Iðjuþjálfinn - 01.12.1997, Page 22

Iðjuþjálfinn - 01.12.1997, Page 22
bandaríski kenningasmiðurinn Gary Kielhofner (1995) um innra skipulag mannsins og nefnir í því sambandi þrjár leiðir eða kerfi til að greina og skilja iðju og atferli í daglegu lífi. Hlutverk viljakerfisins er, eins og nafnið felur í sér, að velja þá iðju sem fólk vill eða þarf að takast á við. Inn í það spilar vitund um eigin færni og takmarkanir, hvemig beri að stjórna eigin atferli og stefna að settu marki. Réttlætiskennd, áhugi, gildismat og val eru allt þættir sem falla undir þetta kerfi. Við noturn vanakerfið til að koma hvers kyns iðju fyrir í dagsins önn, flokka hana og skipuleggja. Fólk er yfirleitt ótrúlega sjálfu sér sam- kvæmt í því hvað, hvenær og hvern- ig það gerir hlutina. Þessi venju- myndun er tilhneiging til að skapa ákveðið hegðunarmynstur sem skilar árangri. Venjur draga úr áreynslu, þannig að fólk getur jafnvel gert margt í einu. Venjur gefa lífi þess reglufestu og skipulag og stjórna því hvernig það skipuleggur dag- legt líf, vikur, árstíðir og umhverfi í víðasta skilningi. Hæfnikerfið, tekur síðan til þeirra eiginleika, andlegra og líkamlegra, sem nauðsynlegir eru til að fram- kvæma. Það ræður úrslitum um hvernig fólk tekst á við iðju og hver útkoman verður. Sérkenni iðju Drögum nú saman helstu sérkenni iðju, eins og þau eru sett fram í nýtút- komnu riti kanadíska iðjuþjálfafélags- ins (Law, Polatajko, Baptiste og Town- send, 1997): • Iðja er ein af grunnþörfum mannsins Hugmyndin um að iðja sé lífsnauð- syn tengist þróun fagsins í byrjun þessarar aldar. Heimspekingurinn Dunton, einn af frumkvöðlum iðju- þjálfunar, staðhæfði að það að hafa eitthvað fyrir stafni væri jafn mikil- vægt hverjum manni eins og að nærast. Allir menn ættu að stunda iðju af líkamlegum og andlegum toga og sem þeir kunna að meta. Fólk tekst á við fjölbreytta iðju á lífs- leiðinni og auðveldar hún því að skipuleggja atferli, tíma og fá útrás fyrir mismunandi þarfir. Iðja okkar gerir okkur að því sem við erum! • Iðja hefur áhrif á heiisu Heilsa er annað og meira en það að vera „ekki veikur" og heilsa er háð því sem fólk hefur fyrir stafni. Iðju- þjálfar beina sjónum sínum að tengslum þar á milli. Sjúkdómar, slys og áföll af ýmsu tagi koma oft í veg fyrir að fólk geti stundað sína hefðbundnu iðju. Það getur aftur leitt til enn víðtækari áhrifa á heilsufar, þannig að eins konar víta- hringur myndast. I Alma Alta- stefnuyfirlýsingunni frá WHO, heilsa fyrir alla árið 2000, er vikið að mikilvægi þess að fólk fái grunn- þörfum sínum fullnægt. Þrátt fyrir að orðið iðja sé ekki notað beint í þessu sambandi, má lesa út úr yfir- lýsingunni að heilsa fólks sé háð því að það geti stundað iðju sem veiti þýðingu og tilgang og í krafti henn- ar öðlast húsaskjól, atvinnu, samfé- lag og notið lífsins. • Iðja gefur þýðingu og tilgang. Iðja gefur lífinu gildi. Hér erum við að tala um huglæga upplifun sem byggir mest á fyrri reynslu og til- finningum hvers og eins, það sem er mikilvægt fyrir hvern og einn. Iðja hefur einnig tilgang og tengist hann oft væntingum og framtíðar- markmiðum. Þetta tvennt kann sumum að finnast nátengt, en það er þó ekki eitt og hið sama. Að keyra bíl til vinnu hefur greinilegan til- gang fyrir flesta. Unglingur sem er nýbúinn að fá bílpróf fær þó annað 22 IÐJUÞJÁLFINN 2/97

x

Iðjuþjálfinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.