekkingu á uppbyggingu og starfsemi manns- líkamans og læra að beita tölfræðileg- um aðferðum við rannsóknir. 2. Félagsvísindi eru einnig 22 náms- einingar, þar sem nemendur fá þekk- ingu á siðfræði, sálarfræði, félagsfræði, þroskafræðum, stjórnun og aðferða- fræði félagsvísindanna. 3. Heilbrigðisvísindi eru 10 námsein- ingar, en þar öðlast nemendur þekk- ingu á eðli sjúkdóma og annarra fyr- irbæra er ógna andlegri og líkam- legri heilsu. Einnig kynnist þeir þar ýmsum þeim aðferðum sem beitt er í heilbrigðisþjónustu til forvarna, lækninga og heilsueflingar. Námsþættir Raunvísindi - líffærafræöi (9) - lífeölisfræði (6) - hreyfingafræöi (3) - töl- og aðferðaf. (4) Félagsvísindi - heimspeki (3) - sálfræði (5) - félagsfræði (4) - þroskafræði (6) - aðfcrðafræði (2) - stjórnun (2) Heilbrigðisvísindi - mcinafræöi (2) - sjúkdómafræði (6) - heilbrigðisfræðsla (2) Iðjuvísindi - fræðigrunnur (6) - iðja (12) - íhlutun iðjuþjálfa (26) - verknám (13) - rannsóknir (9) 4. Iðjuvísindi eru 66 námseiningar, en markmið þeirrar kennslu er að nem- endur öðlist víðtæka þekkingu á iðju mannsins og þeirri hugmyndafræði og kenningum er íhlutun iðjuþjálfa grundvallast á. Einnig að nemendur nái valdi á starfsaðferðum iðjuþjálhm- ar í þeim tilgangi að efla iðju skjólstæð- inga sinna. Þá er lögð áhersla á þátt- töku nemenda í þróun og rannsókn- um er tengjast iðjuþjálfun. Að sjálfsögðu er skörun milli þess- ara meginþátta, ekki hvað síst milli iðjuvísinda og heilbrigðisvísinda. Gert er ráð fyrir að unnt verði að sam- kenna um 30 námseiningar með nemum í hjúkrunarfræði (Elsa B. Frið- finnsdóttir og félagar, 1997). Við skipulagningu á ferli námsins var notað líkan þróað 1995 af Gail Hills Maguire, Guðrúnu Pálmadóttur og Snæfríði Þóru Egilson (Elsa B. Frið- finnsdóttir og félagar, 1997). Námið er þannig byggt upp að vægi stoð- greina, sérstaklega raunvísinda og félagsvísinda, er mest fyrstu tvö árin meðan nemendur eru að byggja upp staðgóða þekkingu á manninum og tilveru hans (6. mynd). A sama tíma byrja nemendur að læra um iðju mannsins og samspil iðju, manns og umhverfis. A síðari hluta 2. árs og á 3. ári fara nemendur að fást við viðfangsefni þar sem fæmi mannsins til daglegrar iðju er skert og eftir það vex vægi iðjuþjálfunar- greina mjög og á síðasta árinu eru iðjuvísindin alls ráðandi. Verknám, sem er innifalið í iðjuvísindunum, er í allt 25 vikur; 4 vikur í upphafi 3. árs, 10 vikur á haustönn 4. árs og 11 vik- ur á vorönn 4. árs. Tímamót Nám í iðjuþjálfun er hafið við heil- brigðisdeild Háskólans á Akureyri. Nú í haust innrituðust 32 nemendur, en aðeins 15 þeirra öðlast réttindi til að halda áfram námi á vorönn að loknum samkeppnisprófum í des- ember (Elsa B. Friðfinnsdóttir og fé- lagar, 1997). Fjöldatakmörkunum í

x

Iðjuþjálfinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.