Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1969, Síða 8
Formáli.
Preface.
í þessu riti eru birtar niðurstöður aðalmanntals 1. dcscmbcr 1960 varðandi manufjöldann, en
áður kom út sérstakt hagskýrsluhcfti (nr. II, 43) um íbúðarhúsnæði landsmanna. Er það einnig byggt
á upplýsingum, sem aflaö var við manntalið 1960.
Við aðalmanntal 1960 var spurt um flest sömu atriði og við manntal 1. des. 1950 og nokkrum
bætt við, aðallega varðandi atvinnu manna. I upphaíi inngangsins hér á eftir er gerð nánari grein
fyrir þessum breytingum, og vísast til þess. Þar er og lýst tilhögun og framkvæmd manntals 1960 í
cinstökum atriðum. I B-kafla inngangsins er geró grein fyrir úrvinnslu manntalsefniviðsins, og í C-
kafla hans fjallað sérstaklega um hvert inanntalsalriði. 1 D-knfla inngangsins eru svo loks helztu
niðurstöður manntals 1960, og þær bornar saman við niðurstöður eldri manntala, eftir því sem föng
eru á. Þar aftan við cru svo aðaltöflur manntalsins, 58 að tölu.
Því miður hefur orðið mikill dráttur á útkomu þessa rits, og stafar hann af ýmsum ástæóum.
Vegna ofhlcðslu starfa í Skýrsluvélum ríkisins og Reykjavíkurborgar varð nokkurra ára bið á því,
að forrit til vélvinnslu manntalsspjalda fengjust gerð. Það takmarkaða vinnuafl, sem Skýrsluvélar
liöfðu til forritagerðar, var bundið við nauðsynlegustu störf í þágu opinberrar stjómsýslu. Varð að
lokum að gera sérstakar ráðstafanir til að fá manntalsforritin gerð, en þar var um að ræða mjög tíma-
frekt verk. — önnur aðalástæða dráttarins var sú, að ýmis skýrslugerðarverkefni, sem talin vom
ineira knýjandi, voru látin ganga fyrir úrvinnslu manntalsins. Má þar t. d. nefna, að haustið 1966
var komið á fót almennri skráningu nemenda frá næstsíðasta ári skyldunáms og til námslykta. Þá
hefur og verið stofnað til heildarskráningar fyrirtækja (sbr. lög nr. 62/1969, um fyrirtækjaskrá), sem
á að vera grundvöllur stjórnsýslu í sambandi við fyrirtieki á sama liátt og þjóðskráin cr það á sínu
sviði, og hins vegar að vera grundvöllur hagskýrslugerðar um atvinnustarfsemina í landinu. Þá var
og útgáfa Tölfræðihandbókar 1967 mjög viðamikið og knýjandi verkcfni. Auk þessa liefur verið unnið
að því eftir því sem aðstæður liafa frekast lcyft að koma á fót nýjum greinum liagskýrslugerðar, og
að auka og endurbæta þær, sem fyrir vom.
Ákvörðunin um að láta þannig ýmis verkefni sitja fyrir úrvinnslu manntals 1960 verður að skoðasl
í ljósi þess, að þýðing aðalmanntals er nú orðin allt önnur og minui en var. Áður vom aðalmanntöl
m. a. nauðsynlcg til þess að afla ýtarlegrar vitneskju um tölu mannfjöldans og skiptingu hans eftir
kyni, aldri og stöðum á landinu, o. fl., en síðan þjóðskráin kom til sögunnar hafa legið fyrir fullnægjandi
upplýsingar um þcssi atriði snemma í janúar á ári hvcrju, miðað við næsthðinn 1. dcscmber. Em
aðalmanutöl því nú orðin óþörf til skýrsluöflunar um þetta. Að því er varðar aðrar upplýsingar, sem
aflað hefur verið með aðalmanntali, er það að segja, að mikið af þeim cr nú fáanlegt með fljótvirkari
og kostnaðarminni liætti. Hér má nefna sem dæmi, að frá og ineð vinnuárinu 1963 liefur Hagstofan
gert árlegar skýrslur um mannafla í cinstökum atvinnugreinum, cftir slysatryggingargögnum skatt-
yfirvalda. Og enn fremur, að frá og ineð tekjuárinu 1962 hafa vcrið gcrðar árlegar skýrslur um tekjur
einstakra starfsstétta, samkvæmt skattskrám. Þá má geta þcss, að upplýsingar nemendaskrár koina
framvegis að fullu í stað náinsupplýsinga, sem hingað til hefur verið aflað með manntali, og þegar
fram í sækir kemur þessi nýja skrá — ef allt fcr að vonum — til með að láta í té fullkomnar upplýsingar
um menntun þjóðarinnar, að svo miklu leyti sem hún byggist á teknum prófum. Loks er rétt að gcta
þess, að með tilkomu fyrirtækjaskrár opnast nýjar leiðir til öflunar ýmissa atvinnuupplýsingo, sem
hingað til hafa fengizt með manntali.
Af þessum ástæðum er fyrirhugað að taka ekki manntal í hefðbundnu formi 1. des. 1970, eins
og lög nr. 4/1920 mæla fyrir um, heldur láta fara fram athugun á mannafla þjóðarinnar til atvinnu-
starfa, með þeim liætti, sem Hagstofan ákveður í samráði við aðra opinbera aðila, sem liér eiga lilut
að máli. Er þetta lieimilað í 12. gr. laga nr. 62/1969, um fyrirtækjaskrá.
Upplag þessa rits er 950, og verð 250 kr.
Hagstofa íslands, í októbcr 1969.
Klemens Tryggvason.